Karolina Fund: Leiðin okkar á EM 2016

Sölvi Tryggva­son hefur á und­an­förnum ára­tug unnið við fréttir og dag­skrár­gerð í íslensku sjón­varpi, auk rit­starfa. Sölvi starf­aði um ára­bil sem frétta­maður á Stöð 2 og vann við og rit­stýrði Íslandi í Dag á sömu sjón­varps­stöð. Hann hefur auk þess fram­leitt og rit­stýrt 10 ser­íum af sjón­varps­þátt­unum ,,Spjall­inu með Sölva" og frétta­skýr­inga­þætt­inum ,,Málinu" á und­an­förnum árum, sem hvor um sig hafa hlotið ítrek­aðar til­nefn­ingar til Eddu­verð­launa. Sævar Guð­munds­son leik­stjóri hefur unnið við kvik­mynda­gerð í áraraðir. Venni Páer, Réttur, Stelp­urnar, Sönn íslensk saka­mál, Ávaxtakarfan og Hæpið eru allt þættir sem hann hefur leik­stýrt. Hann hefur einnig leik­stýrt fjölda aug­lýs­inga heima og erlendis.

Þeir vinna nú að gerð heim­ild­ar­myndar um íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu og ótrú­legan árangur þess í und­ankeppni EM, sem hefur skilað lið­inu í loka­keppn­ina í Frakk­landi sum­arið 2016. Þeir safna nú fé til að geta klárað mynd­ina á Karolina Fund. Kjarninn ræddi við Sölva.

https://vimeo.com/137926454

Hvaða merk­ingu hefur það fyrir okkur litlu þjóð­ina að eiga þetta stóra lið?

"Það að eiga knatt­spyrnu­lið í fremstu röð fyrir þjóð sem telur aðeins rétt rúm­lega 300 þús­und manns er í raun stór­merki­legt. Þegar haft er í huga að knatt­spyrna er langstærsta og vin­sælasta íþrótta­grein í heimi er magnað að vita til þess að þessi örþjóð hafi náð svo stór­brotnum árangri. Enda er Ísland með árangrinum í und­ankeppni EM orðin fámenn­asta þjóð sög­unnar til að kom­ast á stór­mót í knatt­spyrnu karla. Hingað til hefur hand­boltalands­liðið séð um að þjappa þjóð­inni saman, en nú eru allra augu á knatt­spyrnu­lands­lið­inu í fyrsta sinn."

https://youtu.be/JEMRKYXO6_M

Hefur mikla þýðingu fyrir íslenska menningu


Fáum við eitt­hvað að skyggn­ast á bak­við tjöldin og kynn­ast leik­mönn­unum okkar og þjálf­urum?

"Í mynd­inni munum við fá að kynn­ast því starfi sem á sér stað í kringum lands­liðið á algjör­lega nýjan máta. Að baki hverjum ein­asta leik er mik­ill und­ir­bún­ingur og dag­ana fyrir leik er reglan á hlut­unum algjör og hugsað fyrir minnstu smá­at­riðum. Við höfum myndað og tekið við­töl á stöðum þar sem það hefur ekki verið gert áður, svo sem í sjúkra­her­bergjum, bún­ings­klefum eftir leiki, á hót­eli fyrir leiki og á liðs­fundum. Óhætt er að full­yrða að fólk muni sjá hlut­ina í dálítið nýju ljósi þegar varpað er ljósi á þessar hliðar."

Hvaða þýð­ingu hefur það fyrir íslenska menn­ingu að eiga þessa heim­ild­ar­mynd í safn­inu?

"Það hefur mikla þýð­ingu fyrir íslenska menn­ingu að eiga þessa mynd í safn­inu, þar sem flestir eru sam­mála um að um stærsta íþrótta­afrek Íslands­sög­unnar sé að ræða. Við höfum náð tugum klukku­stunda af heim­ildum í allri und­ankeppn­inni, sem hvergi hafa birst og hvergi munu birt­ast nema í þess­ari mynd. En verk­efnið er dýrt og við reynum nú að láta slag standa með hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund, þar sem reynt er að brúa það bil sem upp á vantar svo okkur tak­ist að búa til mynd sem við getum öll orðið stolt af."

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár