Atvinnuleysi var 3,2 prósent í júlí

Samkvæmt vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hagstofu Íslands var hlut­fall atvinnu­lausra í júlí 3,2 pró­sent. Að jafn­aði voru 197.500 manns á aldr­inu 16-74 ára á vinnu­mark­aði, sem jafn­gildir 84,5 pró­sent atvinnu­þátt­töku. Af þeim voru 191.200 starf­andi og 6.300 án vinnu og í atvinnu­leit.

Í sam­an­burði við júlí 2014 þá minnk­aði atvinnu­þátt­taka um 0,5 pró­sentu­stig. Hlutfall starf­andi af mann­fjölda minnk­aði um 0,3 stig og atvinnu­leysi var nán­ast það sama og í júlí 2014.

Leiðrétt fyrir árs­tíð­ar­sveiflum þá mælist atvinnu­leysi 4,3 pró­sent í júlí og fjölg­aði atvinnu­lausum frá fyrri mán­uði um 1.800 manns í 8.100. „Þrátt fyrir þessa aukn­ingu á milli mán­aða þá sýnir leitni vinnu­afl­stalna að atvinnu­leysi lækkar enn, eða um 0,2 pró­sentu­stig sé horft til síð­ustu sex mán­aða og um 0,7 stig á síð­ustu tólf mán­uðum. Hlutfall starf­andi síð­ustu sex mán­uði hefur auk­ist um 0,6 pró­sentu­stig og um eitt stig síð­ustu tólf mán­uði,“ segir á vef Hag­stof­unnar.

atvinnu­leysi | Create infographics

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár