Nýir búvörusamningar undirritaðir – Kostnaður ríkis eykst um 900 milljónir á næsta ári

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skrif­uðu í dag undir nýja búvöru­samn­inga við íslenska bændur fyrir hönd íslenska rík­is­ins. Samn­ing­ur­inn er til tíu ára og bindur því næstu tvær rík­is­stjórnir hið minnsta hvað varðar útgjöld til land­bún­að­ar­mála. Útgjöld rík­is­ins munu hækka um rúmar níu hund­ruð millj­ónir króna á árinu 2017 vegna þess en eiga síðan að fara stig­lækk­andi út samn­ings­tím­ann. Á síð­asta ári samn­ings­ins eiga útgjöld rík­is­ins að verða lægri en þau verða í ár.

Í fyrra, árið 2015, voru greiðsl­urnar 12,7 millj­arðar króna og miðað við það verða stuðn­ings­greiðslur skatt­greið­enda við íslenskan land­búnað um 14 millj­arðar króna á árinu 2017.

Ástæður auk­ins kostn­aðar eru, sam­kvæmt tilkynn­ingu frá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu, helst þær að tíma­bundið fram­lag vegna „inn­leið­ingar á nýjum reglu­gerðum um vel­ferð dýra hafa mik­inn kostnað í för með sér, stuðn­ingur við átak í tengslum við inn­flutn­ing á nýju erfða­efni af holda­nauta­stofni til að efla fram­leiðslu og bæta gæði á nauta­kjöti, auk­inn stuðn­ingur við líf­ræna ræktun og fram­lög til að skjóta stoðum undir aukna fjöl­breytni í land­bún­aði.“

Með und­ir­ritun samn­ings­ins verða tölu­verðar breyt­ingar á starfs­um­hverfi bænda. Stefnt verður að því að leggja af kvóta­kerfi í mjólk­ur­fram­leiðslu og sauð­fjár­rækt og að losa um gild­andi styrkja­fyr­ir­komu­lag þannig að bændur verði ekki bundnir við fram­leiðslu á mjólk eða kjöti líkt og verið hefur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár