Atvinnuauglýsingum hefur fjölgað - Streymir vinnuafl til landsins?

Merki um að vinnu­mark­aður hafi sótt í sig veðrið að und­an­förnu sjást víða. Veit­inga­hús og versl­anir leita að starfs­fólki og síð­ast­liðna helgi spönn­uðu atvinnu­aug­lýs­ingar í Frétta­blað­inu 23 blað­síður sam­an­borið við 17 þann 23. ágúst á síð­asta ári. Útlit er fyrir að þró­unin haldi áfram, þótt atvinnu­leysið fari ekki mikið neðar en það er í dag en á 2. árs­fjórð­ungi mæld­ist atvinnu­leysi fimm pró­sent.

Þetta segir grein­ing­ar­deild Arion banka í dag sem spyr hvort erlent vinnu­afl streymi til lands­ins á næstu árum. Til þess að vinnu­mark­aður haldi dampi þurfi fólki á vinnu­aldri að fjölga, bæði þurfi stórar árgangar að koma á vinnu­markað og aðfluttir þurfa að vera fleiri en brott­fluttir. Það er mat grein­ing­ar­deild­ar­innar að miðað við björt­ustu spár um ferða­manna­iðn­að­inn, þá gæti íslenskur vinnu­mark­aður reynst „hraða­hindrun“ í fjölgun ferða­manna.

„Það virð­ist einmitt vera að eiga sér stað,“ segir í Mark­aðs­punktum grein­ing­ar­deildar Arion banka um fjölgun erlends vinnu­fólks hér­lendis. „Samkvæmt spá Seðla­bank­ans mun starf­andi ein­stak­lingum fjölga um sam­tals 13.000 fram til árs­ins 2018 en á sama tíma er spáð að mann­afl­inn auk­ist um 11.500 ein­stak­linga. Á tíma­bil­inu gerir Hag­stofan ráð fyrir að 63% af fólks­fjölgun verði til komin vegna fæddra umfram dána og hin 37% vegna aðfluttra umfram brott­fluttra. Ef við gerum ráð fyrir að mann­afl­inn skipt­ist eins, munu því rúm­lega 4.000 manns flytja til lands­ins og koma inn í mann­afl­ann fram til árs­ins 2018,“ segir í Mark­aðs­punktum.

„Í ljósi fjölg­unar ferða­manna, hag­vaxt­ar­horfa og upp­gangs t.d. í bygg­ing­ar­iðn­aði er mögu­legt að eft­ir­spurn eftir starfs­fólki verði mun meiri en sem mann­fjölda­spá Hag­stof­unnar nemur? Mjög erfitt er að spá nákvæm­lega fyrir um hvort svo verði, en sé nánar rýnt í þróun á vinnu­mark­aði er senni­legt að flytja þurfi inn meira af erlendu vinnu­afli hingað til lands en spár gera ráð fyrir.“

Spurt er hvort íslenskt vinnu­afl geti tekið á móti fleiri ferða­mönnum. „Á árunum fyrir fjár­málakrepp­una var algengt að erlendir verka­menn störf­uðu í bygg­ing­ar­iðn­aði. Líklegt er að erlendu vinnu­afli fjölgi þar á næst­unni þar sem vax­andi umsvif eru í þeim geira um þessar mundir og stórar fram­kvæmdir, t.d. í kís­il­verum, eru á teikni­borð­inu. Í dag búum við einnig við mjög umsvifa­mikla ferða­þjón­ustu, sem krefst mik­ils mann­afla og vand­séð er hvernig íslenskur vinnu­mark­aður mun geta brugð­ist við áfram­hald­andi fjölgun ferða­manna um tugi pró­senta án þess að flutt verði inn erlent vinnu­afl í stórum stíl. Til dæmis lítur út fyrir að erlendum ferða­mönnum muni fjölga um 27-28% í ár.

Það er mat grein­ing­ar­deildar bank­ans að miðað við björt­ustu spár um fjölgun ferða­manna á næstu árum þá gæti íslenskur vinnu­mark­aður reynst hraða­hrind­run þegar kemur að fjölgun ferða­manna. „Ef fjölgun ferða­manna heldur áfram með jafn miklum hraða og vöxtur verður í öðrum atvinnu­greinum, t.d. bygg­ing­ar­iðn­aði, er mjög lík­legt að flutt verði inn erlent vinnu­afl í meira mæli en spár gera ráð fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár