Borgirnar taka völdin

Borgir stækka sífellt á kostnað dreif­býlis og hug­myndir eru uppi um að öfl­ugar borgir geti spilað stærri þátt í skipan og stjórn heims­mála, styrkt lýð­ræði og staðið í vegi fyrir ein­angr­unar- og ein­ræð­istil­burðum.

Nýverið bár­ust fréttir af því að borg­ar­stjór­inn í Búdapest væri kom­inn upp á kant við yfir­völd í Ung­verja­landi vegna áforma um viða­mikla upp­bygg­ingu Kínverja í borg­inni. Þar hyggj­ast þeir reisa háskóla með til­heyr­andi bygg­ingum sam­kvæmt sam­komu­lagi við rík­is­stjórn Victors Orban. Þetta hefur vakið úlfúð meðal borg­ar­búa sem ótt­ast aukin ítök Kínverja í land­inu, en þeir eru þekktir fyrir rit­skoðun og skoð­ana­kúgun. Svar borg­ar­yf­ir­valda er að nefna götur sem umkringja svæðið nöfnum sem koma mjög illa við kín­versk stjórn­völd, eins og Frelsið Hong Kong-vegur, Dalai Lama-stræti og Uyghur Písl­ar­votta­vegur.

Heimskerfi hins fullvalda ríkis

Með auk­inni hnatt­væð­ingu leika stór­borgir sífellt stærra hlut­verk enda kjósa fleiri og fleiri að búa þar, á kostnað dreif­býl­is­ins. Nú býr meira en helm­ingur mann­kyns í borgum og hingað til hefur þró­unin haldið áfram í þá átt, þó COVID-19 kunni að setja strik í reikn­ing­inn tíma­bundið.

Almennt hefur verið litið svo á að það sé hið full­valda ríki sem sé meg­in­ger­and­inn í alþjóða­kerf­inu en fleiri hafa verið að gera sig gild­andi, alþjóð­legar stofn­anir, stór­fyr­ir­tæki og félaga­sam­tök – og það sem hér er til umfjöll­unar: borgir og borg­ar­stjórar.

[adspot]Aðgerðir borg­ar­yf­ir­valda í Búdapest sem þarna ögra stjórn­völdum bæði í Kína og Ung­verja­landi all­hressi­lega sýna að borgir geta látið að sér kveða í málum sem hafa alþjóð­lega skírskotun. Þegar Donald Trump til­kynnti úrsögn Banda­ríkja­manna úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu brugð­ust margir banda­rískir borgar- og fylk­is­stjórar við með því að segj­ast ætla að halda sínu striki með fram­kvæmd sam­komu­lags­ins hvað sem til­kynn­ingu for­set­ans liði.

Þarna má spyrja hver sé þá grund­völlur hins lýð­ræð­is­lega sam­fé­lags, hverjir standi vörð um það, hvert við sækjum borg­ara­rétt­inn og hverjir séu hags­munir okkar sem borg­ara. Þurfa þeir hags­munir endi­lega að vera bundnir við ríkið sem við til­heyrum? Þetta leiðir okkur að stóru spurn­ing­unni: hvort borg­ar­stjórar geti leikið ein­leik í utan­rík­is­málum? Hvað verður þá um hið full­valda ríki og óskor­aða utan­rík­is­stefnu þartil­bærra stjórn­valda?

Úrelt þjóðríki?

Stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Benjamin Barber sem nú er lát­inn setti fram áhuga­verðar og djarfar hug­myndir um alþjóða­kerfið og þátt borga í því. Hann hélt því fram að þjóð­ríkið væri í raun úrelt fyr­ir­bæri. Það væri í eðli sínu gam­al­dags og byggði á margra alda gömlum hugs­un­ar­hætti sem þjón­aði alls ekki nútíma­kröfum um lýð­ræði og mann­rétt­indi. Borg­irnar væru lyk­il­ger­endur í nútíma­sam­fé­lagi og mun betur í stakk búnar til að tryggja praktískar lausnir á vanda­málum sem hingað til hefur verið talið eðli­legt að sé á for­ræði rík­is­valds­ins að leysa.

Barber benti á að nú þegar sé til öfl­ugt net borga og borg­ar­stjóra sem hafi tekið höndum saman um að leysa erfið mál eins og lög­gæslu og örygg­is­mál, en síð­ast en ekki síst lofts­lags­mál. Þarna spili stóra rullu sú stað­reynd að borg­ar­stjórar hafi van­ist því að þurfa að leysa málin og leggja hefð­bundin valda­stjórn­mál til hliðar. Þar sé grund­vall­ar­at­riðið að valdið komi að neðan þar sem málin séu leyst á praktískan hátt með aðkomu þeirra sem til þekkja.

Barber sagði hið full­valda ríki standa ákveð­inn vörð um þjóð og þjóð­erni innan til­tek­ins ríkis. Hins vegar kall­aði sú þjóð­ern­is­lega sam­staða sem þjóð­ríkið tryggir líka fram útskúfun, aðskilnað og jafn­vel stríð. Hið hefð­bundna ríkja­fyr­ir­komu­lag þjón­aði því ef til vill ekki mark­miðum um að allir jarð­ar­búar gætu búið við vel­megun og frið, væri það tak­markið á annað borð.

Borgarstjórar taka til sinna ráða

Þegar þjóð­ar­leið­togar segj­ast ekki geta eða vilja fórna hags­munum þjóðar sinnar eða ríkis til að stíga afger­andi skref í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum getur einnig búið eitt­hvað allt annað og meira að baki. Bent hefur verið á að t.d. for­seti Banda­ríkj­anna sé jafnan undir miklum þrýst­ingi frá stór­fyr­ir­tækjum sem byggja afkomu sína á olíu- og gasvinnslu og varði ekk­ert um hugs­an­legar lofts­lags­breyt­ingar. Hér krist­all­ast hin klass­íska tog­streita milli stundar- og lang­tíma­hags­muna – gróð­ann í dag gegn tapi morg­un­dags­ins.

Þegar til á að taka getur hið óskor­aða full­veldi ríkis þannig hindrað sam­vinnu í slíkri viður­eign eins og sýndi sig á Kaup­manna­hafn­ar­fund­inum um lofts­lags­breyt­ingar 2009. Þar yfir­gáfu þjóð­ar­leið­tog­arnir fund­inn án sýni­legs árang­urs – hik­andi við að taka ákvarð­anir um íþyngj­andi skuld­bind­ingar vegna óljósrar fram­tíð­ar­hættu. Svar borg­ar­stjóra Kaup­manna­hafnar var hins vegar að bjóða 200 borg­ar­stjórum víðs vegar að úr heim­inum til fundar. Komust þeir að sam­komu­lagi um aðgerðir í lofts­lags­málum, enda kemur meiri­hluti meng­unar frá borgum og þær geta því gert mikið hvað sem aðgerðum rík­is­valds­ins líður.

Aðgerðir borg­ar­yf­ir­valda í Búdapest, sem er umhugað um lýð­ræði, eru and­svar við gjörðum stjórn­valda sem eru til­búin að tryggja ein­ræð­is­veld­inu Kína fót­festu í því sem á að heita evr­ópskt lýð­ræð­is­sam­fé­lag. Með slíkum aðgerðum er Victor Orban í raun að gefa lýð­ræð­is­hug­sjónum Evr­ópu­sam­bands­ins langt nef, eins og margt í hans stjórn­ar­fari gerir reyndar einnig. Um leið nýtir hann sér vog­ar­aflið sem fylgir tengsl­unum við Kína til að tryggja völd sín og færa þau nær ein­ræði.

Mikilvægi þjóðríkisins

Þessar hug­myndir um auk­inn hlut borga í stjórnun heims­mála og borg­ar­stjóra sem leið­toga eru tals­vert sann­fær­andi. Sér­stak­lega þegar kemur að því að bæta almenn lífs­gæði, jafn­vel snúa við þró­un­inni í lofts­lags­málum og tryggja betur lýð­ræði. En ein­leikur ein­stakra borg­ar­stjóra gæti jafn­framt verið vara­samur því ríki þarfn­ast trú­verð­ug­leika og það þarf ákveðna sam­heldni út á við til að tryggja hann.

Skemmst er að minn­ast hug­mynda Jóns Gnarr þáver­andi borg­ar­stjóra Reykja­víkur um að banna komur her­skipa til borg­ar­innar. Þótt hug­myndin sé í sjálfu sér virð­ing­ar­verð hefði slíkt bann getað sett öryggis- og varn­ar­sam­starf Íslend­inga í mikið upp­nám. Að ógleymdum þeim aug­ljósa agnúa að slíkt bann hefði strax sett lífs­nauð­syn­legt sam­starf Íslands og Dan­merkur um björg­un­ar­mál á Norður-Atl­ants­hafi í algert upp­nám, en þau her­skip sem heim­sækja Reykja­vík­ur­höfn oft­ast eru dönsk og sinna land­helg­is­gæslu og leitar- og björg­un­ar­störfum í lög­sögum Færeyja og Græn­lands.

Það beinir sjónum að mik­il­vægi sam­heldni sam­fé­laga. Þjóðríki voru ekki fundin upp til að vera upp á punt, þau eiga sér djúpar rætur sem sprottnar eru úr jarð­vegi sem kall­aði á sam­heldni og sam­taka­mátt. Þjóð­ríkið hefur að mörgu leyti sannað sig að því leyti, má nefna bar­áttu og árangur Íslend­inga í viður­eign­inni við COVID-19. Þar hefur sýnt sig að sam­fé­lag með mikla félags­lega sam­heldni, að miklu leyti byggt á þjóð­ríki með skil­virkar stofn­anir, skiptir sköpum.

Mikilvægi fjölbreyttra samskiptaleiða – þvert á þjóðríkið

Hins vegar er það gömul saga og ný að borgir verða mið­punktur sem fólk sækir til. Á mið­öldum þró­uð­ust borg­ara­leg rétt­indi í borg­ríkjum Evrópu þegar hand­verks­menn og land­eig­endur börðu á borg­ar­hliðin og gerðu til­kall til rétt­inda og aðgangs að borg­unum í krafti stöðu sinnar. Nútíma­höf­uð­borgir eru ekki bara borgir íbú­anna heldur mið­stöð þeirra sem búa í land­inu öllu og í mörgum til­fellum alþjóð­legar mið­stöðvar.

Heim­ur­inn byggir á sam­keppni, landa­mærum og hindr­unum. Þó er hann í raun án landamæra því lofts­lag lýtur ekki landa­mærum, né heldur nútíma sam­skipta­tækni, við­skipti, hryðju­verk og stríð – eða far­sóttir og sjúk­dómar eins og reynslan hefur sann­ar­lega kennt okkur

[adspot]Borgir spila þarna stórt hlut­verk og hafa mögu­leika á því að stækka og blómg­ast án þess að ógna öðrum borgum. Að því leyti eru borgir ólíkar þjóð­rík­inu því þegar ríki vex og dafnar verður það um leið ákveðin ógn við önnur ríki. Það sem gerði fram­tak borgar- og fylk­is­stjór­anna sem brugð­ust við aðgerðum Trumps gagn­vart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu merki­legt er að það er dæmi um vald sem kemur að neðan. Það er á byggt á praktískum for­sendum, en ekki að ofan þar sem for­send­urnar eru óljósar eins og rakið var að framan.

Ein af nei­kvæðu hliðum hnatt­væð­ing­ar­innar er að hún máir út ein­kenni og sér­stöðu fólks og þjóða og getur þannig grafið undan hags­munum hópa, trú og siðum. Það kallar oft á and­stöðu, skerpir átaka­línur og veldur ein­angrun við­kom­andi hópa sem telja sig hlunn­farna. Þjóð­ar­leið­togar sem hall­ast að ein­ræði nýta sér þann ótta sem gjarnan er að baki og skerpa á honum til að tryggja stöðu sína. Fleiri og fjöl­breytt­ari sam­skipta­leiðir fólks og fyr­ir­tækja þvert á þjóð­ríki og landa­mæri, þar sem borgir koma inn með afger­andi hætti, geta átt þátt í brjóta upp eða í það minnsta vega á móti þeirri til­hneig­ingu.

Öflug höfuðborg þarf ekki að vera andstæðingur dreifbýlis

Enginn heldur því fram að lausnin sé að færa valdið frá rík­is­stjórnum í hendur borg­ar­stjóra, ríki og borg þannig teflt fram sem and­stæðum. Hug­myndin varpar hins vegar ljósi á þá stað­reynd að lýð­ræð­inu er kannski ekki sjálf­krafa þjónað á vett­vangi hinna full­valda ríkja. Hugs­an­lega ýtir þetta undir eins­konar sam­keppni um völd á lýð­ræð­is­legum for­sendum, þar sem fleiri koma að málum og gæti verið góð leið til að auka lýð­ræði.

Sé horft til stöðu þess­ara mála hér þá hafa Íslend­ingar eins og aðrir upp­lifað þær miklu breyt­ingar hvar fólk flykk­ist til borg­ar­innar úr sveit­unum með til­heyr­andi fólks­fækkun og hnignun lands­byggð­ar­innar – sem var meg­in­stefið í þróun sam­fé­lags­gerðar á Íslandi á nýlið­inni öld. Hér kynni því ein­hver að hrökkva við þegar rætt er um aukið vægi borga – þá mögu­lega á kostnað lands­byggðar?

Ágætt er að hafa í huga að um 80% lands­manna búa á suð-vest­ur­horn­inu – höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Stjórn­sýsla á svæð­inu er hins vegar ennþá sund­ur­laus og skipt á milli fjölda sveit­ar­fé­laga af hverjum hin eig­in­lega höf­uð­borg Reykja­vík er aðeins einn leik­enda. Engu að síður er það svo Reykja­vík er eina sveit­ar­fé­lag lands­ins sem hefur haft bol­magn til að taka á sig, eða a.m.k. leggur metnað sinn í það, alla lög­bundna starf­semi og þjón­ustu sem rík­is­vald­inu hefur hugn­ast að færa til sveit­ar­fé­laga. Það er því ekki óeðli­legt að Reykja­vík og full­trúar hennar muni vilja taka sér meira pláss á sviði lands- og alþjóða­mála – í umhverfis- og frið­ar­málum sem kynni að þrýsta á íslensk stjórn­völd.

En það þurfa ekki að vera slag­brandar fyrir borg­ar­hlið­unum eins og í borg­ríkj­unum forðum þar sem fólk þurfti að hafa til­tekna stöðu til að fá aðgang. Öflug nútíma­höf­uð­borg er mik­il­vægur vett­vangur þjóð­ar­innar allrar og þyrfti síður en svo að mynda klofn­ing milli borgar og sveitar. Því þó þar séu miklar and­stæður, þá þarfn­ast þær hvor ann­arrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár