Verð á íbúðum tvöfaldast á átta ára tímabili

Ný spá Grein­ing­ar­deildar Arion banka gerir ráð fyrir að íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu muni hækka um 30 pró­sent á næstu þremur árum. Fjölbýli á svæð­inu hafa þegar hækkað um 50 pró­sent á fimm árum.

Nafnverð hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mun hækka um 30 pró­sent á næstu þremur árum. Nafnverð fjöl­býlis á svæð­inu hækk­aði um 50 pró­sent frá byrjun árs 2011. Þetta kemur fram í spá í nýrri úttekt Grein­ing­ar­deildar Arion banka sem kynnt var í morgun. Það þýðir að hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mun mögu­lega nærri tvö­fald­ast á átta ára tíma­bili, frá 2011 til loka árs 2018, gangi spáin eftir.

Töluverð útlána­aukn­ing hefur orðið hjá bönkum á árinu 2015 og er hún m.a. rakin til skulda­leið­rétt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar, sem í fólst greiðsla á 80 millj­örðum króna til þeirra sem voru með verð­tryggð lán á árunum 2008 og 2009. Leið­rétt­ingin hefur aukið veð­hlut­fall þeirra sem hana fengu mikið, og það hefur leitt af sér útlána­aukn­ingu. Athygli vekur að aðsókn í verð­tryggð lán hefur auk­ist mikið það sem af er ári og eru þau nú um helm­ingur nýrra útlána. Þetta ger­ist á sama tíma og miklar póli­tískar umræður eru um afnám verð­trygg­ingar og annar stjórn­ar­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, ýtir mjög á að slíkt afnám eigi sér stað.

Samkvæmt úttekt­inni er ekki verið að mæta þeirri upp­söfn­uðu þörf sem er fyrir bygg­ingu íbúða með nýjum fram­kvæmdum. Raunar hafi verið sam­dráttur á árinu 2015, sem er þvert á allar vænt­ingar. Þá kemur fram að öfugt við það sem hefur gerst und­an­farin ár hafi íbúða­verð hækkað umfram leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu það sem af er ári.

Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækka mest

Hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað hratt á und­an­förnum árum. Frá árs­byrjun 2011 hefur verð á fjöl­býli á þessu fjöl­menn­asta svæði lands­ins t.d. hækkað um 50 pró­sent. Til að setja það í annað sam­hengi þá kostar íbúð í fjöl­býli sem kost­aði 20 millj­ónir króna í byrjun árs 2011 nú 30 millj­ónir króna. Miðað við spá Arion banka mun hún kosta um 39 millj­ónir króna í árs­lok 2018. Gangi spáin eftir mun nafn­virði umræddrar íbúðar því nán­ast tvö­fald­ast á átta árum.

Verð­hækk­anir á lands­byggð­inni hafa verið hæg­ari, og meira í takt við þær hækk­anir sem hafa verið á sér­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem hefur hækkað um 30 pró­sent frá árs­byrjun 2011.

Það kemur lík­ast til fæstum á óvart að verð á fast­eignum mið­svæðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað mest, og vel umfram það sem hefur gerst ann­ars staðar. Í úttekt Arion banka segir að með­al­fer­metra­verð í mið­borg Reykja­víkur, í póst­núm­eri 101, hafi hækkað um 41 pró­sent frá mars 2013 til októ­ber 2015. Á sama tíma hefur það ein­ungis hækkað um 15 pró­sent í Reykja­vík austan Elliðaáa.

Verð á sér­býli hefur þó hækkað tölu­vert und­an­farin miss­eri sem er vís­bend­ing um að mark­aður fyrir ein­býl­is­hús og önnur sér­býli sé að taka við sér. Grein­ing­ar­deildin gerir samt sem áður ráð fyrir því að eft­ir­spurn verði áfram sem áður eftir íbúðum í fjöl­býli.

Og eft­ir­spurnin er sann­ar­lega meiri en fram­boðið. Á síð­ustu tveimur árum hefur fjöldi fast­eigna til sölu dreg­ist tölu­vert saman. Fjöldi sér­býli sem bjóð­ast á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur fækkað um næstum helm­ing og fjöldi íbúða í fjöl­býli fækkað um 20 pró­sent.

Gagnrýna verðþak á leigumarkaði

Í spá Arion banka um áfram­hald­andi hækkun á hús­næð­is­verði er tekið til­lit til fjöl­margra áhættu­þátta sem hafa áhrif á þróun fast­eigna­verðs. Á meðal þeirra eru auknar ráð­stöf­un­ar­tekjur, almennt efna­hags­á­stand, aðgengi að lánsfé, bygg­inga­kostn­aður, stefna hins opin­bera og lýð­fræði­legir þættir eins og mann­fjöldi, ald­urs­sam­setn­ing og búseta þjóð­ar­innar.

Nið­ur­staðan er sú að nafn­verð íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu muni hækka um 30 pró­sent fram til loka árs 2018 og að raun­virð­is­hækkun þess verði um 15 pró­sent. Það sem af er þessu ári hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækka um tíu pró­sent að nafn­virði.

Auðvitað eru fjöl­margir óvissu­þættir til staðar sem gætu haft þau áhrif að spáin stand­ist ekki. Á meðal þeirra er magn þess hús­næðis sem leigt er til ferða­manna, mann­fjölda­þróun, efna­hags­þróun, vaxta­stig, eig­in­fjár­kröfur, sam­keppni á lána­mark­aði, mögu­legar tak­mark­anir á verð­trygg­ingu og þróun ann­arra eigna­mark­aða.

Grein­ing­ar­deild Arion banka gagn­rýnir mjög hug­myndir um verð­þök á leigu­mark­aði í úttekt sinni. „Ef verð­þak er sett lægra en mark­aðs­verð þýðir það að um leið skap­ast umfram­eft­ir­spurn eftir leigu­hús­næði, sem myndi óhjá­kvæmi­lega mynda biðlista. Þar sem verðið er nú undir lang­tíma­fram­boði borgar sig ekki fyrir íbúða­eig­endur að koma inn/vera inni á mark­að­inn/mark­aðnum eða halda hús­næði nægi­lega vel við. Því mun hús­næð­is­kostn­aður rýr­ast þar til næst nýtt jafn­vægi með ennþá minna fram­boðnu hús­næði en ella og lengri biðlista eftir leig­hús­næði en áður.“ Þetta hafi t.d. gerst í Stokk­hólmi und­an­farin ár.

Leiðréttingin örvaði útlán

Skuldir heim­ila hafa lækkað jafnt og þétt und­an­farin ár sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu. Þær eru nú svip­aðar og árið 2004 út frá þeim mæli­kvarða. Veð­hlut­fall hefur einnig batnað mikið, sér­stak­lega á árinu 2015. Það skýrist að stórum hluta af skulda­leið­rétt­ingu stjórn­valda, sem kom að mestu til útgreiðslu í ár.

Betra veð­hlut­fall og auk­inn kaup­máttur – seðla­bank­inn spáir því að hann hækki um 7,9 pró­sent í ár – getur að mati Grein­ing­ar­deild­ar­innar haft „örvandi áhrif á útlána­mark­að­inn á kom­andi miss­erum“.

Töluverð aukn­ing hefur orðið á útlánum nú þegar. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015 námu hrein ný útlán til heim­ila um 87 millj­örðum króna, sem er umtals­verð aukn­ing frá fyrri árum. Fleiri eru að taka verð­tryggð lán en áður og það sem af er ári er skipt­ing milli verð­tryggðra lána og óverð­tryggðra nokkuð jöfn. Grein­ing­ar­deildin telur að skulda­leið­rétt­ing stjórn­valda kunni að skýra þessa útlána­aukn­ingu að hluta „en greiðslu­byrði heim­ila lækk­aði í kjöl­far aðgerð­anna og aukið veð­rými hefur mynd­ast“.

Ekki byggt nægilega mikið

Í úttekt­inni kemur fram að full­kláruðum íbúðum muni fjölga um 33 pró­sent á milli ára á land­inu öllu. Fjölg­unin árið 2014 var þó 40 pró­sent undir með­al­tali síð­ustu 20 ára og því vantar enn tölu­vert upp á að fram­kvæmdir svari eft­ir­spurn.

Með­al­verð þriggja her­bergja íbúðar í fjöl­býli í Reykja­vík er nú yfir bygg­inga­kostn­aði. Það býr til hvata til íbúða­fjár­fest­ingar. Bygg­inga­kostn­aður sér­býlis er þó enn tölu­vert hærri en sölu­verð þess.

Grein­ing­ar­deildin gerir ráð fyrir að það þurfi að byggja um 2.400 íbúðir á ári til 2020 á land­inu öllu til að svala eft­ir­spurn, miðað við mann­fjölda­spár Hagstofu Íslands. Þar af er upp­söfnuð þörf fyrir um 2.200 íbúðir sem við dreift er á árin 2015-2018 í spánni.

Þrátt fyrir þessa skýru upp­söfn­uðu þörf sem blasir við segir Arion banki að ekki hafi verið mik­ill þróttur í íbúða­fjár­fest­ingu að und­an­förnu. „Raunar hefur verið sam­dráttur á þessu ári, þvert á vænt­ingar, en sam­kvæmt spám mun íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölga þó nokkuð á næstu árum.“

Vinsældir leigumarkaðarins náð hámarki

Að lokum var fjallað um leigu­mark­að­inn, en leigu­verð hefur hækkað mikið á und­an­förnum árum.

Í úttekt­inni kemur fram að hlut­fallleigj­enda hafi lækkað lít­il­lega síð­ast­liðin tvö ár og að dregið hafi úr verð­hækk­unum á leigu­mark­aði. „Öfugt við þróun sein­ustu ára hefur íbúða­verð hækkað umfram leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu það sem af er ári. Einnig eru þing­lýstir kaup­samn­ingar nú orðnir fleiri en þing­lýstir leigu­samn­ingar í fyrsta sinn síðan árið 2007. Því má gera ráð fyrir að vin­sældir leigu­mark­að­ar­ins hafi náð hámarki um sinn og m.v. horfur í hag­kerf­inu og bætta stöðu heim­ila má gera ráð fyrir að sú þróun muni halda áfram næstu miss­eri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár