BSRB gefur ríki og sveitarstjórnum gula spjaldið

Ef ekki verður gengið til kjara­samn­inga við opin­bera starfs­menn strax er næsta skrefið að boða til verk­falla sem geta lamað almanna­þjón­ust­una, sagði Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, á bar­áttufundi í dag.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB. Mynd: Aðsend

„Í dag eru liðnir tíu langir mán­uðir frá því kjara­samn­ing­arnir okkar runnu út. Í þessa tíu mán­uði hafa ríkið og sveit­ar­fé­lögin reynt að þreyta okkur og fá okkur til að falla frá ykkar kröfum um bætt kjör. Í tíu mán­uði höfum við haldið áfram bar­átt­unni og við erum hvergi nærri hætt.“

Á þessu orðum hóf Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, ávarp sitt á bar­áttufundi í Háskóla­bíói sem hófst klukkan 17 í dag. Um sam­eig­in­legan fund BSRB, Banda­lags háskóla­manna (BHM) og Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga (Fíh) er að ræða. Á sama tíma standa yfir bar­áttufundir félags­manna víða um land. Félögin krefj­ast þess nú að ríki og sveit­ar­fé­lög gangi taf­ar­laust til samn­inga við starfs­fólk sitt.

„Þol­in­mæðin sem við áttum nóg af í byrjun apríl í fyrra er löngu þrotin,“ sagði Sonja Ýr. „Mér er mis­boðið fyrir hönd félags­manna yfir þessum seina­gangi. Biðin eftir kjara­bótum er orðin allt of löng á meðan öll útgjöld eru að hækka. Við ætlum ekki að láta bjóða okkur upp á það, að við­semj­endur okkar dragi lapp­irnar í kjara­við­ræð­unum, dag eftir dag, viku eftir viku og mánuð eftir mánuð.“

Vinnuvikan verði stytt án kjaraskerðinga

Hún sagði að í kjara­við­ræðum nú væri mark­mið BSRB að ná fram stórum kerf­is­breyt­ingum. „Við krefj­umst þess að vinnu­vikan verði stytt án kjara­skerð­ingar og að laun verði jöfnuð milli opin­bera og almenna vinnu­mark­að­ar­ins.“ Sagði hún félagið koma vel und­ir­búið til leiks, með skýrar kröfur og leiðir. Við samn­inga­borðið sé því hins vegar mætt með fálæti. Hún segir við­semj­endur hafa verið illa und­ir­búna og að skort hafi á samn­ings­vilj­ann.

„Ætlum við að sætta okkur við þessa stöðu? Eða eigum við að grípa til aðgerða til að snúa stöð­unni okkur í hag, og knýja við­semj­endur til að sýna okkur þá lág­marks­virð­ingu, að semja við sitt starfs­fólk um kaup og kjör?“ spurði Sonja Ýr við­stadda í Háskóla­bíói.

Næsta skrefið að boða til verkfalla

Sagði hún opin­bera starfs­menn í gegnum tíð­ina hafa þurft að berj­ast af hörku fyrir öllum helstu kjara­bótum sem þeir hafa fengið. „Ef við þurfum að leggja í enn einn slag­inn til þess að ná mark­miðum okkar þá gerum við það.“

Sam­staðan skipti sköpum og eng­inn skortur væri á henni.

„Nú gefum við sveita­stjórnum og rík­is­stjórn­inni gula spjaldið! Ef ekki verður gengið til kjara­samn­inga við opin­bera starfs­menn strax er næsta skrefið að boða til verk­falla sem geta lamað almanna­þjón­ust­una. Það er ekki staða sem við óskum okkur, en ef það reynir á okkar sterkasta vopn, þá munum við beita því.“

Tíu mán­uðir væru of langur tími og að ekki yrði beðið lengur heldur kraf­ist kjara­samn­inga strax.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár