Karolina Fund: Máttur kvenna í Tansaníu

Verkefni vik­unnar er WOMEN POWER. Það gengur út á að mennta efna­litlar konur í þorp­inu Bashay í norð­ur­hluta Tansaníu.

„Það varðar okkur öll að í heim­inum sé fjöldi barna sem ekki njóti grunn- mann­rétt­inda og fái ekki tæki­færi til að vaxa og þroskast eins og best verður á kosið. Það hefur sýnt sig svo ekki verður um villst að ein af virk­ustu aðferð­unum til að draga úr vannær­ingu barna er að mennta mæður barn­anna,“ segir Anna Elísabet Ólafs­dóttir. Anna er ásamt Eiríki Bergmann, Magnúsi Árna Skjöld Magn­ús­syni, Viðari Við­ars­syni, Kristínu Þórdísi Þor­gils­dóttur og Restituta Joseph Surumbu, að vinna að verk­efni sem mun efla menntun kvenna í Tansaníu til að þær geti komið á fót eigin rekstri. Kjarninn hitti Önnu Elísa­betu og tók hana tali.

Hvað er ‘woman power’ og út á hvað gengur verk­efnið ykkar?

"Verk­efnið WOMEN POWER – sem nú er verið að safna fyrir á Karolina Fund - er verk­efni sem einmitt gengur út á það að mennta efna­litlar konur. Verk­efnið er unnið í þorp­inu Bashay í norð­ur­hluta Tansaníu í Afríku sunnan Sahara. Akademískir starfs­menn Háskól­ans á Bifröst leiða verk­efnið undir stjórn Önnu Elísa­betar, aðstoð­ar­rekt­ors.

Verk­efnið er byggt á nám­skeið­inu Máttur kvenna sem kennt hefur verið síð­ast­liðin 10 ár við Háskól­ann á Bifröst. Í hnot­skurn gengur verk­efnið út á það að hjálpa kon­unum að finna við­skipta­tæki­færi í nærum­hverfi sínu, vinna ein­falda við­skipta­á­ætlun og fara af stað í rekstur. Fyrsti nem­enda­hóp­ur­inn útskrif­að­ist fyrr á þessu ári en nú er í und­ir­bún­ingi fram­halds­nám­skeið fyrir kon­urnar sem og nýtt nám­skeið fyrir allar þær konur sem ekki komust að á fyrsta nám­skeiðið."

Af hverju þorpið Bashay?

"Anna Elísabet hefur verið við­loð­andi Bashay í Tansaníu síð­ast­liðin 10 ár og bjó þar um tíma. Hún rekur þar lít­inn bóndabæ, Tanzanice Farm, sem býður upp á ódýra gist­ingu fyrir ferða­menn. Með störfum sínum í Bashay hefur Anna skapað störf fyrir fjölda þorps­búa. Þar á meðal er Resty, 24 ára tansanísk kona sem nú er fram­kvæmda­stjóri Tanzanice Farm. Hún er með þrjá karl­menn í vinnu og hefur með góðum stuðn­ing öðl­ast virð­ingu þeirra sem og ann­arra þorps­búa. Resty hefur dvalið á Íslandi í rúmt ár og fengið hald­góða menntun í tölvu­tækni, bók­haldi og ensku. Dvöl hennar á Íslandi hefur skapað henni ný tæki­færi og stór­aukið víð­sýni hennar, getu og færni. Resty er leið­togi kvenna­hóps­ins sem Háskól­inn á Bifröst er nú að mennta."

Hvað viljið þið sjá kom­ast til leiðar og hvernig sjáið þið fram­tíð­ina fyrir ykkur varð­andi þetta verk­efni?

"WOMEN POWER er að verða sjálf­bært verk­efni og er stefnt á upp­bygg­ingu frum­kvöðla­set­urs fyrir kon­urnar í Bashay, set­urs sem skapar þeim athvarf til að hitt­ast, fræð­ast, miðla af reynslu sinni og hjálp­ast að við að koma við­skipta­hug­myndum sínum á kopp­inn. Með þessu móti styrkjum við sam­fé­lagið innan frá, hjálpum kon­unum að verða sjálf­bjarga og geta betur stutt við börnin sín, fætt þau og klætt og þannig skapað þeim bjart­ari fram­tíð."

Hvers konar verð­laun eru í boði fyrir að heita á ykkur?

Við vonum að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í þessu verk­efni með fjár­hags­legum stuðn­ingi. Í þakk­læt­is­skyni fyrir fram­lög eru m.a. boð á sýn­ingu heim­ild­ar­myndar um verk­efnið, arm­band eða jafn­vel snyrtitaska sem bæði er unnið af kon­unum í Bashay.

Nánari upp­lýs­ingar um verk­efnið og félaga­sam­tökin er að finna á facebook síðu verk­efn­is­ins: og á heima­síðu félaga­sam­tak­anna WOMEN POWER.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár