Karolina Fund: Bætir lífsgæði þeirra sem glíma við einhverfu

Aðal­heiður Sig­urð­ar­dóttir stendur nú fyrir söfnun fyrir vef­síð­unni Ég er Unik sem hefur það mark­mið að bæta lífs­gæði þeirra sem glíma við ein­hverfu. En á síð­unni verður hægt að búa til ein­stak­lings­miðað fræðslu­efni sem ein­hverfir eða aðstand­endur ein­hverfra geta búið til sjálfir á auð­veldan og aðgengi­legan hátt. Útkomuna er meðal ann­ars hægt að láta prenta í bók sem hjálpar aðstand­endum að skilja ein­stak­ling með ein­hverfu betur.

Við tókum Aðal­heiði tali til þess að fræð­ast aðeins um þetta fal­lega hug­sjón­ar­verk­efni.

https://vimeo.com/112810615

 

Stolt mamma einhverfrar stúlku


Getur þú sagt okkur frá verk­efn­inu þínu Ég er Unik. Hvers vegna ákvaðstu að hefja söfnun fyrir vef­síðu sem hjálpar fólki að skilja ein­hverfu?

„Ég er stolt mamma 10 ára ein­hverfrar stúlku sem fékk sína grein­ingu átta ára gömul. Eftir að hafa hellt mér út í haf­sjó upp­lýs­inga um ein­hverfu­rófið komst ég fljót­lega að því lyk­il­at­riði að flokka ekki alla ein­hverfa undir sama hatti; ef þú þekkir einn, þá þekkir þú einn! Það varð hvat­inn að því að ég skrif­aði okkar per­sónu­legu fræðslu­bók um dóttur mina, þar sem hún segir frá sínum áskor­unum og styrk­leikum í þeim til­gangi að fræða fólkið í kringum okkur, bæði skóla, fjöl­skyldu og vini.

[caption id="attachment_14955" align="align­right" width="227"] Aðal­heiður Sig­urð­ar­dóttir og Malín, dóttir hennar.[/caption]

Þessi fræðsla reynd­ist okkur bæði mark­viss og árang­urs­rík, því hún var sögð á hnit­mið­aðan og jákvæðan hátt. Mér datt því í hug að opna vett­vang fyrir fleiri að búa sér til sitt eigið fræðslu­efni og lýsa sínum eigin áskor­unum og styrk­leikum fyrir þeim sem þau óska skiln­ings frá. Því skiln­ingur og við­ur­kenn­ing er lífs­nauð­syn­leg öllum, sér­stak­lega þeim sem glíma við ósýni­legar fatl­anir og eiga í ofaná­lag erfitt með að útskýra sig. Að búa til slíka heima­síðu er kostn­að­ar­samt og hef ég því miður ekki bol­magn til þess að standa undir þeim kostn­aði sjálf. Ég hef því bæði verið að sækja um styrk­veit­ingar hjá fyr­ir­tækjum og ákvað einnig að leita til fólks­ins um styrk í gegnum söfnun á Karolina­fund. Hingað til hef ég fengið ynd­is­leg við­brögð og fólk hefur verið ótrú­lega örlátt og það snertir mig virki­lega að aðrir deili þeirri sýn minni að þetta verk­færi gæti hjálpað og hvatt okkur til þess að útskýra og opna umræð­una um ein­hverfu. Þetta er heill­andi heimur sem vissu­lega getur verið erf­iður á stundum, en það er líka svo margt sem við getum tekið lær­dóm af, ef við bara opnum hug­ann og hlustum."

 

Stefnir hátt með verkefnið


Hvað er á döf­inni næst hjá þér? Hvert stefnir þú næst með verk­efnið?

„Ég stefni hátt í mark­miðum mínum með Ég er Unik! Nái ég að safna nægi­legu fjár­magni til þess að láta af þessu verða er ætl­unin að opna einnig fyrir fleiri hópum sem þurfa á skiln­ing og við­ur­kenn­ingu að halda í sam­fé­lag­inu okkar. Ég stefni einnig á að þýða vef­síð­una yfir á fleiri tungu­mál og hef ég nú þegar hafið jarð­vegs­vinn­una að því. Samhliða þessu verk­efni er ég líka að þróa náms­efni fyrir grunn- og fram­halds­skóla um hvernig kynna mætti ein­hverfu­grein­ingu og sam­bæri­legar ósýni­legar fatl­anir fyrir bekkj­ar­fé­lögum. Það er því mikið sem er á dag­skránni, en fyrsta skref er að láta Ég er Unik vef­síð­una verða að veru­leika og von­andi verða vitni að því þegar ein­hverfir ein­stak­lingar víðs­vegar um þjóð­fé­lagið segja sína ein­stöku sögu með stolti. Það er draum­ur­inn! Þannig að núna sit ég og horfi á grænu lín­una á Karolina­fund sil­ast uppá við í von að ég nái mark­miðum mínum svo vinnsla heima­síð­unnar geti haf­ist strax á nýju ári."

Nánari upp­lýs­ingar og leið til þess að styrkja verk­efnið má nálg­ast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár