Karolina fund: Moments

Til stendur að setja upp enska upp­setn­ingu á verð­launa­út­varps­leik­rit­inu ‘Spor’ eftir Starra Hauksson, undir nafn­inu ‘Moments’. Teymið sam­anstendur af þeim Sindra Swan, Völu Fannel, Sigga Hólm, Braga Árnasyni og Aroni Trausta og Maya Lindh. Kjarninn hitti Sindra Swan og tók hann tali.

1. Um hvað fjallar verkið ‘Moments'?

'Moments’ fjallar um Andra sem í kjöl­far þungs missis hefur lokað sig af og að því er virð­ist misst allan lífs­vilja. Verkið snertir á þáttum eins og fjöl­skyldu, missi og fyr­ir­gefn­ingu um leið og það afhjúpar varn­ar­leysi sál­ar­innar sem og óstöð­ug­leika til­finn­inga­lífs­ins. Engu að síður er það leitt áfram af und­ir­báru vonar og vænt­um­þykju.

2. Hvernig varð þessi leikhópur til?

Af ein­beittum vilja til að skapa list. Leik­list­ar­heim­ur­inn er ekki stór og oft lítið um bita­stæð verk­efni, svo við sköpum okkar eigin. Einnig þjá­umst við af gríð­ar­legri for­vitni um mann­legt eðli og þar af leið­andi spyrjum við margra spurn­inga með þeim til­gangi að skapa leik­verk sem eru ekki bara skemmti­efni heldur eitt­hvað sem skipt getur sköpum í lífi áhorf­and­ans.


Moments | Teaser from Simple Life Productions on Vimeo.

Við í Moments-teym­inu erum mest­megnis Íslend­ingar, en leik­stjór­inn í þessu verk­efni er sænsk. Við eigum það öll sam­eig­in­legt að við lærðum bæði leik­list og leik­stjórn í sama skól­anum hér erlendis, The Kogan Academy of Dramatic Arts og mynd­uðum með okkur sterk tengsl á meðan þeim tíma stóð. Leik­hóp­ur­inn sam­anstendur af Step­byStep Productions rekið af Völu Fannell Simple Life Productions rekið af Maya Lindh og Sigga Hólm. Verk­efnið kom til þegar Aron Trausti var að leita sér að leik­verk­efni og ‘Spor' eftir Starra Hauksson kom upp á borðið. Hann lagði strax í að þýða það.

3. Hvers vegna London?

London er aðeins sú borg sem það vill svo til að við erum öll í á þessum tíma­punkti - Hér er mikil blanda mis­mun­andi menn­ing­ar­heima og þar af leið­andi mikið af fjöl­breytum tæki­færum í boði fyrir þá sem eru reiðu­búnir að vinna fyrir því. En öll viljum við bæði starfa á heima­slóð sem á erlendri grundu!

4. Verkið tekur á ýmsum tilfinningum. Var eitthvað sem kom ykkur á óvart í uppfærslunni?

Það sem verkið ber mjög skýrt fram er að það eru alltaf tvær hliðar á öllum málum, stundum þrjár. Það er ekk­ert fórn­ar­lamb, það er eng­inn blóra­bög­ull. Við verðum öll að bera ábyrgð á okkar hlut í hvaða máli sem gæti komið upp. Allir gera mis­tök. Eftir það er það bara spurn­ing hvort við getum fyr­ir­gefið öðrum og ekki síður, fyr­ir­gefið sjálfum okkur.


Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár