Blaðamannaverðlaun veitt - Magnús verðlaunaður fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins

Blaða­manna­verð­laun Íslands voru veitt í dag við hátíð­ar­lega athöfn í Perlunni, og var ljós­mynda­sýn­ing blaða­ljós­mynd­ara opnuð á sama tíma. Sunna Ósk Loga­dóttir, Morg­un­blað­inu, fékk blaða­manna­verð­laun árs­ins fyrir áhrifa­mikla umfjöllun um heim­sókn sína til Líbanon þar sem hún ræddi við sýr­lenska flótta­menn og starfs­menn flótta­manna­búða til að kynna sér aðstæður þeirra flótta­manna sem veitt hafði verið hæli á Íslandi.

Magnús Hall­dórs­son, blaða­maður Kjarnans, var verð­laun­aður fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins, vegna umfjöll­unar um sölu Lands­bank­ans á eign­ar­hlutum sínum í Borgun.

Snærós Sindra­dóttir, blaða­maður 365 miðla, fékk verð­laun fyrir við­tal árs­ins, við Einar Zeppelin Hild­ar­son, sem sagði frá erf­iðri lífs­reynslu sinni og fjöl­skyldu hans.

Gísli Ein­ars­son, Ingólfur Bjarni Sig­fús­son, Karl Sig­tryggs­son og Ragnar Santos, frétta­stofu RÚV, unnu til verð­launa fyrir umfjöllun árs­ins.

Þeir fengu verð­launin fyrir umfjöllun um flótta­manna­vand­ann sem geisar í Evrópu. Með inn­lendu sjón­ar­horni á björg­un­ar­störf áhafnar Týs á Mið­jarð­ar­hafi og við­tölum við fórn­ar­lömb á ver­gangi í Ung­verja­landi og Líbanon fengu lands­menn mik­ils­verða inn­sýn inn í erf­iða ferð flótta­manna í leit að öryggi.

Til­nefn­ing­arnar voru eft­ir­far­andi.

Viðtal árs­ins 2015

Helgi Bjarna­son, Morg­un­blað­inu.

Fyrir við­tal við Þröst Leó Gunn­ars­son um sjó­slysið úti af Aðalvík í júlí í fyrra­sumar. Þresti Leó tókst fyrir snar­ræði að bjarga tveimur félögum sínum en sá þriðji fórst. Björg­un­ar­tæki brugð­ust ger­sam­lega og fær Helgi ein­stæðar lýs­ingar Þrastar Leó á hug­ar­á­standi þre­menn­ing­anna á meðan þeir biðu björg­unar.

Reynir Trausta­son, Stund­inni.

Fyrir við­tal við Ástu Kristínu Andr­és­dóttur hjúkr­un­ar­fræð­ing sem sökuð var um mann­dráp af gáleysi. Reynir gerir lífs­hlaupi Ástu Krist­ínar góð skil og fær við­mæl­anda til að tala mjög opin­skátt um hvernig þessi atburður hefur markað líf hennar, hvernig hún hefur barist við kvíða og reynt að við­halda lífs­vilj­anum.

Snærós Sindra­dóttir, Frétta­blað­inu.

Fyrir við­tal við Einar Zeppelin Hild­ar­son, ungan mann, sem á að baki afar erf­iða lífs­reynslu. Einar segir á ein­lægan hátt frá örlaga­deg­inum þegar mamma hans varð systur hans að bana en sjálfur slapp hann slas­aður frá hild­ar­leiknum. Snærós segir áhrifa­mikla sögu manns og dregur fram mikla þraut­seigju, góða mann­kosti og kær­leika.

Umfjöllun árs­ins 2015

Gísli Ein­ars­son, Ingólfur Bjarni Sig­fús­son, Karl Sig­tryggs­son og Ragnar Santos, frétta­stofu RÚV.

Fyrir umfjöllun um flótta­manna­vand­ann sem geisar í Evrópu. Með inn­lendu sjón­ar­horni á björg­un­ar­störf áhafnar Týs á Mið­jarð­ar­hafi og við­tölum við fórn­ar­lömb á ver­gangi í Ung­verja­landi og Líbanon fengu lands­menn mik­ils­verða inn­sýn inn í erf­iða ferð flótta­manna í leit að öryggi.

Helgi Seljan, Kastljós RÚV.

Fyrir umfjöllun um nauðg­anir, áreitni og ofbeldi gagn­vart þroska­höml­uðum konum. Ljóstrað var upp um sinnu­leysi yfir­valda sem héldu ekki hlífi­skildi yfir kon­unum, settu ekki reglur um umönnun þeirra og huns­uðu kvart­anir. Af virð­ingu og með áhrifa­ríkum hætti var saga kvenn­anna sögð og sjón­ar­miði þeirra komið á fram­færi.

Krist­jana Björg Guð­brands­dóttir og Viktoría Her­manns­dóttir, Frétta­blað­inu.

Fyrir ítar­lega umfjöllun um man­sal þar sem fjallað var um umfang og ein­kenni mansals á Íslandi og bresti í aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda. Frétta­skýr­inga­röð þeirra varp­aði ljósi á vax­andi mansals­vanda hér á landi þar sem ein­stak­lingar eru mis­not­aðir í kyn­ferð­is­legum til­gangi, til nauð­ung­ar­vinnu eða í glæp­a­starf­semi.

Blaða­manna­verð­laun árs­ins 2015

Hörður Ægisson, DV.

Fyrir skýra og greina­góða umfjöllun um slitabú föllnu bank­ana, vog­un­ar­sjóð­ina sem þá keyptu sem og útgöngu­samn­inga þeirra við íslensk stjórn­völd. Hörður hefur upp­lýst stöðu mála af djúpri þekk­ingu og nákvæmni í máli sem hefur rík áhrif á þjóð­ar­búið.

Ingi­björg Kjart­ans­dóttir, Stund­inni.

Fyrir fjöl­breytta og mik­il­væga umfjöllun um kyn­bundið ofbeldi. Í fjöl­mörgum greinum gaf Ingi­björg þolendum kyn­bund­ins ofbeldis og kyn­ferð­is­brota vett­vang að tjá sig um sína upp­lifun af brot­unum, upp­lýsti um hve víða í sam­fé­lag­inu þessi brot er að finna og hversu erfitt er fyrir fórn­ar­lömb að leita rétt­lætis vegna þeirra

Sunna Ósk Loga­dóttir, Morg­un­blaðið/mbl.is.

Fyrir áhrifa­mikla umfjöllun um heim­sókn sína til Líbanon þar sem hún ræddi við sýr­lenska flótta­menn og starfs­menn flótta­manna­búða til að kynna sér aðstæður þeirra flótta­manna sem veitt hafði verið hæli á Íslandi.

Rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins 2015

Ingi Freyr Vil­hjálms­son, Stund­inni.

Fyrir afhjúp­andi umfjöllun sína um fjár­hags­leg tengsl Illuga Gunn­ars­sonar mennta­mála­ráð­herra og eign­ar­halds­fé­lags hans OG Capital við fyr­ir­tækið Orka Energy. Í ljós komu veru­legir hags­muna­á­rekstrar vegna sam­starfs­samn­ings íslenskra og kín­verskra stjórn­valda í orku­málum sem Orka Energy var aðili að og ráð­herr­ann rit­aði undir.

Kolbeinn Tumi Daðason 365 miðlum.

Fyrir upp­ljóstrandi umfjöllun um óánægju lög­reglu­manna með störf lög­reglu­full­trúa í fíkni­efna­deild og alvar­legar ásak­anir sam­starfs­fé­laga hans vegna gruns um tengsl hans við fíkni­efna­heim­inn. Upphaf umfjöll­un­ar­innar var tál­beitu­að­gerð við Hótel Frón sem fór út um þúfur.

Magnús Hall­dórs­son Kjarn­anum.

Fyrir ítar­lega umfjöllun um sölu á hlutum Lands­bank­ans í Borgun í lok­uðu sölu­ferli og vís­bend­ingar um að hlutur Lands­bank­ans hafi verið seldur á und­ir­verði m.a. í ljósi aðgreiðslna og því hafi ekki verið gætt að hags­munum eig­enda sem er almenn­ingur í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár