Karolina Fund: Vorljóð á ýli

Ingi­björg Azima er að vinna að útgáfu tón­listar við ljóð ömmu sinnar, Jakobínu Sig­urð­ar­dóttur. Laga­flokk­ur­inn, sem hún nefnir Vorljóð á ýli, var sam­inn á árunum 2006 -2014 í útsetn­ingu fyrir sópran, tenór, klar­inett, harm­ónikku, fagott, selló og kontra­bassa.

Kjarninn hitti Ingi­björgu og tók hana tali.

Hver er sagan á bak­við verk­efnið?

„Þetta verk­efni sér nokkuð langa sögu. Upphafið má rekja til hausts­ins 2006, þá var ég búsett í Stokk­hólmi og var að upp­lifa ein­hvers­konar kafla­skil í lífi mínu þar sem ég var að prófa nýja hluti sem tón­list­ar­maður, hafði áður verið að spila mikið og kenna en þarna var ég farin að stjórna kórum og var mikið að skoða íslenska og sænska kór­tón­list á þessum tíma. Þá allt í einu eitt­hvert kvöldið kemur þetta lag fljúg­andi við ljóð ömmu minnar, Vorljóð á ýli.

Ég fann strax að þetta var ein­hvers­konar send­ing frá ljóð­inu, það vildi fá svona trega­fullt lag þar sem það er svo fal­legur íslenskur tregi í þessu ljóði ömmu minnar. Síðan nokkrum árum síðar kemst vin­kona mín, Ólöf Sig­ur­sveins­dóttir selló­leik­ari að því að ég á þetta lag, hún er þá að vinna mikið með söng­konu, Margréti Hrafns­dóttur og þær hrein­lega panta það af mér að semja fleiri lög við ljóð ömmu minnar. Ég tók þeirri áskorun með fiðr­ildi í mag­anum og komst fljót­lega að því að það voru mörg fleiri ljóð en Vorljóð á ýli sem hrein­lega sendu frá sér tóna þegar ég fór að skoða þau. Þannig að ég var ekki lengi að semja lögin í laga­flokknum Vorljóð á ýli, þau eru 9 á disknum en ég á fleiri til­búin sem bíða seinna tíma.

En það tók mörg ár að þróa tón­list­ina, finna réttu hljóð­færa­skipan og að sífellt stækka og betrumbæta útsetn­ing­arnar á lög­unum. Þar hefur mað­ur­inn minn, Hörður Bragason verið mér ómet­an­leg aðstoð og sam­starfs­að­ili af bestu gerð, alltaf hvatt mig til að gera meira og betur og ausið úr skálum þekk­ingar og list­rænnar til­finn­ingar.

En þetta eru sem­sagt 9 ár frá því að fyrsta lagi að full­búnum geisla­diski."

Eru fleiri sem standa að þessu verk­efni með þér?

„Þeir sem standa að verk­efn­inu með mér eru í raun fjöl­margir. Ég hef þegar nefnt Hörð, mann­inn minn, en hann hefur fyrir utan að útsetja með mér tón­list­ina einnig stjórnað upp­tökum. Stöll­urnar Ólöf Sig­ur­sveins­dóttir og Margrét Hrafns­dóttir, sem eiga stóran þátt í að laga­flokk­ur­inn varð til, eru meðal flytj­enda ásamt Gissuri Páli Giss­ur­ar­syni, tenór, Grími Helga­syni, klar­inett­leik­ara, Ave Kara Sillaots, harm­ónikku­leik­ara, Snorra Heim­is­syni, fagott­leik­ara, Gunn­hildi Höllu Guð­munds­dóttur, selló­leik­ara og Richard Korn kontra­bassa­leik­ara. Þetta er tón­list­ar­deildin, síðan eru það frá­bærir lista­menn sem hafa hannað með mér umslagið en umslagið fyrir diskinn er óvenju­legt, það er lítil ljóða­bók með öllum ljóð­unum sem eru flutt á disknum og sjálfur disk­ur­inn er fram­ar­lega í vasa.

Það eru Margrét H. Blöndal lista­kona og Arnar Freyr Guð­munds­son hönn­uður sem eiga heið­ur­inn af þessu bókaumslagi og ég er alveg sér­stak­lega ánægð og stolt yfir þess­ari ein­stöku hönnun. Síðan eru það tækni­menn­irnir í stúdíó Sýrlandi sem eru orðnir miklir góð­kunn­ingjar mínir enda hófust upp­tökur í jan­úar 2014 og lauk til­tölu­lega nýverið. Þar fer fyrstur Páll Sveinn Guð­munds­son upp­töku­meist­ari en hann hefur tekið lang­mestan hluta lag­anna upp auk þess að hljóð­blanda með mér og Herði. Síðan hefur Sveinn Kjart­ans­son einnig komið að upp­tökum og hann master­aði að lokum diskinn."

Hvers konar tón­list mun óma af plöt­unni?

„Tón­listin sem ómar af disknum eru í eðli sínu íslensk sönglög, þetta er mjög lagræn tón­list og lögin eru hér inn­blásin af mögn­uðum ljóðum og fyrst og fremst í þjón­ustu þeirra ef svo má að orði kom­ast. Hljóð­heim­ur­inn er síðan að mörgu leyti óvenju­legur því það er t.d ekk­ert píanó með í hljóm­sveit­inni en yfir­leitt heyrum við sönglög flutt með píanói og rödd og kannski 1 - 2 hljóð­færum með til skreyt­ingar. Hér er það harm­ónikkan sem setur mjög sér­stakan blæ á alla tón­list­ina, hún er svo fjöl­hæft hljóð­færi - getur verið allt frá mýkstu strengja­sveit yfir í mis­kunn­ar­lausa sekkj­ar­pípu­deild þegar á þarf að halda - og allt þar á milli! Einnig ríkir ákveðið jafn­ræði milli söngv­ara og hljóð­færa, text­inn er auð­vitað alltaf mik­il­vægastur en hljóð­færin eru oft í hlut­verki með­söngv­ara frekar en und­ir­leik­ara og pásu­skreyt­ara.

Þannig að þó að tón­listin flokk­ist eflaust sem klass­ísk þá er ýmis­legt í hljóð­færa­skipan og hljóma­ferlum sem er miklu meira inn­blásið úr þjóð­lagatón­list og popptón­list. Ég held að tón­listin eigi að geta höfðað til mjög margra því hún fer ekki beint í eina skúffu."

Verk­efnið má finna, og styrkja, áKarolina Fund. Þar er hægt er að kaupa diskinn í einu eða fleiri ein­tökum og einnig miða á útgáfu­tón­leika sem verða mið­viku­dags­kvöldið 11. nóv kl 20.00 í Safna­hús­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár