Björgólfur Thor vill selja Nova - Verðið ekki undir 15 milljörðum

Novator, fjár­fest­inga­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, vill selja fjar­skipta­fyr­ir­tækið Nova. Það er nú með mesta mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði á Íslandi og yfir­burð­ar­stöðu í gagna­magns­notkun á far­síma­neti.

Novator, fjár­fest­inga­fé­lag í meiri­hluta­eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, hefur sett fjar­skipta­fyr­ir­tækið Nova í sölu­ferli. Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Kviku banka sér um ferlið og er áætlað að það taki um tvo til þrjá mán­uði. Ragn­hildur Sverr­is­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Novator, segir að heild­ar­virði Nova sé ekki undir 15 millj­örðum króna í dag. Novator á 94 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu en stjórn­endur þess, m.a. Liv Berg­þórs­dóttir for­stjóri, eiga sex pró­sent hlut. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Í sam­tali við blaðið leggur Ragn­hildur þó áherslu á að um þreif­ingar sé að ræða. Það sé ekk­ert víst að hlut­ur­inn verði seldur.

Með mesta markaðshlutdeild á farsímamarkaði

Kjarninn greindi frá því á fimmtu­dag að

Nova er orðið það fjar­skipta­fyr­ir­tæki sem er með mest­a ­mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði á Íslandi.

Þetta kemur fram í

nýrri töl­fræði­skýrslu ­Póst- og fjar­skipta­stofn­unar

um stöð­una á fjar­skipta­mark­að­i í lok árs 2015 sem birt var á þriðju­dag.

Alls eru 34 pró­sent allra áskrifta á far­síma­neti hjá Nova en 33,8 pró­sent hjá Sím­an­um. Voda­fone er í þriðja sæti með­ 28,1 pró­sent og 365, sem boðið hefur upp á fjar­skipta­þjón­ustu með síma og inter­neti frá haustinu 2013, er með 3,4 pró­sent hlut­deild.

Staðan á þessum mark­aði hefur breyst hratt á und­an­förn­um ár­um. Um mitt ár 2008, hálfu ári eftir að Nova hóf starf­semi, var Sím­inn með 56,6 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði og Voda­fone með 36,4 pró­sent. Sam­an­lögð mark­aðs­hlut­deild ­fyr­ir­tækj­anna tveggja var því 93 pró­sent. Nú er hún um 62 pró­sent.

Með sterkustu stöðuna í notkun gagnamagns

Nova er með lang­sterk­ustu stöð­una þegar kemur að notkun gagna­magns á far­síma­net­i. ­Mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þeim mark­aði er 64,6 pró­sent á meðan að Sím­inn er með 18,3 pró­sent og Voda­fone með 12,8 pró­sent. Ein­ungis 4,1 pró­sent af ­gagna­magns­notkun á far­síma­neti í fyrra var á meðal við­skipta­vina 365.

Þessi ­notkun segir þó ekki alla sög­una. Uppi­staðan af gagna­magns­notkun Íslend­inga á sér­ ­stað á fasta­net­inu. Þ.e. Íslend­ingar reyna frekar að vera með snjall­tækin sín tengd fasta­neti heima hjá sér og á vinnu­stöðum frekar en að not­ast við 3G eða 4G kerfin til að ná sér í gögn. Á fasta­net­inu er Sím­inn með mjög sterka stöð­u. Alls eru 48,8 pró­sent allra inter­netteng­inga á Íslandi hjá Sím­an­um.

Nova hefur ekki selt inter­net­þjón­ustu með öðrum hætti en í gegnum far­síma­kerfi á und­an­förnum árum. Á því varð breyt­ing í síð­asta mán­uði þegar að fyr­ir­tæk­ið til­kynnti að það ætl­aði að hefja ljós­leið­ara­þjón­ust­u. Því mun sam­keppnin þar aukast til muna á næst­unni.

Aftur orðinn á meðal ríkustu manna heims

Björgólfur Thor er aftur orð­inn á meðal rík­­­ustu manna heims­, sam­­kvæmt lista For­bes, en auð­æfi hans eru metin á 1,6 millj­­arða Banda­­ríkja­dala, eða sem nemur 208 millj­­örðum króna. Björgólfur Thor er núm­er 1.121 á lista For­bes yfir rík­­asta fólk heims­ins. Hann fór hæst í 249. sæti árið 2007. Eignir Björg­­ólfs Thors eru meðal ann­­ars í fjar­­skipta­­fé­lög­unum Play í Pól­landi og WOM í Chile, auk þess að eiga eign­­ar­hluti í félög­unum Xantis Pharma og All­erg­an líkt og áður sagði.

Björgólfur Thor var á barmi gjald­­þrots eftir hrun fjár­­­mála­­kerf­is­ins, og í per­­són­u­­legum ábyrgðum fyrir tug­millj­­arða­skuld­um, en tókst að semja við kröf­u­hafa sína, halda eign­­ar­hlutum í stórum fyr­ir­tækj­um, meðal ann­­ars Act­­a­vis, sem síðan hefur sam­ein­­ast öðrum félögum og stækk­­að, og þannig ná vopnum sínum á nýjan leik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár