Forsætisráðherra segir skattahækkanir koma til greina til að spyrna gegn verðbólgu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, segir koma til greina að ráð­ast í skatta­hækk­anir á almenn­ing og fyr­ir­tæki í land­inu til að spyrna gegn þenslu og verð­bólgu. Þetta sagði for­sæt­is­ráð­herra í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í dag. Skatta­hækk­anir séu ein af fáum aðgerðum stjórn­valda sem hægt sé að grípa til ef veru­legar launa­hækk­anir ógna stöð­ug­leik­anum.

„Ég er ekki að boða þetta, ég er bara að segja að ef við horfum fram á veru­lega verð­bólgu þá mun auð­vitað þurfa að bæta kjör öryrkja, það þarf að auka bætur til sam­ræmis við verð­lags­þróun. [...] Ef verð­bólga fer af stað þá felur það í sér auk­inn kostnað hjá rík­inu í mjög stórum liðum eins og í almanna­trygg­inga­kerf­inu, sem þýðir ein­fald­lega að ríkið þarf meiri tekjur,“ sagði Sig­mundur Davíð í útvarps­við­tal­inu. „Um leið þarf ríkið að hafa hamlandi áhrif á verð­bólg­una, frekar en að ýta frekar undir hana.“

Sig­mundur Davíð ítrek­aði að þetta væri ein­ungis ein af þeim aðgerðum sem væri til skoð­unar hjá stjórn­völdum. „Þetta er bara ein af þeim aðgerðum sem menn líta til og hafa gert í gegnum tíð­ina til að bregð­ast við þenslu. Seðla­bank­inn seg­ist muna þurfa hækka vexti, hlut­verk rík­is­valds­ins að öðru leyti við þessar aðstæður hefur yfir­leitt verið að hækka skatta og gjöld frekar en hitt til að ná jafn­vægi aftur í hag­kerf­inu.“

Þá sagði for­sæt­is­ráð­herra að lokum: „Ég er ekki að boða þetta og ég vona svo sann­ar­lega að það verði samið á þann hátt að aðkoma rík­is­ins geti falist í því að auka enn á ráð­stöf­un­ar­tekjur og auka enn á kaup­mátt­inn, en ein af fáum leiðum sem stjórn­völd hafa til að bregð­ast við þenslu í efna­hags­líf­inu eru skatta­hækk­anir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár