Bankasýslan segir að ranglega hafi verið staðið að sölunni á Borgun

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans. Mynd: Landsbankinn Landsbankinn

Lands­bank­inn hefði átt að standa öðru­vísi að söl­unni á hlut sínum í Borgun en gert var. Setja hefði átt hlut­inn í opið sölu­ferli og rök­stuðn­ingur bank­ans fyrir því að það hafi ekki verið gert er ófull­nægj­andi. Leiðin sem var valin olli Lands­bank­anum tjóni og skerti bæði traust og trú­verð­ug­leika bank­ans. Það sé mjög alvar­legt mál. Þetta er álit Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum, sem kynnt var á fundi fjár­laga­nefndar í morgun. Frá þessu er greint á mbl.is.

Banka­sýslan hefur enn fremur birt bréf sem hún sendi til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um Borg­un­ar­söl­una á vef sínum. Þar segir að það sé nið­ur­staða Banka­sýsl­unnar að „sölu­með­ferðin hafi varpað veru­legum skugga á árangur Lands­bank­ans und­an­farin miss­eri og að fag­leg ásýnd bank­ans og stjórn­enda hans hafi beðið hnekki.[...]Mik­il­vægt er að Lands­bank­inn end­ur­heimti traust eig­enda sinna, við­skipta­vina og fjár­festa sem og almenn­ings í land­inu. Af þeim þeim sökum telur Banka­sýsla rík­is­ins að banka­ráð Lands­bank­ans verði að grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana til að end­ur­heimta það traust sem bank­inn tap­aði vegna sölu­með­ferð­ar­innar. Fer stofn­unin fram á að hlut­höfum í Lands­bank­anum hf. verði hið fyrsta gerð grein fyrir því með hvaða hætti banka­ráðið telur rétt að bregð­ast við og ekki siðar en tveimur vikum fyrir aðal­fund sem fram fer þann 14. apríl nk."

Lands­bank­inn sendi í kjöl­farið frá sér til­kynn­ingu þar sem bank­inn sagði að hann myndi svara Banka­sýsl­unni innan þess frests sem gef­inn hefur verið og að svarið verði birt opin­ber­lega. Í til­kynn­ing­unni kemur einnig fram að Fjár­mála­eft­ir­litið muni birta álit sitt á söl­unni innan nokk­urra daga.

Umfangsmikil umfjöllun um söluna á Borgunarhlutnum

Kjarninn hóf umfjöllun um sölu Lands­bank­ans á 31,2 pró­sent hlut sínum í Borgun fyrir 2,2 millj­arða króna í lok nóv­em­ber 2014. Þá upp­lýsti hann, í frétta­skýr­ingu eftir Magnús Hall­dórs­son, að hlut­ur­inn hefði verið seldur bak­við luktar dyr og hvaða fjár­festar það höfðu verið sem keyptu hlut­inn. Magnús hlaut blaða­manna­verð­laun Blaða­manna­fé­lags Íslands fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku vegna umfjöll­unar um Borg­un­ar­söl­una í byrjun mars. Rit­stjórn Kjarnans hafði verið til­nefnd til sömu verð­launa árið áður fyrir umfjöllun sína um söl­una á hlut Lands­bank­ans í Borgun.

Í kjöl­farið sýndi Kjarninn meðal ann­ars fram á að miðað við hefð­bundna mæli­kvarða sem fjár­festar styðj­ast við í fjár­fest­ingum hafi verðið sem greitt var fyrir verið lágt, hvort sem miðað er við fyr­ir­tæki erlendis eða skráð fyr­ir­tæki á Íslandi. Kjarninn skoð­aði einnig ítar­lega eig­enda­stefnu rík­is­ins þegar kemur að eign­ar­hlutum í bönkum, og hvort salan á eign­ar­hlutnum, bak við luktar dyr, sam­ræmd­ist henni. Enn fremur voru skrif­aðar sam­an­tektir um fyrri við­skipti og sam­keppn­is­sjón­ar­mið sem meðal ann­ars ítar­lega um eig­enda­stefnu rík­is­ins þegar kemur að eign­ar­hlutum í bönkum, og hvort salan á eign­ar­hlutnum, bak við luktar dyr, sam­ræmd­ist henni.

Hinn 29. apríl í fyrra var síðan frá því greint að nýir eig­endur Borgunar hefðu notið góðs af við­skipt­unum nokkrum mán­uðum fyrr, en sam­þykkt var að greiða 800 millj­ónir til hlut­hafa í arð, í fyrsta skipti frá árinu 2007. Þetta vakti upp spurn­ingar, meðal ann­ars á hinu póli­tíska sviði, um hvort hlut­ur­inn hefði verið seldur á und­ir­verði. 

Hálfum mán­uði síðar, var síðan greint frá því að Lands­bank­inn hefði aug­lýst til sölu lít­inn eign­ar­hlut í Borgun, sem hann eign­að­ist við yfir­töku á Spari­sjóði Vest­manna­ey­inga, sam­tals 0,41 pró­sent hlut. Í þetta skiptið var ákveðið að hafa sölu­ferlið opið, en banka­ráð Lands­bank­ans, með Tryggva Pálsson sem for­mann, hafði þá við­ur­kennt mis­tök við söl­una á eign­ar­hlutnum í Borgun, og að betra hefði verið að selja hlut­inn í opnu sölu­ferli. Kom þetta fram í ræðu hans á aðal­fundi bank­ans. 

Lands­bank­inn neit­aði að gefa upp sölu­verðið á 0,41 pró­sent hlutnum í fyrstu, en upp­lýsti svo um það í jan­úar á þessu ári, þegar salan var aftur í brennid­epli. Þá höfðu Morg­un­blaðið og 365 miðlar fjallað ítar­lega um innra virði Borgunar, meðal ann­ars eftir að upp­lýs­ingar komu fram um það að félagið myndi hagn­ast veru­lega á því að fá hlut­deild í alþjóð­legum við­skiptum VISA Europe og VISA Inc.

Hér er hægt að lesa ítar­lega sam­an­tekt á helstu stað­reyndum Borg­un­ar­máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár