Skuldir stærsta eiganda DV fjórfölduðust á árinu 2014

Pressan ehf., eig­andi DV ehf., hefur skilað árs­reikn­ingi. Á árinu sem það keypti DV juk­ust skuldir þess úr 69 í 272 milljón króna. Hagnaður var af rekstri félags­ins.

Björn Ingi Hrafnsson stýrir fjölmiðlafyrirtækinu Pressunni.
Björn Ingi Hrafns­son stýrir fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu Press­unni. Mynd: Skjáskot

Skuldir Pressunnar ehf., sem á 70 pró­sent hlut í DV, juk­ust úr tæpum 69 millj­ónum króna í 271,7 millj­ónir króna á árinu 2014. Félagið, sem er að stærstum hluta í eigu Björns Inga Hrafns­sonar og Arnars Ægis­sonar, eign­að­ist ráð­andi hlut í DV seint á því ári. Samhliða auk­inni skulda­söfnun jókst bók­fært virði eigna félags­ins umtals­vert. Það þre­fald­að­ist á árinu 2014. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Pressunnar sem birtur var í vik­unni. Þar kemur ekki fram hverjir lán­veit­endur félags­ins eru né hvenær lán þess eru á gjald­daga.

Keyptu DV haustið 2014

Haustið 2014 áttu sér stað mikil átök um yfir­ráð yfir DV. Feðgarnir Reynir Trausta­son og Jón Trausti Reyn­is­son, ásamt sam­starfs­mönnum sínum, höfðu þá átt og stýrt DV um nokk­urt skeið en fengið fjár­hags­lega fyr­ir­greiðslu víða til að standa undir þeim rekstri, meðal ann­ars hjá Gísla Guð­munds­syni, fyrrum eig­anda B&L. Þeim kröfum var síðan breytt í hlutafé sem dugði til að taka yfir DV. Í átök­unum kom maður að nafni Þor­steinn Guðnason fram fyrir hönd þeirra krafna. Ólafur M. Magn­ús­son, fyrrum stjórn­ar­maður í DV, sagði í sam­tali við Kjarnann í októ­ber 2014 að menn tengdir Fram­sókn­ar­flokknum hefðu viljað kaupa DV. Fram­kvæmda­stjóri flokks­ins hafn­aði því í kjöl­farið í yfir­lýs­ingu.

DV var skömmu síðar selt til hóps undir for­ystu Björns Inga Hrafns­sonar. Kaupin voru gerð í nafni félags sem heitir Pressan ehf. Kaup­verðið hefur ekki verið gert opin­bert.

Eigendur Pressunnar ehf. eru að stærstu leyti félög í eigu Björns Inga Hrafns­sonar og Arnars Ægis­sonar, sam­starfs­manns hans í fjöl­miðla­rekstri til margra ára. Þeir eiga sam­tals tæp­lega 40 pró­sent í félag­inu. Auk þess á áður­nefndur Þor­steinn Guðnason 18 pró­sent hlut, Sigurður G. Guð­jóns­son lög­maður á tíu pró­sent, Jón Óttar Ragn­ars­son á ell­efu pró­sent, Steinn Kári Ragn­ars­son á tíu pró­sent og Jakob Hrafns­son, bróðir Björns Inga, á átta pró­sent.

Félagið skil­aði árs­reikn­ingi fyrir árið 2014 fyrr í þess­ari viku, eða í byrjun árs 2016. Samkvæmt reglum um árs­reikn­inga ber að skila árs­reikn­ingum í síð­asta lagi átta mán­uðum eftir lok reikn­ings­árs. Hann hefði því átt að ber­ast fyrir lok ágúst­mán­aðar. Viðurlög við slíkum drætti eru þó ekki mikil. Árs­reikn­inga­skrá skorar á félög að bæta úr van­skilum sínum og gefur þeim frest til að gera það. Ef félagið van­rækir að skila innan þess frests leggur árs­reikn­inga­skrá 250 þús­und króna sekt á. Samkvæmt ummælum stjórn­enda Pressunnar þá skil­uðu þeir sínum árs­reikn­ingum áður en til álagn­ingar sektar kom.

Eignir þrefaldast - skuldir fjórfaldast

Samkvæmt árs­reikn­ingi juk­ust eignir Pressunnar mjög á árinu 2014. Þær nær þre­föld­uð­ust, fóru úr 110 millj­ónum króna í 322 millj­ónir króna. Eignir Pressunnar eru nán­ast að öllu leyti óefn­is­legar.

Þorri aukn­ingar í eignum Pressunnar er í formi áhættu­fjár­muna, sem er óefn­is­leg eign. Þeir juk­ust úr 0 í 144,4 millj­ónir króna á árinu 2014. Áhættu­fjár­munir geta meðal ann­ars verið eign­ar­hlutar og lán tengdra félaga, eign­ar­hlutir í öðrum félögum, önnur lán eða lán til eig­enda, hlut­hafa og stjórn­enda. Þessi liður sýnir því að minnsta kosti bók­fært virði DV, sem Pressan keypti á árinu 2014, og mögu­lega ein­hver lán.

Skuldir félags­ins hækk­uðu einnig umtals­vert á árinu 2014. Lang­tíma­skuldir sem voru engar í árs­lok 2013 voru orðnar 148 millj­ónir króna í lok árs 2014. Auk þess tvö­föld­uð­ust skamm­tíma­skuldir Pressunnar og voru orðnar 124 millj­ónir króna í lok árs. Því skuld­aði félagið sam­tals 272 millj­ónir króna í lok árs 2014, sem er fjórum sinnum meira en þær 68 millj­ónir króna sem félagið skuld­aði í lok árs árið áður. Ekki kemur fram í árs­reikn­ingnum hvenær þessi lán eru á gjald­daga.

Að hluta til seljendalán

Engar opin­berar upp­lýs­ingar eru til um hvaðan umrædd lán komu að öðru leyti en það að Björn Ingi Hrafns­son hefur upp­lýst um að hluti af kaup­verð­inu á DV hafi verið greitt með selj­enda­láni frá þeim sem breyttu kröfum sínum í hlutafé í miðl­inum þegar hann var tek­inn yfir haustið 2014.

Þá stað­festi Arnar Ægisson, sem er fram­kvæmda­stjóri Pressunnar, við Vísi í fyrra­sumar að þær skamm­tíma­skuldir sem Pressan var með í lok árs 2013, rúm­lega 60 millj­ónir króna, hafi verið yfir­dráttur frá MP banka, sem í dag heitir Kvika.

Það gerði hann í kjöl­far þess að syst­urnar Malín Brand og Hlín Ein­ars­dóttir voru hand­teknar fyrir að hafa reynt að fjár­kúga Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra. Í fjár­kúg­un­ar­bréfi þeirra hót­uðu þær að gera opin­berar upp­lýs­ingar sem áttu að koma ráð­herr­anum illa. Þær snér­ust um að Sig­mundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan ehf. hafi fengið lána­fyr­ir­greiðslu hjá MP banka þegar félagið keypti DV. Sig­mundur Davíð hefur hafnað því að hann hafi fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son og að hann hafi komið að kaupum á DV á nokkurn hátt. Björn Ingi hefur sagt að for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki fjár­magnað kaup Pressunnar á DV og að hann eigi ekki hlut í blað­inu.

Skilaði hagnaði á árinu 2014

Pressan skil­aði hagn­aði árið 2014 upp á 11,5 millj­ónir króna. Engar upp­lýs­ingar eru í árs­reikn­ingnum um hverjar rekstr­ar­tekjur félags­ins voru á árinu 2014. Uppi­staðan í auknu veltufé frá rekstri virð­ist vera til­komin vegna nýrra lána sem Pressan fékk á árinu 2014 og gerir það að verkum að hand­bært fé frá rekstri er 184 millj­ónir króna.

Pressan greiddi sam­tals um 32 millj­ónir króna í laun og launa­tengd gjöld á árinu 2014. Miðað við að átta árs­verk voru unnin hjá félag­inu á umræddu ári er kostn­aður vegna launa og launa­tengdra gjalda hjá þeim um 332 þús­und krónur fyrir hvert þeirra á mán­uði.

Annað félag innan fjöl­miðla­sam­steypunnar, Vef­pressan ehf., skil­aði einnig árs­reikn­ingi í vik­unni. Vef­pressan er það félag sem skráð er hjá fjöl­miðla­nefnd sem eig­andi flestra vef­miðla fjöl­miðla­veld­is­ins. Þar segir að Vef­pressan sé móð­ur­fé­lag Pressunnar.is og Bleikt.is. Auk þess á Vef­pressan, sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá, fyrrum móð­ur­fé­lag net­mið­ils­ins Eyjunnar, sem heitir Eyjan media. Nýtt móð­ur­fé­lag hans, Eyjan miðlar, var sett á fót árið 2014 og hefur aldrei skilað árs­reikn­ingi. Það félag er í eigu Press­unar ehf., sama félags og á 70,73 pró­sent hlut í DV ehf., útgáfu­fé­lagi DV.

Vef­pressan hagn­að­ist um 27,8 millj­ónir króna á árinu 2014 og eignir þess voru metnar á 224 millj­ónir króna í lok þess árs. Þær juk­ust um 53 millj­ónir króna á árinu. Skuldir félags­ins juk­ust um 25 millj­ónir króna á árinu 2014 og stóðu í 193 millj­ónum króna í lok þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár