Ekki nóg að fordæma ofurlaun einu sinni á ári án þess að aðhafast nokkuð

Mið­stjórn ASÍ hvetur Alþingi til að sam­þykkja að birta álagn­ing­ar­skrár með raf­rænum hætti, þar sem birtir eru allir álagðir skattar, þannig að aðgengi að þessum sam­fé­lags­lega mik­il­vægu upp­lýs­ingum sé tryggt.

ASÍ telur að Íslend­ingar þurfi að bregð­ast við „þeirri móðgun og aug­ljósu stétta­skipt­ingu“ sem birt­ist í hvert sinn sem skatt­skrár eru gerðar opin­berar. Ekki sé nóg að for­dæma ofur­laun einu sinni á ári án þess að aðhaf­ast nokkuð. Tími sé kom­inn til aðgerða. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sam­band­inu.

„Komið hefur í ljós að sú aðgerð að leggja niður kjara­ráð hefur valdið launa­skriði hjá þeim hæst­laun­uðu hjá rík­inu. Það var engin umræða um sann­gjörn laun í tengslum við þá aðgerð. Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart. Á meðan við leggjum ekki skýrar línur í þessum málum skiptir engu máli hverjir ákveða launin. Einföld aðgerð eins og að breyta því hverjir ákveða laun þeirra launa­hæstu skilar engu rétt­læti í sjálfu sér án skýrra reglna um launa­á­kvarð­anir. Til­hneig­ingin er alltaf sú að þeir sem hafa meira fá meira og þeir sem minna hafa fá minna. Það er löngu tíma­bært að mótuð verði skýr og sann­gjörn launa­stefnu hjá rík­inu og í stjórnum fyr­ir­tækja, stofn­ana og félaga­sam­taka,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Festa þurfi í lög að fyr­ir­tæki geri grein fyrir launa­bili í árs­reikn­ingum og þurfi stjórn­völd að setja skýra launa­stefnu þar sem til­greint sé hvert launa­bilið megi vera á milli þeirra hæst laun­uðu og lægst laun­uðu.

Mið­stjórn ASÍ hvetur full­trúa í stjórnum, trún­að­ar­menn á vinnu­stöðum, stjórn­mála­fólk, starfs­fólk og stjórn­endur til að ræða launa­mun innan þeirra fyr­ir­tækja og stofn­ana sem og innan sam­fé­lags­ins alls. Hún telur að móta þurfi stefnu sem byggi á nið­ur­stöðu þess sam­tals.

„Það er afar brýnt að allir lands­menn greiði skatta og gjöld til sam­fé­lags­ins óháð upp­runa tekna, svo sem arð­greiðslur úr fyr­ir­tækjum eða fjár­magnstekjur. Upp­lýs­ingar um slíkt þurfa að vera aðgengi­legar og gagn­sæjar. Mið­stjórn ASÍ hvetur Alþingi jafn­framt til að sam­þykkja að birta álagn­ing­ar­skrár með raf­rænum hætti, þar sem birtir eru allir álagðir skattar, þannig að aðgengi að þessum sam­fé­lags­lega mik­il­vægu upp­lýs­ingum sé tryggt,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár