Starfsgreinasambandið vísar deilu til Félagsdóms

SGS hefur sam­þykkt að höfða mál fyrir Félags­dómi þar sem látið verður reynt á túlkun samn­ings­á­kvæð­is­ins frá 2009 um skyldu sveit­ar­fé­laga til þess að ganga til kjara­samn­ings­við­ræðna um jöfnun líf­eyr­is­rétt­inda.

Starfs­greina­sam­band Íslands hefur sam­þykkt að höfða mál fyrir Félags­dómi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá sam­band­inu.

Í henni segir að SGS harmi þá afstöðu Samn­inga­nefndar Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, að neita að ganga til kjara­samn­ings­við­ræðna um hvernig ná megi fram jöfn­uði milli almenna og opin­bera líf­eyr­is­kerf­is­ins, sér­stak­lega hvað félags­menn aðild­ar­fé­laga SGS og almennt verka­fólk í þjón­ustu sveit­ar­fé­lag­anna varði, líkt og samið hafi verið um í kjara­samn­ingum 7. júlí 2009.

[adspot]

„Nú þegar hefur stærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins ákveðið að efna sam­komu­lag aðila fyrir sitt leiti en önnur þverskall­ast við og neita ein­fald­lega að ganga til við­ræðna um jöfnun líf­eyr­is­rétt­inda starfs­manna sinna á þeirri for­sendu að þau hafi aldrei und­ir­geng­ist slíka skyldu.

SGS hafnar þeirri afstöðu alfarið enda ráð gert fyrir þess­ari óefndu jöfnun í öllum for­sendum og útreikn­ingum aðila eftir 2009,“ segir í til­kynn­ing­unni.

For­manna­fundur SGS sam­þykkir því að sam­bandið muni höfða mál fyrir Félags­dómi þar sem látið verður reynt á túlkun samn­ings­á­kvæð­is­ins frá 2009 um skyldu sveit­ar­fé­laga til þess að ganga til kjara­samn­ings­við­ræðna um jöfnun líf­eyr­is­rétt­inda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár