Forsætisráherra sakar suma forystumenn verkalýðshreyfingarinnar um að stunda pólitík

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, sakar ein­staka for­ystu­menn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um að stunda póli­tík á kostnað umbjóð­enda sinna í yfir­stand­andi kjara­deilum. Þetta kom fram í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í dag. Sumir verka­lýðs­for­ingjar geri allt hvað þeir geti til gera rík­is­stjórn­inn sem erf­ið­ast fyrir.

Aðspurður um hvort honum finn­ist yfir­stand­andi verk­falls­að­gerðir vera póli­tískar, og hvort verka­lýðs­hreyf­ingin væri her­skárri nú en í tíð fyrri rík­i­s­tjórnar, sagði for­sæt­is­ráð­herra svo vera.

„Tví­mæla­laust. Mér finnst þetta vera óvenju póli­tískar vinnu­deilur núna, og ég held ég sé ekki einn um það. Ekki af hálfu laun­þeg­anna heldur af hálfu margra for­ystu­manna laun­þega­hreyf­ing­ar­innar. Sem að mínu mati ganga sumir hverjir allt of langt í því að nota stöðu sína sem trún­að­ar­menn þess­ara félaga í póli­tískum til­gangi. Það er að segja í bar­áttu við stjórn­völd á nýjum víg­velli, ef svo má segja, haf­andi talið sig hafa farið hall­oka í kosn­ingum. Það sem er sér­stak­lega slæmt við þetta er að með því eru þeir hugs­an­lega að fórna hags­munum umbjóð­enda sinna, ef þeir ganga það langt að við missum verð­bólg­una hér á fullt og kjörin rýrna á sama tíma og lánin hækka, það væri býsna dýr póli­tísk aðgerð.“

Margir þeirra vilja koma ríkistjórninni frá


Aðspurður um hvort um póli­tískar aðgerðir væri að ræða til að koma rík­is­stjórn hans frá völdum, svar­aði Sig­mundur Davíð: „Eflaust langar þá marga til að koma rík­is­stjórn­inni frá, það er svo sem ekk­ert laun­ung­ar­mál. En hins vegar bitnar verð­bólgan ekki verst á rík­inu. Ríkið getur mjög fljótt lagað sig að verð­bólgu og verð­bólga jafn­vel aukið hag­vöxt og aukið tekjur rík­is­ins ef menn grípa til ráð­staf­ana til að hafa tekjur af verð­bólg­unni, þannig að ríkið mun spjara sig. En það eru helst umbjóð­endur þess­ara for­ystu­manna verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem myndu bíða skaða af, sem væri svo gríð­ar­lega mikil synd því núna er ein­stakt tæki­færi til að halda áfram að auka raun­veru­legan kaup­mátt á Íslandi, bæta kjörin og bæta sér­stak­lega kjörin hjá lægri og milli­tekju­hóp­unum. Vonandi ná menn nú saman um það að skipta þessum ávinn­ingi á sann­gjarnan hátt þannig að við getum stjórn­völd bætt í, haldið áfram að stuðla að auknum jöfn­uði og nýtt öll þessi jákvæðu vopn sem stjórn­völd hafa inn í þessa stöðu.“

Aðspurður um hvort honum finn­ist verka­lýðs­for­ystan óvenju óbil­gjörn um þessar mundir, og hvort hann teldi hana vera að reyna að gera rík­is­stjórn hans sem erf­ið­ast fyrir, svar­aði for­sæt­is­ráð­herra: „Mér finnst sumir af for­ystu­mönnum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar tala með þeim hætti já, þegar þeir fara í það að rök­styðja aðgerðir sínar fyrst og fremst með vísan í póli­tík og óánægju með póli­tíska stefnu og þar fram eftir göt­unum. Eða bara ein­fald­lega óánægju með það að til­teknir flokkar séu við völd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár