Landsbankinn auglýsti 0,41 prósent í Borgun til sölu

Lands­bank­inn aug­lýsti 0,41 pró­sent hlut sinn í Borgun til sölu fyrir fjár­festa sem upp­fylla skil­yrði um hæfi. Var aug­lýs­ing þess efnis birt á vef Lands­bank­ans um miðjan apríl.

Þann 29. mars 2015 var Spari­sjóður Vest­manna­eyja ses. sam­ein­aður Lands­bank­anum hf. Við sam­ein­ing­una eign­að­ist bank­inn 1.806.611 hluti í Borgun hf. Eign­ar­hlut­ur­inn nemur 0,41% heild­ar­hluta­fjár í félag­inu.

„Lands­bank­inn býður hæfum fjár­festum, eins og þeir eru skil­greindir í 9. tl. 43. gr. laga um verð­bréfa­við­skipti nr. 108/2007, þennan eign­ar­hlut til kaups,“ segir á vefnum.

Tilboð í eign­ar­hlut­inn átti að senda til Fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Lands­bank­ans með bréfi eða tölvu­pósti á net­fangið fyrirtaekjaradgjof@landsbankinn.is fyrir klukkan 16:00 þann 4. maí 2015. Ekki liggur fyrir hversu margir sýndu áhuga á að kaupa hlut­inn eða skil­uðu inn til­boði.

Lands­bank­inn áskilur sér rétt til að hafna öllum þeim til­boðum sem ber­ast í eign­ar­hlut­inn, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem fram kom í aug­lýs­ingu á vef bank­ans. „Lands­bank­inn vekur athygli á að hann er ekki í aðstöðu til að afhenda gögn um fjár­hag eða fjár­hags­upp­lýs­ingar um félagið, en vísar til árs­reikn­inga þess, sem má nálg­ast hjá árs­reikn­inga­skrá. Þá er vakin athygli á því að eig­andi meiri­hluta hluta­fjár í Borgun hf. er jafn­framt einn stærsti við­skipta­vinur félags­ins,“ segir í aug­lýs­ingu Lands­bank­ans, og er þar vitnað til Íslands­banka.

Eins og Kjarninn greindi frá, var 31,2 pró­sent hlutur Lands­bank­ans seldur bak við luktar dyr til val­inna fjár­festa, en sölu­ferlið var á þeim tíma lokað og ekki aug­lýst. Tryggvi Pálsson, for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, sagði á aðal­fundi bank­ans að það hefðu verið mis­tök að aug­lýsa ekki hlut­inn til sölu, en íslenska ríkið er eig­andi rúm­lega 98 pró­sent hluta­fjár í bank­anum. Lands­bank­inn fékk 2,2, millj­arða fyrir hlut­inn, en gengið frá söl­unni í lok árs í fyrra. Í febr­úar á þessu ári var í fyrsta skipti greiddur arður úr félag­inu frá því árið 2007, sam­tals 800 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár