Karolina Fund: Nýtt sýningarkerfi í Skjaldborgarbíó

Áhuga­fólk um áfram­hald­andi kvik­mynda­sýn­ingar í Skjald­borg­ar­bíói á Pat­reks­firði safnar fyrir nýju sýn­ing­ar­kerfi. Hópurinn hefur unnið að söfn­un­inni í tvö ár með nokkrum hléum en af miklum krafti und­an­farnar vikur. Að söfn­un­ar­hópnum standa ein­stak­lingar úr röðum Lions­klúbbs Pat­reks­fjarðar, Skjald­borgar – hátíðar íslenskra heim­ilda­mynda og Kvik­mynda­klúbbs­ins Kittýjar. Kjarninn hitti Öldu Dav­íðs­dóttur og tók hana tali.

Hver er saga Skjald­borg­ar­bíós?

„Skjald­borg var byggð snemma á síð­ustu öld sem sam­komu­hús Pat­reks­firð­inga, það var vígt 1935 og er talið að fljót­lega eftir það hafi verið byrjað að sýna kvik­myndir í hús­inu. Það eru því ansi margar kyn­slóðir sem hafa farið í bíó í Skjald­borg og þær eldri einnig á dans­leiki í hús­inu, t.d. ömmur og afar fólks í söfn­un­ar­hópnum. Pat­reks­firð­ingar hafa því sterkar taugar til Skjald­borgar og það hefur mikil áhrif á að brott­fluttir íbúar eru að styrkja söfn­un­ina jafnt og þeir sem búa á staðnum."

Hvað breyt­ingar eru nauð­syn­legar til starf­semi bíós­ins geti haldið áfram?

„Til að starf­semi bíós­ins geti haldið áfram er nauð­syn­legt að koma upp staf­rænum sýn­ing­ar­bún­aði. Í hús­inu er ein­göngu vél sem getur sýnt af filmum en kvik­myndir eru alveg hættar að ber­ast til lands­ins á filmu. Filmu­vélin fær að vera áfram í hús­inu, staf­rænu græjurnar taka ekki eins mikið pláss og geta for­tíðin og nútíðin því fengið að vera hlið við hlið í sýn­ing­ar­klef­anum. Fyrir utan að kaupa kerfið og koma því fyrir þarf lag­fær­ingar á sýn­ing­ar­klefa, raf­magni og fleiru.

Hvaða merk­ingu hefur Skjald­borg­ar­bíó fyrir sam­fé­lagið?

„Skjald­borg­ar­bíó hefur mjög mikla þýð­ingu fyrir sam­fé­lagið, ekki aðeins vegna þeirrar sögu sem húsið geymir, heldur er það stór hluti af menn­ing­ar­fram­boði á svæð­inu, sem er allir sunn­an­verðir Vest­firðir en ekki ein­göngu Pat­reks­fjörður. Aðgengi að menn­ingu er eitt af því sem skiptir máli þegar fólk velur sér stað til búsetu og er Skjald­borg því hluti af mun stærri heild­ar­mynd en bara að bjóða upp á sýn­ingar fyrir kvik­mynda­á­huga­fólk.

Í Skjald­borg eru einnig haldnar leik­sýn­ingar, tón­leikar, beinar útsend­ingar frá stórum íþrótta­við­burðum o.fl. Kvik­mynda­sýn­ingar hafa verið uppi­staðan í þeirri starf­semi sem fer fram í Skjald­borg og er hætt við að dofni yfir öllu öðru ef ekki er hægt að halda þeirri starf­semi áfram.

Stærsti við­burð­ur­inn yfir árið í bíó­inu er Skjald­borg – hátíð íslenskra heim­ilda­mynda, en næsta vor verður hún haldin í tíunda sinn. Hátíðin er löngu búin að tryggja sig í sessi sem einn af stærri menn­ing­ar­við­burðum lands­ins en þar hefur nútím­inn einnig lagt inn­reið sína og sífellt fleiri myndir sem ber­ast hátíð­inni eru á staf­rænu formi.

Fyrir utan að geta ein­fald­lega ekki sýnt kvik­myndir á staf­rænu formi eru gæðin í hljóð og mynd einnig orðin það léleg að það er ekki ásætt­an­legt að bjóða kvik­mynda­gerð­ar­fólki að frum­sýna mynd­irnar sínar í Skjald­borg. Það mun breyt­ast til bóta við að skipta um kerfi og skiptir líka gríð­ar­lega miklu máli. Þetta vita vinir hátíð­ar­innar sem sést á því hversu margir hafa styrkt söfn­un­ina."

Eitthvað að lokum?

„Söfnunin fyrir nýja sýn­ing­ar­kerf­inu hefur staðið yfir í tvö ár, heild­ar­upp­hæðin sem þarf að safna er tíu millj­ónir og fyrir mán­uði síðan var búið að safna átta millj­ónum. Söfn­un­ar­hóp­ur­inn ákvað að blása til hóp­fjár­mögn­unar á Karolina­fund til að ná inn síð­ustu tveimur millj­ón­unum og stendur sú söfnun yfir til mið­nættis laug­ar­dag­inn 5. nóv­em­ber. Það er því enn hægt að styrkja verk­efnið á Karolina Fund."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár