Brotastarfsemi aukist á íslenskum vinnumarkaði

Samkvæmt nýrri rann­sókn ASÍ eru vís­bend­ingar um að launa­þjófn­aður og brot á kjara­samn­ings­bundnum rétt­indum séu alltof algeng hjá erlendu launa­fólki, ungu fólki og hinum tekju­lægstu.

Margt bendir til þess að jað­ar­setn­ing og brota­starf­semi í efna­hags­líf­inu hafi auk­ist á íslenskum vinnu­mark­aði, sam­kvæmt nýrri rannókn ASÍ en hún byggir á skoð­ana­könn­unum og launa­kröfum stétt­ar­fé­laga.

Samkvæmt ASÍ fá stétt­ar­fé­lög inn á borð til sín fleiri og alvar­legri mál en áður tengd launa­þjófn­aði og kjara­samn­ings­brotum. Brotin virð­ast einkum bein­ast gegn hópum sem síður þekkja rétt sinn, það er erlendu launa­fólki, ungu fólki og ein­stak­lingum með lágar tekjur. ASÍ bendir á að við þessum brotum séu í dag engin við­ur­lög en sam­bandið telur það óásætt­an­legt að atvinnu­rek­endur geti óátalið brotið með þessum hætti á launa­fólki og telur for­gangs­mál að sett verði ákvæði um við­ur­lög við slíkum brotum í lög og kjara­samn­inga.

Ómögulegt að manna aukin umsvif án aðkomu erlends launafólks

Í ský­sl­unni segir að und­an­farin miss­eri hafi umræða um brota­starf­semi á vinnu­mark­aði, launa­þjófnað og brot á rétt­indum launa­fólks farið vax­andi. Þessi umræða hafi að ein­hverju leyti hald­ist í hendur við upp­gang í efna­hags­líf­inu, hraðan vöxt í ferða­þjón­ustu og bygg­ing­ar­iðn­aði og auk­inn fjölda erlends launa­fólks á íslenskum vinnu­mark­aði.

„Án aðkomu erlends launa­fólks hefði íslensku atvinnu­lífi reynst ómögu­legt að manna aukin umsvif á und­an­förnum árum. Erlendum rík­is­borg­urum á íslenskum vinnu­mark­aði hefur fjölgað mikið síð­ustu ár og eru nú um fimmt­ungur allra starf­andi,“ segir í skýrsl­unni. 

Annar veruleiki fyrir erlent launafólk, ungt fólk og þá tekjulægstu

Í skýrsluni er sjónum sér­stak­lega beint að erlendu launa­fólki á íslenskum vinnu­mark­aði og varpað ljósi á skýrar vís­bend­ingar um launa­þjófnað og brota­starf­semi sem launa­fólk verður fyrir á vinnu­mark­aði.

Nið­ur­stöð­urnar benda til þess að íslenskur vinnu­mark­aður sé tví­skiptur þegar horft er til brota­starf­sem­innar. Annars vegar er það veru­leik­inn sem meiri­hluti launa­fólks býr við þar sem kjara­samn­ings­brot eru fátíð eða nær óþekkt. Hins vegar er það veru­leik­inn sem mætir erlendu launa­fólki, ungu fólki og hinum tekju­lægstu þar sem vís­bend­ingar eru um að launa­þjófn­aður og brot á kjara­samn­ings­bundnum rétt­indum séu alltof algeng.

Helstu nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar eru eft­ir­far­andi:

  • Launa­kröfur vegna launa­þjófn­aðar og kjara­samn­ings­brota hlaupa á hund­ruðum millj­óna króna á ári.
  • Fjögur aðild­ar­fé­lög ASÍ gerðu 768 launa­kröfur árið 2018 upp á sam­tals 450 millj­ónir króna og nam mið­gildi kröfu­upp­hæðar 262.534 kr.
  • Meira en helm­ingur allra krafna stétt­ar­fé­laga eru gerðar fyrir hönd félags­manna af erlendum upp­runa. Um 19% launa­fólks á íslenskum vinnu­mark­aði er af erlendum upp­runa.
  • Um helm­ingur allra krafna kemur úr hótel-, veit­inga- og ferða­þjón­ustu en hæstu launa­kröf­urnar eru gerðar á fyr­ir­tæki í mann­virkja­gerð.
  • Nið­ur­stöður spurn­inga­könn­unar Gallup eru í takt við launa­kröfur stétt­ar­fé­laga og benda til þess að brota­starf­semi bein­ist fremur gegn erlendu launa­fólki og yngra fólki, með lægri tekjur og í óreglu­legu ráðn­ing­ar­sam­bandi og hluta­störfum.
  • Skoðun á launa­kröfum og spurn­inga­könn­unin benda til að brotin felist m.a. í van­greiðslum á launum, álags­greiðslum og ýmsum rétt­inda­brotum.
  • Hjá meiri­hluta launa­fólks, einkum hjá þeim sem hafa lengri starfs­aldur og hærri tekjur, er brota­starf­semi nærri óþekkt. Brota­starf­semi gagn­vart erlendu launa­fólki og ung­mennum er alvar­leg mein­semd á íslenskum vinnu­mark­aði sem upp­ræta verður með öllum til­tækum ráðum. Dæmin skipta ekki bara tugum eða hund­ruðum. Brotin snerta þús­undir ein­stak­linga. Þessir félagar okkar eiga að njóta kjara og ann­arra rétt­inda til jafns við aðra á vinnu­mark­aði. Það eru hags­munir sam­fé­lags­ins alls. Hér er ábyrgð stjórn­valda og sam­taka atvinnu­rek­enda mikil.
  • Bæta þarf lög­gjöf og reglu­verk. Lögbinda verður hörð við­ur­lög og sekt­ar­greiðslur vegna launa­þjófn­aðar og ann­arra brota gegn launa­fólki
  • Efla þarf upp­lýs­inga­miðlun, eft­ir­lit á vinnu­mark­aði og eft­ir­fylgni vegna brota­starf­semi. Bæta með kerf­is­bundnum hætti sam­starf og sam­vinnu stjórn­valds­stofn­ana og aðila vinnu­mark­að­ar­ins með sam­ræmdri og öfl­ugri upp­lýs­inga­miðlun.
  • Stuðn­ingur við brota­þola. Tryggja verður að þeir ein­stak­lingar sem brotið er á sæki rétt sinn með stuðn­ingi verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og sam­fé­lags­ins alls og þeir njóti öryggis og skjóls.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár