Reykjavík er í 29. sæti yfir dýrustu borgir heims

Reykjavík hefur fallið hratt á listanum yfir dýrustu borgir heims eftir hrunið.
Reykja­vík hefur fallið hratt á list­anum yfir dýr­ustu borgir heims eftir hrunið. Mynd: Nika Kramer

Reykja­vík er í 29. sæti yfir dýr­ustu borgir heims sam­kvæmt nýrri sam­an­tekt The Economist sem birt var á fimmtu­dag. Tíma­ritið tekur reglu­lega saman hvað það kostar að búa í öllum elstu borgum heims og hefur gert það árum saman. Því ofar sem borg er á list­anum því betur gengur íbúum hennar efna­hags­lega og því eft­ir­sókn­ar­verð­ara þykir að búa í þeim. Fyrir tíu árum síðan, árið 2006, var Reykja­vík í þriðja sæti yfir dýr­ustu borgir heims. Fall íslensku höf­uð­borg­ar­innar á eft­ir­hrunsárum er því umtals­vert. Staða hennar á meðal borga heims hefur þó bragg­ast á und­an­förnum árum. Árið 2013 var Reykja­vík í 47. sæti á lista The Economist. Nýi list­inn sýnir stöð­una eins og hún var í sept­em­ber 2015.

Listinn um kostnað sem fylgir búsetu í borgum heims­ins er tek­inn saman tvisvar á ári. Hann nær til 131 borgar og við gerð hans eru borin saman um 400 verð á um 160 mis­mun­andi þjón­ustum og vörum sem hægt er að kaupa í borg­unum. Þeirra á meðal eru matur, drykkir, föt, nauð­synja­vörur heim­il­is­ins, hús­næð­is­kostn­aður, kostn­aður vegna orku-, vatns- og net­kaupa, mennt­un­ar­kostn­aður og kostn­aður við tóm­stundir og skemmtun. Mæli­kvarð­inn sem not­aður er til að stað­setja borg­irnar í sæti á list­anum er hlut­falls­legur kostn­aður þess að búa í þeim sama­borið við New York. Það kostar Reyk­vík­inga t.d. 83 pró­sent af því sem það kostar að búa í New York að draga fram lífið.

[adspot]

Singapúr er dýrasta borg í heimi sam­kvæmt nýjasta list­anum og heldur því sæti frá því að hann var birtur síð­ast. Hún hefur þó dalað í verði á milli ára og er nú tíu pró­sent ódýr­ari í sam­an­burði við New York en árið áður.Styrking á gengi Banda­ríkja­dals gerði það að verkum að allar 16 borgir lands­ins sem skoð­aðar eru við gerð list­ans fóru upp um að minnsta kosti 15 sæti á milli ára. New York er nú í fyrsta sinn í 14 ár á meðal tíu dýr­ustu borga heims. Fimm Evr­ópu­borgir eru á meðal tíu dýr­ustu borg­anna. Þær eru Zürich, Genf, París, London og Kaup­manna­höfn.

Ódýrasta borgin á list­anum er Lusaka, höf­uð­borg Sambíu. Að búa þar kostar ein­ungis 41 pró­sent af því sem það kostar að búa í New York. Lækkandi verð á hrá­vöru, og sér­stak­lega olíu, hefur gert nokkrar borgir sem hafa verið á mik­illi efna­hags­legri sigl­ingu á und­an­förnum árum mun ódýr­ari en þær voru. Þar ber helst að nefna Ríó, höf­uð­borg Brasilíu, sem fellur um heil 52 sæti á list­anum milli birt­inga, og stærstu borgir Rúss­lands, Moskvu og St. Pét­urs­borg, sem falla um 63 og 51 sæti. Í Rúss­landi lækk­aði kostn­aður við búsetu í þessum borgum um 40 pró­sent á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár