Karolina Fund: Gulrófusnakkverksmiðja Prins Póló-hjónanna

Berglind Häsler og Svavar Pétur Eysteins­son freista þess að hóp­fjár­magna Snakkverk­smiðju á Karolina Fund. Verk­smiðjan rís í gömlu fjósi á búgarði þeirra Karls­stöðum í Berufirði, en Sveita­snakkið er afrakstur þró­un­ar­vinnu sem hófst fyrir tveimur árum síðan.

Svavar Pétur þekkja flestir sem tón­list­ar­mann­inn Prins Póló en hann átti mik­illi vel­gengni að fagna á síð­asta ári með plöt­unni Sorrí auk þess sem tón­listin úr kvik­mynd­inni París norð­urs­ins gerði storm­andi lukku. Berglind leikur á hljóm­borð með Prins Póló en þau hjónin leika einnig með hljóm­sveit­unum Skakkamanage og Létt á bár­unni. Svavar og Berglind mark­aðs­settu Bulsur, græn­metisp­ulsur, vorið 2012 og not­uð­ust þá líka við Karolina Fund til að koma verk­efn­inu á kopp­inn.

Bulsur hafa átt vel­gengni að fagna og fást nú í fjölda versl­ana víða um land. Berglind starf­aði sem frétta­maður á RÚV á Aust­ur­landi og í Reykja­vík og Svavar er graf­ískur hönn­uður. Þau ráku um tíma gall­er­íið og plötu­búð­ina Havarí í Aust­ur­stræti og hafa nú blásið nýju lífið í apparatið á Karls­stöðum.

[caption id="attachment_22868" align="alignnone" width="800"] Í snakkverk­smiðj­unni verða fram­leiddar gul­rófuflögur.[/caption]

Umbreyttust úr hundraðogeinn rottum í landsbyggðartúttur


Segið okkur frá þess­ari ákvörðun að flytja út í sveit og ger­ast bændur. Hvað rekur tón­list­ar­fólk í slíkar lífs­stíls­breyt­ingar?

„Frá því við kynnt­umst höfum við eytt mikið af okkar frí­tíma úti í sveit. Upp í bústað, inni í tjaldi eða að rúnta um sveitir lands­ins. Við umbreytt­umst því á skömmum tíma úr hund­raðogeinn rottum í lands­byggða­túttur sem end­aði með því að við keyt­pum jörð á Aust­fjörðum og byrj­uðum að búa. Fast­eigna­verð í Reykja­vík hjálpar líka heil­mikið til við að láta sveita­draum­inn ræt­ast. Þegar fjöl­skyldan stækkar og maður sér fram á að eyða nokkrum millj­ónum í að bæta við einu svefn­her­bergi þá byrjar maður ósjálfrátt að leita að eign í fjar­lægum póst­núm­erum. Við höfum líka áhuga á mat­væla­fram­leiðslu og nýsköpun á því sviði og íslenska sveitin er kjör­inn vett­vangur fyrir þess konar brall."

Sveita­snakk er nýjasta afurðin ykkar. Getið þið sagt okkur frá því og frá söfn­un­inni fyrir því að breyta fjósi í snakkverk­smiðju?

„Við byrj­uðum að þróa snakk úr gul­rófum haustið 2013 og eftir miklar til­raunir end­uðum við með afurð sem okkur lang­aði að mark­aðs­setja. Varan heitir Sveita­snakk og er úr bök­uðum gul­rófuflögum sem eru krydd­aðar með ferskum chili og hvít­lauk. Þær eru ekki djúp­steiktar. Gulrófur er mein­hollar og fullar af C-vítamíni og inni­halda mun minna magn af kol­vetnum en kart­öflur. Þegar við vorum svo sest að í sveit­inni kvikn­aði sú hug­mynd að fram­leiða snakkið á búgarð­inum og hóf­umst við þá handa við að umbreyta fjós­inu í snakkverk­smiðju. Verkið hófst síð­ast­liðið haust og við erum á loka­metr­unum núna. Eins og gefur að skilja þá kostar svona fram­kvæmd eyrun af og brugðum við því á það ráð að hefja hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund. Fjár­mögn­unin virkar þannig að fólk getur keypt sér upp­lif­una á þeim afurðum sem Karls­staða­búið hefur fram að færa. Í boði er gist­ing í gesta­hús­inu, Bulsu­veisla, einka tón­leikar með Prins Póló í hlöð­unni, heim­sókn í sveita­snakkverk­smiðj­una og svo auð­vitað fyrsti skammtur af afurð­inni, brak­andi Sveita­snakk beint frá bændum!"

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár