Bronx-hagkerfið

Líkt og í Queens hefur Bronx-hverfið breyst mikið á und­an­d­förnum fjör­tíu árum. Árið 1950 var meira en 90 pró­sen íbúa hvítur, en nú er hlut­fallið 40 pró­sent. Hverfið er heima­svæði New York Yankees, Fordham háskóla og Bronx-dýra­garðs­ins.

„Hey, manstu eftir mér? Benny Blanco úr Bronx-hverf­inu? (Hey, rem­em­ber me? Benny Blanco from The Bronx?)“. Margir mun eftir þess­ari setn­ingu úr stór­mynd­inni Carlito‘s Way, sem end­ur­speglar und­ir­heima New York borgar á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. Myndin, sem kom út 1993, segir frá Carlito Brigante, sem Al Pacino leikur óað­finn­an­lega, og veg­ferð hans um glæp­a­stig­inn í harð­gerðu svörtu hag­kerfi New York-borgar, þar sem hverfa­klíkur berj­ast um völdin. Benny Blanco var bana­biti Brigante, þegar upp var staðið.

Sjálfstæð hverfi

En þó afþrey­ing­ar­iðn­að­ur­inn hafi séð til þess, að hin ýmsu hverfi New York séu þrykkt í minni fólks með teng­ingu við svarta hag­kerfið, þá er raun­veru­leik­inn annar og betri. Líkt og minnst var á í umfjöll­unum um Harlem, Brooklyn og Queens, þá á Bronx sér sjálf­stætt líf sem hag­kerfi, en New York borg hefur unnið eftir skipu­lagðri stefnu, allt frá því Rudy Giuliani tók við sem borg­ar­stjóri árið 1994, að efla hverfin innan frá, ekki síst í gegnum skipu­lag borg­ar­innar. Michael Bloomberg, borg­ar­stjór­inn sem tók við af Giuliani 2001, fylgdi þess­ari stefnu síðan áfram, og það sama hefur De Blasio gert, sem nú er borg­ar­stjóri. Mark­miðið er að stuðla að meiri sjálf­bærni í hverfum, með það í huga að efla heild­ar­mynd borgar-hag­kerf­is­ins.

Einn af mátt­ar­stólp­unum í ímynd New York, heima­völlur hafna­boltaliðs­ins New York Yankees (Yankess Stadium), er í Bronx líkt og hinn risa­vaxni dýrag­aður Bronx Zoo. Þá hefur Fordham háskóli höfðu­vígi sitt í hverf­inu, en starf­semi hans teygir sig þó víðar um borg­ina.

Fjölbreytt mannlíf

Í Bronx býr um 1,5 milljón manna, og eru um 40 pró­sent íbúa svartir. Í heild­ina búa um 8,9 millj­ónir manna í New York borg. Um 40 pró­sent íbúa eru hvítir sem er mikil breyt­ing frá því sem var um miðja síð­ustu öld þegar um 96 pró­sent íbúa voru hvítir Banda­ríkja­menn. Nú kemur fólk víða að úr heim­inum, Afríku, Asíu og Suður-Ameríku ekki síst.

Af fólki 25 ára og eldri er tæp­lega 30 pró­sent með BA gráðu úr háskóla eða meira, sem telst fremur lágt miðað við önnur hverfi borg­ar­innar. Vinnu­mark­að­ur­inn í hverf­inu er stór, um 500 þús­und manns, en til sam­an­burðar er heild­ar­vinnu­mark­að­ur­inn á Ísland 194 þús­und manns.

Spænska móðurmál hjá flestum

Tæplega 800 þús­und íbúar af heild­ar­fjöld­anum eru spænsku­mæl­andi, og hefur það mikil áhrif á menn­ing­ar­strauma og atvinnu­líf. Þjón­ustu­störf, ekki síst í versl­unar- og veit­ing­ar­geir­anum, eru stór hluti af heild­ar­jfölda starfa í hverf­inu, en opin­ber störf eru einnig fjöl­mörg, ekki síst í kringum Fordham-háskóla, sem er hálf­op­in­ber háskóli, söfn, íþrótta­leik­vanga á svæði New York borgar, skólum og sam­göngu­æðum hverf­is­ins. Einka­geir­inn hefur vaxið und­an­farin ár umtals­vert, eða um rúm­lega fjögur pró­sent á ári, sam­kvæmt upp­lýs­ingum New York borgar. En ákveð­inn hluti Bronx-hverf­is­ins, suður-Bronx, er þar und­an­skil­inn.

Þar hefur gengið erf­ið­lega að brjóta á bak aftur fátækt og félags­lega erf­ið­leika. Þar er atvinnu­leysi meira en 20 pró­sent en í hverf­inu heilt yfir er það 8,3 pró­sent, sem er það hæsta af öllum fimm kjarna­hverfum New York borgar (Man­hattan, Queens, Brooklyn, Staten Island, og Bronx). Um 14,8 pró­sent af heildar­í­búa­fjölda hverf­is­ins býr við fátækt­ar­mörk eða undir þeim, og er nær allur sá hópur í suð­ur­hluta Bronx.

Að með­al­tali eru hverfin í New York með rúm­lega fimm pró­sent atvinnu­leysi en á lands­vísu er það litlu minna, eða 4,9 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár