Japanskur sálfræðitryllir, hinsegin aktívismi og aðventutónleikar

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 22. nóv­em­ber til 6. des­em­ber.

Japanskur sálfræðitryllir, hinsegin aktívismi og aðventutónleikar

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Samstöðu- og styrktarpartí fyrir Elvar

Hvar? Hard Rock Café
Hvenær? 6. des­em­ber kl. 19:.00
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Fáir hljóð­menn hafa verið jafn afkasta­miklir og Elvar Geir Sæv­ars­son, en auk þess að vera einn helm­ingur af sveit­inni Helvar þá hefur hann verið í hljóð­básnum hjá að minnsta kosti annarri hverri rokk­sveit lands­ins. Því ætti ekki að koma á óvart að þegar hann fékk heila­blóð­fall í haust vildu margir leggja sitt af mörkum til að hjálpa honum, og því var efnt til þessa styrkt­ar­tón­leika. Fram koma stór­sveitir eins og HAM, Sól­stafir og Skálmöld, auk Morð­ingj­anna, Momentum, Kolrössu krókríð­andi, Fleka, Volcanova, Devine Defilem­ent og Dr. Gunna og hljóm­sveit. DJ Töfri lýkur síðan kvöld­inu með stæl. Auk aðgangs­eyris er tekið við frjálsum fram­lögum.

Andy Svarthol útgáfutónleikar

Hvar? Hress­ing­ar­skál­inn
Hvenær? 22. nóv­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Til­finn­inga­ríka tvíeykið sem myndar kjall­ara­poppsveit­ina Andy Svarthol fagnar útkomu fyrstu breið­skífu sinnar Mörur á Hressó. Platan verður flutt í heild sinni, en sama dag verður hún fáan­leg í vín­yl­út­gáfu. Fleiri atriði koma fram á þessu kvöldi, en skáldið Bragi Páll Sig­urð­ar­son les meðal ann­ars úr nýút­kominni skáld­sögu sinni, Austur.

Unfiled sjónleikar I

Hvar? Mengi
Hvenær? 22. nóv­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Þetta eru fyrstu af þremur Unfiled sjón­leika­kvöldum, en þeir eru eins konar til­rauna­stofa þar sem mis­mun­andi lista­menn spinna ólík verk í hljóð og mynd. Á þessu kvöldi koma fram Atli Bollason og Guð­mundur Úlf­ars­son, en þeir eru báðir reyndir raf­tón­list­ar­menn sem eru betur þekktir sem Allen­heimar og Good Moon Deer.

The Irishmen

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 22. nóv.–12. des.
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Martin Scorsese á að baki sér langan og virtan feril sem kvik­mynda­gerð­ar­maður, en margir gagn­rýnendur segja að nýjasta myndin, The Irishman, sé besta mynd hans í 30 ár. Hún er byggð á sannri sögu um leigu­morð­ingja sem á að hafa drepið verka­lýðs­for­ingj­ann Jimmy Hoffa.

Doomcember 2019

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 22.–23. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: 5.500 kr.

Doomcember er árlegur fögn­uður dúm­hljóm­sveita, en þær ein­kenn­ast af þungum, hægum og leðju­kenndum hljóð­færa­leik og eru því hið full­komna tón­list­ar­form til að hrista af sér skamm­deg­is­dep­urð­ina og fagna myrkri vet­urs­ins. Í ár teygir hátíðin sig yfir tvö kvöld og koma eft­ir­far­andi hljóm­sveitir fram: Nornagal, Kvelja, Morp­holith, Sat­urna­lia Temple, Plastic Gods, Slor, Dynfari, Katla, Sunnata og Godchilla. 

Örlagaþræðir

Hvar? Harpa
Hvenær? 26. nóv­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Verkið Örlaga­þræðir er sam­runa­verk þar sem söngur og dans renna saman í túlkun á ljóðum Mariu Stuart og Mathilde Wesendonck. Umfjöll­un­ar­efni skáld­anna eru ólík og lifðu þær á ólíkum tímum en þær voru báðar fullar af ástríðu og þrótti. Ljóðin verða túlkuð af þeim Auði Gunn­ars­dóttur sópran­söng­konu og Láru Stef­áns­dóttur dans­ara.

Jólabíó

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 23. & 30. nóv. kl. 15.00 & 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.000–1.600 kr.

Bíó Paradís efnir til sér­stakra jóla­sýn­inga á vel völdum bíó­myndum sem henta bæði fyrir fjöl­skyldur með börn og full­orðna sem varð­veita ennþá börnin í sér. Á næst­unni eru til sýnis Home Alone 2 þann 23. nóv­em­ber og fyrsta Harry Potter myndin 30. nóv­em­ber; haldnar eru fjöl­skyldu­sýn­ingar klukkan 15.00 og síðan partí­sýn­ingar kl. 20.00.

Verndarvættir Íslands

Hvar? Hann­es­ar­holt
Hvenær? Til 28. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þessi sýn­ing er sprottin upp úr vinnu Sigrúnar Úlf­ars­dóttur þar sem hún kynnti sér ind­verska heim­speki og orku­stöðvar ayur­veda-fræð­anna í tengslum við hönnun skart­gripa. Hún vildi gera mynd­verk í kringum við­fangs­efnið, þar sem skart­gripalína virk­aði eins og eitt atriði í risa­stóru mynd­rænu hug­verki þar sem mynd­list og hönnun kall­ast á eins og tveir and­stæðir pólar, úr tveimur ólíkum heims­myndum.

Jólaforleikur Teits Magnússonar og Árna Vil

Hvar? Hard Rock Café
Hvenær? 28. nóv­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Vinirnir Teitur og Árni eru báðir vel þekktir í tón­list­ar­heim­inum; Teitur fyrir að vera skegg­prúður þjóð­laga­töfra­maður sem heldur messur til­eink­aðar draumum og góða líf­inu á hverjum tón­leikum, og Árni fyrir að vera óheflaður stuð­bolti. Á þessum jólafor­leik verður auk tón­leika lesin jóla­saga og fluttur þakk­ar­gjörn­ingur.

Drag-Súgur fjáröflun fyrir Báru

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 28. nóv­em­ber kl. 21.30
Aðgangs­eyrir: 2.940 kr.

Upp­ljóstr­ar­inn Bára Hall­dórs­dóttir hefur staðið í ströngu frá því að hún leysti frá skjóð­unni um fund nokk­urra þing­manna Mið­flokks­ins og úr Flokki fólks­ins á Klaust­ur­bar í fyrra þar sem þeir afhjúp­uðu meðal ann­ars for­dóma sína gagn­vart fötl­uðum, konum og fleirum. Nú stendur hún frammi fyrir miklum lög­fræði­kostn­aði og því hafa dragdrottn­ing­arnar (og kon­ung­arnir) í hinsegin kab­ar­ett­hópnum Drag-Súgur ákveðið að efla til fjár­öfl­un­ar­við­burðar henni til stuðn­ings.

Jólafjör Stórsveitar Reykjavíkur

Hvar? Harpa
Hvenær? 1. des­em­ber kl. 17.00
Aðgangs­eyrir: 4.250 kr.

Stór­sveit Reykja­víkur stendur fyrir árlegum barna- og fjöl­skyldu­tón­leikum. Tón­leik­arnir hafa vakið mikla lukku í gegnum árin, sér­stak­lega hjá yngri hlust­endum, sem fá tæki­færi til að skyggn­ast inn í töfra­heim djass- og stór­sveit­ar­tón­listar. Á þessum við­burði flytur rit­höf­und­ur­inn og teikn­ar­inn Bergrún Íris Sæv­ars­dóttir einnig nýja jóla­sögu sem hún hefur samið fyrir þetta til­efni undir tón­spili Stór­sveit­ar­innar.

Jólaævintýri Þorra og Þuru

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 1., 8., 15. & 22. des kl. 13.00
Aðgangs­eyrir: 3.100 kr.

Álfarnir Þorri og Þura sýna nýtt jóla­leik­rit, en þeir hafa heim­sótt þús­undir leik­skóla­barna með far­ands­sýn­ingum sínum síðan árið 2008, komið fram á ýmsum hátíðum og slógu í gegn með jóla­þátt­unum Týndu jólin sem sýndir voru á RÚV síð­ustu jól. Þorri og Þura eru bestu vinir og miklir fjör­kálfar, en sýn­ingar þeirra ein­kenn­ast af gleði, vin­áttu og dill­andi skemmti­legri tón­list.

Aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Hvar? Harpa
Hvenær? 5. des­em­ber kl. 19.30
Aðgangs­eyrir: frá 2.600 kr.

Á aðventu­tón­leikum Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands hljóma perlur eftir meist­ara barokktón­listar frá 17. og 18. öld. Flutt verða verk eftir frönsku tón­skáldin Jean-Baptiste Lully og Jean-Philippe Rameau, og þýsku tón­skáldin Georg Philipp Telemann og Johann Sebast­ian Bach. Hljóm­sveit­ar­stjóri Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands þetta kvöld verður hinn rúss­neski Maxim Emelyanychev.

Skúraleiðingar #3

Hvar? Hard Rock Café
Hvenær? 5. des­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Það verður líf og fjör þegar nokkrar bíl­skúrs­hljóm­sveitir koma úr skúrnum í haust og stinga í sam­band. Á þremur fimmtu­dags­kvöldum munu þrjár hljóm­sveitir troða upp í hvert skipti og flytja frum­samið efni og ábreiður í bland. Búast má við rokki, pönki, blús og öðru slíku. Á þessu þriðja og síð­asta kvöldi stíga á svið Sverr­is­son Hotel, Blúsband Þorkels Jóels­sonar og félagar og Gunk.

Japanskir kvikmyndadagar 2019

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 5.–10. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr. hver mynd

Jap­anskir kvik­mynda­dagar eru haldnir enn og aftur í ár, en í þetta skiptið verða sjö myndir til sýnis. Meðal þeirra eru róm­an­tíska fantasíu­myndin Your Name sem sló öll fyrri met jap­anskra teikni­mynda þegar hún kom út 2016, ást­kæra Studio Ghibli ævin­týra­myndin Howl’s Moving Castle og sál­fræði­tryllir­inn Perfect Blue sem var ein af fyrstu myndum til að vekja máls á hættum sem frægu fólki stafar af raf­rænu aðgengi aðdá­enda að því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár