Leigukynslóðin borgar leigu sem er ígildi 100 prósent íbúðaláns

Fyrstu kaup­endur að íbúð á Íslandi eru að með­al­tali 29 ára gamlir og vilja helst búa í Reykja­vík. Fyrstu kaup­endum fjölg­aði um 25 pró­sent í fyrra og þeir voru þá 23 pró­sent af öllum fast­eigna­kaup­endum á land­inu.

Margir leigj­endur eru þó í eig­in­fjár­vanda, sem gerir þeim erfitt fyrir að eign­ast hús­næði, vegna hárrar húsa­leigu. Þ.e. þeir eiga í erf­ið­leikum með að safna saman fyrir útborgun fyrir hús­næði þar sem lána­stofn­anir lána að jafn­aði ein­ungis fyrir 80 pró­sent af kaup­verði þeirra. Leigu­kyn­slóðin sem upp er komin á Íslandi er nefni­lega oft á tíðum að standa undir leigu­greiðslum sem eru ígildi 100 pró­sent íbúða­láns. Það þýðir að ef leigj­and­inn keypti íbúð­ina sem hann býr í og myndi fá allt kaup­verðið lánað þá væri hann að borga að jafn­aði það sama í af lán­inum og hann greiðir í leigu. Við slíkar aðstæður er afar erfitt að leggja fyrir fyrir til íbúða­kaupa.

Þetta er meðal þess sem kom fram í erindi Magnúsar Árna Skúla­sonar hag­fræð­ings um stöðu á hús­næð­is­mark­aði sem Íbúða­lána­sjóður stóð fyrir í dag. Hægt er að lesa glærur Magnúsar Árna af fund­inum hér.

Raunverð hækkað um 26 prósent á fimm árum

Í erindi Magnúsar Árna kom fram að velta þing­lýsta kaup­samn­inga með hús­næði á land­inu öllu hafi vaxið um 22 pró­sent í fyrra, á föstu verð­lagi, og hún jókst í öllum lands­hlutum. Mestur var vöst­ur­inn á Norð­vest­ur­landi þar sem veltan tvö­fald­að­ist. Fjöldi kaup­samn­inga jókst enn fremur um 20 pró­sent á sama tíma. Innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins jókst veltan mest í Garðabæ, eða um 58 pró­sent, en minnst á Sel­tjarn­ar­nesi, um tvö pró­sent.

Raunverð íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 6,7 pró­sent og frá des­em­ber 2010 hefur það hækkað um rúm­lega 26 pró­sent. Mest varð hækk­unin á því tíma­bili árið 2014, þegar raun­verðið hækk­aði um 8,8 pró­sent.

Um 80 pró­sent allra kaup­samn­inga um fjöl­býli eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en 56 pró­sent kaup­samn­inga þar sem sér­býli eru keypt eru utan þess.

Íslendingar sólgnir í 40 ára lánin

Magnús Árni fór yfir tölur sem sýndu að efitr­spurn eftir hús­næði eykst hratt á sama tíma og fram­boðið þok­ast hægt upp ávið. Full­gerðum íbúðum fer og hægt fjölg­andi og þær hafa enn ekki náð með­al­tali síð­ustu ára­tuga. Óum­flýj­an­lega leiðir slík umfram­eft­ir­spurn til hækk­unar á eign­ar­verði.

Hann benti þó á að fyrstu kaup­endur væru ört vax­andi hópur og að ýmis­legt benti til þess að staða þeirra færi batn­andi, til minna atvinnu­leysi, aukin kaup­máttur, fleiri lána­mögu­leikar og ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar til íbúða­kaupa.

Þótt þeim sem búa í eigin hús­næði fari hlut­falls­lega fækk­andi á Íslandi er hlut­fall þeirra enn afar hátt í alþjóð­legum sam­an­burði. Alls búa um 80 pró­sent lands­manna í eigin hús­næði. Aðeins tæp­lega helm­ingur Dana búa í eigin hús­næði og 20 pró­sent Þjóð­verja. Einungis á Spáni, Írland, Grikk­landi og Noregi er eign­ar­hald á íbúða­hús­næði hærra en hér.

Þrátt fyrir miklar umræður á árunum eftir hrun um lengd íslenskra íbúða­lána og vaxta­kjör þeirra þá aukast vin­sældir 40 ára íbúða­lána ár frá ári. Þau eru lang­vin­sæl­ustu hús­næð­is­lánin sem tekin eru á Íslandi. Ástæður þess eru fremur ein­faldar: þau gera fleirum kleift að stand­ast greiðslu­mat og mán­að­ar­legar afborg­anir eru mun lægri en á öðrum teg­undum lána.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár