Staten Island-hagkerfið

Staten Island er heima­völlur fjöl­margra auð­manna New York-borgar. Frá því árið 2009 hefur skipu­lega verið unnið að upp­bygg­ingu ferða­þjónstu í þess­ari eyju, sem er eitt af fimm lyk­il­hverfum New York.

Útsýnið frá Staten Island, lít­illi eyju sem er skammt undan Man­hattan sem til­heyrir New York borg, er ekki sem verst. Sam­fé­lagið á eyj­unni er merki­legt fyrir margra hluta sakir, þar sem það liggur milli New Jersey og Man­hattan, og mann­lífið ber þess merki. Staten Island er eitt af fimm lyk­il­hverfum New York borgar ásamt Man­hattan, Brooklyn, Queens og Bronx. Kjarninn hefur fjallað um þessi hverfi og inn­viði þeirra að und­an­förnu, og tók einnig sér­stak­lega fyrir hið sögu­fræga Harlem-hverfi, sem til­heyrir Man­hattan.

Þetta hverfi New York-borgar er það sem kemst næst því að vera eins og Ísland, ef svo má að orði kom­ast. Á eyj­unni búa 473 þús­und manns, af 8,9 millj­óna heildar­í­búa­fjölda New York, og bland­ast hóp­ur­inn úr öllum stéttum. Með­al­tekjur eru þó háar, á heild­ina litið, en það stafar meðal ann­ars af því að ákveðin íbúa­hverfi á eyj­unni eru að miklu leyti byggð af hátekju­fólki, meðal ann­ars banka­starfs­mönnum og þekktu fólki úr afþrey­ing­ar­iðn­aði. Á það ekki síst við um hverfi, þar sem eru stórar villur víða og aðgengi að strönd.

Dýrustu eign­irnar sem eru í New York ríki eru á Long Island, nánar til­tekið í Hamptons byggð­inni. Þarf hafa margir sterk­efn­aðir Banda­ríkja­menn komið sér fyrir, eða eiga þar eignir sem nýttar eru í fríum.

Ferjuferðir

Á milli Man­hattan og Staten Island eru stans­lausar ferju­ferðir, á um 30 mín­útna fresti yfir dag­inn, og síðan með aðeins lengra bili um helgar. Ferðin tekur um 25 mín­útur. Margir velja að búa í eyj­unni, en vinna síðan á Man­hattan. Sé horft á hús­næð­is­verð í Staten Island og svo á Man­hattan, þá er sam­bæri­leg íbúð um það bil tvö­falt til þrefalt dýr­ari á Man­hattan. Það getur því verið líf­kjara­bót í því fólgin að leggja ferða­lagið á sig á hverjum degi.

Ein­býl­is­húsin í Staten Island eru hins vegar þau dýr­ustu í New York borg, enda mörg hver glæsi­villur, eins og áður sagði.

Ferðaþjónusta efld

Hverfið, sem er með sér­staka hverf­is­stjórn, sem síðan heyrir undir New York borgar, hefur unnið eftir opin­berri stefnu frá því árið 2009 um að fjölga ferða­mönnum. New York, sem er ein mesta ferða­manna­borg heims­ins með um 50 millj­ónir inn­lenda og erlenda ferða­menn á ári, hefur reynt að horfa til þess að ferða­menn geti heim­sótt fleiri svæði en ein­ungis Man­hattan, og er átak í sér­stökum hverfum borg­ar­innar, ekki síst á Staten Island, hluti af þeirri stefnu að dreifa álag­inu innan borg­ar­innar og auka marg­feld­is­á­hrifin í hag­kerf­inu.

Staten Island er öðru fremur íbúa­hverfi, þó þar sé þjón­ustu­stig hátt og atvinnu­starf­semi hefur farið vax­andi. Vinnu­mark­að­ur­inn telur um 160 þús­und störf. Til sam­an­burðar eru 194 þús­und störf á íslenskum vinnu­mark­aði.

Hvítir Bandaríkjamenn

Sögulega hefur Staten Island lengi verið vígi hvítra Banda­ríkja­manna, og það hefur ekki breyst mikið á und­an­förnum árum. Um 80 pró­sent af íbúum eru að upp­runa banda­rískir og þar af er stór hluti, eða um 90 pró­sent, hvítir. Um tíu pró­sent íbúa eru svartir og síðan hefur íbúum frá Asíu og Súður-Ameríku fjölgað nokkuð á síð­ustu árum, líkt og í flestum öðrum hverfum borg­ar­innar.

Staten Island er umtöluð sem mikil útvistar­perla þar sem fjöl­margir garðar glæða hana lífi og bjóða upp á mikla mögu­leika til úti­vistar, ekki síst fyrir hlaupa og hjól­reiða­fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár