Forseti ASÍ segir forsætisráðherra torvelda gerð kjarasamninga með ásökunum og hótunum

Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), segir Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, tor­velda gerð kjara­samn­inga með ásök­unum í garð verka­lýðs­for­yst­unnar og hót­unum um skatta­hækk­anir sem hann hafi við­haft í við­tali í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í dag.

Í áður­nefndu útvarps­við­tali sak­aði for­sæt­is­ráð­herra „marga“ for­ystu­menn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um að stunda póli­tík í yfir­stand­andi kjara­deilum á kostnað umbjóð­enda sinna. Að þeir gerðu allt hvað þeir geti til að gera rík­is­stjórn­inni sem erf­ið­ast fyrir.

Rikisstjórnin beri sjálf ábyrgð á stöðunni


Forseti ASÍ segir þetta af og frá. „Hins vegar hefur rík­is­stjórnin valið sér það hlut­skipti að standa vörð um efna­meiri fjöl­skyldur og fyr­ir­tæki í land­inu. Við þekkjum þetta með auð­legð­ar­skatt­inn og skatta­lækk­un­ina á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin, sem eru að skila millj­arða hagn­aði á hverju ári, og það hefur valdið mik­illi reiði í land­inu. Þeirri kröfu hefur verið beint að verka­lýðs­hreyf­ing­unni að hún krefj­ist rétt­lætis og jöfn­uðar og það kemur greini­lega eitt­hvað við kaunin á for­sæt­is­ráð­herra að við séum að krefj­ast þess að hér ríki eitt­hvað rétt­læti,“ segir Gylfi Arn­björns­son í sam­tali við Kjarnann.

For­sæt­is­ráð­herra sagði sömu­leiðis í útvarps­við­tal­inu á Bylgj­unni að til greina komi að hækka skatta á almenn­ing og fyr­ir­tæki í land­inu, ef veru­legar launa­hækk­anir kynda undir þenslu og verð­bólgu. Það sé ein þeirra fáu aðgerða sem stjórn­völd geti gripið til til að við­halda efna­hags­legum stöð­ug­leika.

Forseti ASÍ minnir í þessu sam­bandi á að samn­ingar sem ríkið stóð að á síð­asta ári, til að mynda við lækna, hafi leitt til þeirrar ólgu sem nú ríki á vinnu­mark­aði. „Við skulum ekki gleyma því að bæði fjár­mála­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra, og hvernig sá síð­ar­nefndi hvatti til samn­inga við lækn­ana, geta ekki firrt sig þeirri ábyrgð á því ástandi sem er hérna. En það heyrir algjör­lega til nýmæla að for­sæt­is­ráð­herra, í þeirri alvar­legu stöðu sem nú er, það eru tug­þús­undir manna að fara í verk­fall eftir tvo virka daga, að hann skuli velja sér tíma­punkt­inn til þess að fara fram með þessa vit­leysu, að hóta fólki skatta­hækk­unum ef það fær rétt­mætar launa­hækk­anir. Það er eins og for­sæt­is­ráð­herra vilji ögra fólki til að fara í verk­fall.“

Munu krefjast sérákvæðis ef til stendur að hækka skatta


Forseti ASÍ segir að for­sæt­is­ráð­herra hafi tor­veldað gerð kjara­samn­inga með ummælum sínum í dag. „Það liggur í augum uppi að verka­lýðs­hreyf­ingin verður að bregð­ast við þessum hót­unum um skatta­hækk­anir með þeim hætti að krefj­ast þess að í for­sendu­á­kvæði kjara­samn­inga verði sett inn ákvæði um það að ef rík­is­stjórnin hækki skatta á launa­fólk þá verði samn­ingar lausir,“ segir Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár