Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu gæti hækkað umfram spár

Lítil fjár­fest­ing í íbúðum, áhersla á þétt­ingu byggðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og almennt minna fram­boð á íbúðum en spáð var mun lík­ast til skapa meiri spennu á fast­eigna­mark­aðnum en áður var talið. Það þýðir með öðrum orðum að verð mun hækka hraðar en spáð var. Þetta er mat sér­fræð­inga hjá Lands­bank­anum og Arion banka og dós­ents í hag­fræði við Háskóla Íslands. Greint er frá þessu í Morg­un­blað­inu.

Þar er rætt við Ara Skúlason, sér­fræð­ings hjá hag­fræði­deild Lands­bank­ans. Hann segir að fjár­fest­ing í nýjum íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé að drag­ast saman sem sé þvert á fyrri spár. Hlutfall nýrra íbúða af seldum íbúðum á svæð­inu sé ein­ungis um sex pró­sent á síð­ustu fjórum mán­uðum. Fyrir hrun, nánar til­tekið árin 2006 og 2007, hafi það verið 20 til 30 pró­sent. Þegar fram­boðið sé svona lítið hafi það áhrif á verðið og Ari telur áherslu á þétt­ingu byggðar eiga þátt í að verð á íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé að hækka.

Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands, tekur undir það í sam­tali við Morg­un­blaðið. Skipu­lags­ferlið í grónum hverfum sé ein­fald­lega lengra en þegar nýtt land sé notað undir byggð. Nokkur ár séu í að nýtt aðal­skipu­lag fari að skila nýjum íbúðum.

Verð á íbúðum gæti tvöfaldast á átta árum

Konráð S. Guð­jóns­son, sér­fræð­ingur hjá Arion banka, segir að fram­boð nýrra íbúða á næsta ári verði mögu­lega minna en spáð var. Í nýrri úttekt Grein­ing­ar­deildar Arion banka sem kynnt var fyrr í þessum mán­uði var því spáð að nafn­verð hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu muni hækka um 30 pró­sent á næstu þremur árum. Nafnverð fjöl­býlis á svæð­inu hækk­aði um 50 pró­sent frá byrjun árs 2011. Það þýðir að hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mun mögu­lega nærri tvö­fald­ast á átta ára tíma­bili, frá 2011 til loka árs 2018, gangi spáin eftir.

Kjarninn greindi ítar­lega frá úttekt­inni 9. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Töluverð útlána­aukn­ing hefur orðið hjá bönkum á árinu 2015 og er hún m.a. rakin til skulda­leið­rétt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar, sem í fólst greiðsla á 80 millj­örðum króna til þeirra sem voru með verð­tryggð lán á árunum 2008 og 2009. Leið­rétt­ingin hefur aukið veð­hlut­fall þeirra sem hana fengu mikið, og það hefur leitt af sér útlána­aukn­ingu. Athygli vekur að aðsókn í verð­tryggð lán hefur auk­ist mikið það sem af er ári og eru þau nú um helm­ingur nýrra útlána. Þetta ger­ist á sama tíma og miklar póli­tískar umræður eru um afnám verð­trygg­ingar og annar stjórn­ar­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, ýtir mjög á að slíkt afnám eigi sér stað.

Samkvæmt úttekt Arion banka er ekki verið að mæta þeirri upp­söfn­uðu þörf sem er fyrir bygg­ingu íbúða með nýjum fram­kvæmdum. Raunar hafi verið sam­dráttur á árinu 2015, sem er þvert á allar vænt­ingar. Þá kemur fram að öfugt við það sem hefur gerst und­an­farin ár hafi íbúða­verð hækkað umfram leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu það sem af er ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár