Umsvifamikil viðskipti Lofts Jóhannessonar rakin í Panamaskjölunum

Loftur er sagður hafa auðg­ast á við­skiptum við banda­rísku leyni­þjón­ust­una CIA. Hann er tengdur í það minnsta fjórum félögum í þekktum skatta­skjólum, sam­kvæmt umfjöllun Irish Times.

Í umfjöllun Irish Times um Panama­skjölin, kemur nafn Lofts Jóhann­es­son, 85 ára gam­als Íslend­ings, sem búsettur er í Banda­ríkj­unum, ítrekað fyrir vegna félaga sem skráð voru á Panama. Hann er sagður hafa stundað umsvifa­mikla vopna­sölu sem rakin er til leyni­þjón­ustu Banda­ríkj­anna CIA.

Hann er sagður hafa auðg­ast veru­lega, einkum á sjö­unda, átt­unda og níunda ára­tug síð­ustu aldar, þegar leyni­þjón­ustan fjár­magn­aði hern­að­ar­að­gerðir víða um heim gegn komm­ún­ista­stjórnum og upp­gangi komm­ún­ista, eins og það er orðað í umfjöllun Irish Times og heim­ilda sem blaðið vísar til. Sér­stak­lega er hann tengdur við slíkar aðgerðir í Afganistan.

Loftur gengdi hlut­verki milli­göngu­að­ila í vopna­kaupum, sam­kvæmt umfjöll­un­inni. Tals­maður hans neitar þessu alfarið, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá alþjóða­sam­tökum blaða­manna, ICIJ, sem Irish Times vitnar til. Tals­mað­ur­inn segir Loft ekki hafa tengst CIA, en engar frekar skýr­ingar eru gefnar á því við­skipta­legum umsvifum hans.

Í gögn­unum, þar sem lög­mann­stofan Mossack Fonseca er í forg­unni líkt og í umfjöllun Kjarnans og RME á vef Kjarnans í gær, segir að Loftur hafi keypt vín­ekru í Frakk­landi og heim­ili á Barbados. Hann er tengdur við í það minnsta fjögur félög í Panama­skjöl­unum, sem eru í þekktum skatta­skjólum á Bresku jóm­frú­areyj­unum og í Panama. Í jan­úar 2015 greiddi hann þús­undir Banda­ríkja­dala til Mossack Fonseca, að því er segir í umfjöll­un­inni.

Eign­irnar hlaupa á tugum millj­óna Banda­ríkja­dala, og er sér­stak­lega vitnað til eignar á Barbados, sem sé sam­bæri­leg þeirri sem Loftur á, sem sé virði 35 millj­óna Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 4,5 millj­örðum króna.

Í bók­inni Íslenskir millj­arða­mær­ingar, eftir Pálma Jónasson, frétta­mann, frá árinu 2001, er Loftur einn þeirra sem sagður er eiga meira en millj­arð króna í hreinni eign. Hann var á árum áður flug­maður og kom að flug­rekstri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

panamapapers

Erlent

Mossack Fonseca lokar skrif­stofum

Panamíska lög­fræði­fyr­ir­tækið Mossack Fonseca ætlar að loka úti­búum sínm á bresku eyj­unum Jersey, Mön og á Gíbraltar. Við­skipta­vinum á svæð­inu verður áfram sinnt, þó að skrif­stofum sé lokað. Fyr­ir­tækið greindi frá þessu á Twitter í gær­kvöldi. Ósátt við fjöl­miðlaum­fjöllun Þar sendir Mossack Fonseca einnig frá sér yfir­lýs­ingu vegna fjöl­miðlaum­fjöll­unar und­an­farnar vikur. Þar segir að nýlegar fréttir hafi birt óná­kvæma mynd...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár