Karolina Fund: Rúnturinn, séríslensk jaðarmenning

Leik­stjór­inn Stein­grímur Dúi Másson er að vinna að gerð sjón­varps­þátta sem bera nafnið Rún­t­ur­inn. Þar er fylgst með menn­ing­ar­fyr­ir­brigð­inu "rúnt­inum" í bæjum vítt og breytt um landið. Þeir rúntar sem yrðu fyrir val­inu voru rún­t­ur­inn á Akranesi, Akureyri, Blöndu­ósi, Egils­stöðum, Hólmavík, Höfn, Ísafirði, Keflavík, Reykja­vík and Vest­manna­eyjum.

Það sem gerir þætt­ina mjög áhuga­verða eru hlut­verk umsjón­ar­mann­anna Ólafs Jóns­sonar og Hákonar Viðars, þar sem þeir þótt­ust hafa mik­inn áhuga á bílum og rúnt­inum sem þeir höfðu í raun ekki.

Nostalgía frá tíunda áratugnum


Stein­grímur sagði Kjarn­anum frá þessu nostal­gíu verk­efni frá tíunda ára­tugnum, sem nú er að vakna til lífs­ins á ný. "Rún­t­ur­inn er 10 þátta sjón­varps­þátta­röð í fram­leiðslu Friðriks Þórs Frið­riks­sona í leik­stjórn und­ir­rit­aðs. Verk­efnið fjallar um tvo unga menn þá Hákon Viðar og Ólaf Jónsson sem ferð­ast um landið á ryðg­uðum amer­ískum van og kynna sér rúnt­inn með því að taka þátt í honum. Upp­haf­lega var um að ræða heim­ild­ar­mynd sem tekin var upp sum­arið 1999.

Þar sem myndin var gerð í svoköll­uðum observational stíl þá voru mynda­vél­arnar látnar ganga við­stöðu­laust en í verkið fóru fimm helgar í tíu bæjum á Íslandi. Þess vegna, er tökum lauk, vorum við með gríð­ar­legt magn af upp­teknu efni sem ég vissi að mik­ill hluti færi til spillis ef ég héldi fast í upp­runa­legu hug­mynd­ina að 90 mín heim­ild­ar­mynd. Þar með varð hug­mynd að sjón­varps­þátta­röð til. Síðan lagð­ist verk­efnið í dvala og önnur verk­efni tóku við en ég gat bara aldrei afskrifað það í huga mér, það var alltaf ein­hver hugsun um að verk­efnið þyrfti að klára fyrst og fremst til að koma því frá mér sem menn­ing­ar­arfi og heim­ild um sér­ís­lenska jað­ar­menn­ingu."

Viðmælendurnir eiga sviðið


Stein­grímur Dúi segir að þætt­irnir verði ein­stakir að því leyti að nálgun á við­fangs­efnið sé algjör­lega á jafn­ingja­grund­velli. "Við leyfum við­mæl­end­unum að eiga sviðið og í raun stjórna atburða­rásinni sem er ein af grund­vall­ar­reglum observational heim­ild­ar­mynd­ar­innar. Við gengum jafn­vel svo langt í því að reyna að sam­sama okkur þess­ari menn­ingu að umsjón­ar­menn­irnir drekka stundum í mynd­inni til að falla inn í fjöld­ann.

En aðal­at­riði þátt­anna er auð­vitað hið frá­bær­lega skemmti­lega unga fólk sem við hittum á rúnt­inum og sem í raun leiðir áhorf­and­ann um rúnt­menn­ingu bæj­anna í hverjum þætti fyrir sig. Hver þáttur verður 25 mín og bæjir sem koma við sögu eru: Akranes, Akureyri, Blönduós, Egils­staðir, Hólmavík, Höfn, Ísa­fjörður, Keflavík, Reykja­vík and Vest­manna­eyjar."

https://vimeo.com/116081287

Hugmyndin kviknaði á Blönduósi


Af hverju fóruð þið út í þetta?

"Upp­haf­lega þegar ég hitti Friðrik Þór og viðr­aði hug­mynd­ina fyrir honum sagði hann „þetta er svona let´s make a movie dæmi, gerum þetta!“ Uppruna hug­mynd­ar­innar má rekja til þess eitt sumar er ég var 17 ára gam­all og vann sem leið­sögu­maður í Víðdalsá þá heill­aði rún­t­ur­inn mig á Blöndu­ósi, sér­stak­lega fannst mér hann áhuga­verður vegna þess hversu lít­ill bær­inn var en rún­t­ur­inn á móti öfl­ugur og skemmti­legur. Þannig tog­aði þessi hug­mynd í mig lengi að það yrði að gera heim­ild um þetta fyr­ir­bæri. Þegar Friðrik Þór sagði já, var hægt að fram­kvæma hug­mynd­ina.


16 ára ferli


Hvað er langt síðan þið hófuð verk­efnið og hvers vegna ákvaðstu að byrja eft­ir­vinnsl­una núna?

"Það eru komin 16 ár síðan. Ég lauk MA námi í menn­ing­ar­stjórnun ekki alls fyrir löngu frá Háskól­anum á Bifröst og fjall­aði um fyr­ir­bærið rúnt­inn og þetta verk­efni í loka­verk­efn­inu. Huti af því var að hefja klipp­ingu á Rúntinum auk þess að greina verk­efnið og menn­ing­una í kringum rúnt­inn.

Friðrik Þór hefur auð­vitað alltaf viljað klára og ég finn fyrir þörf til að koma þessu af mínum herðum, til að klippa á nafla­streng­inn á milli mín og Rúntsins. Helstu rökin fyrir því að leggja í þá vinnu að ljúka við 16 ára gam­alt verk­efni er marg­þætt en fyrst ber að nefna menn­ing­ar­legt gildi verk­efn­is­ins sem ég tel að sé ótví­rætt og eigi erindi við íslenskan almenn­ing. Í öðru lagi er heim­ildin mjög hrein­skiptin og hefur að vissu leyti engan afger­andi stíl þannig að efnið er að mörgu leyti tíma­laust og eld­ist vel, í þriðja lagi er þetta afar skemmti­legt efni og verður áhuga­vert í sjón­varpi og í fjórða lagi þá vil ég losna við verk­efnið af mínum herðum, eins og áður hefur komið fram, og fram­leið­and­inn vill sjá verk­lok."

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár