Karolina Fund: Einleiksfantasíur og þörfin fyrir að skapa

Melkorka Ólafs­dóttir lærði á flautu í Tónskóla Sig­ur­sveins, Tón­list­ar­skóla Reykja­víkur og Lista­há­skóla Íslands, þar sem aðal­kenn­ari hennar var Bern­harður S. Wilkinson. Síðar nam hún við Konservator­íin í Amster­dam og í Haag, Guild­hall School of Music and Drama í London og í École Nationale de Musique et Dans í París, þar sem hún kláraði Premier Prix og Prix Perfectionmente með hæstu ein­kunn.

Melkorka er að safna fyrir útgáfu geisla­disks með ein­leiks­fantasíum Georgs Philipp Telemann. Hún, og verk­efnið hennar, eru Karolina Fund-verk­efni vik­unnar hér á Kjarn­anum.

[caption id="attachment_13809" align="alignnone" width="800"] Melkorka Ólafs­dóttir lærði meðal ann­ars á flautu við Konservator­íin í Amster­dam og í Haag, Guild­hall School of Music and Drama í London og í École Nationale de Musique et Dans í París, þar sem hún kláraði Premier Prix og Prix Perfectionmente með hæstu ein­kunn.[/caption]

Óteljandi leiðir til að skapa


Getur þú sagt okkur frá tón­list­inni þinni. Hvað drífur þig áfram í tón­list­ar­sköpun hvernig þró­að­ist hún?

„Já, ég held að það hafi allir þörf fyrir að skapa. Hvort sem það er eitt­hvað sem fólk er með­vitað um eða ekki. Það er hægt að fara svo ótelj­andi margar leiðir í því, sumir leggja eitt­hvað list­form fyrir sig, aðrir nostra við áhuga­mál, enn aðrir eru mjög skap­andi í störfum sem telj­ast kannski ekki aug­ljós­lega bjóða upp á slíka hugsun.

Í raun­inni skiptir kannski ekki rosa­lega miklu máli hvaða miðil fólk velur sér fyrir hana eða að hvaða marki maður skil­greinir sjálfan sig eftir henni. Það er frekar að það snú­ist, með­vitað eða ómeð­vitað, um val, um það hvort maður ákveði að leita að ein­hvers­konar stærra sam­hengi í líf­inu en því sem liggur beint fyrir framan mann. Hvort maður leiti hugs­an­lega að ein­hverju and­legu ríki­dæmi frekar en ver­ald­legu. Þá er list og sköpun leið til að kom­ast þangað, en það eru líka ótelj­andi aðrar leiðir.

[caption id="attachment_13810" align="align­right" width="300"] Melkorka Ólafs­dóttir.[/caption]

Þetta er aðal­lega spurn­ing um að vera opinn fyrir því að undr­ast, að sjá hlut­ina á annan veg en þann aug­ljósa og að fest­ast ekki í ein­verri einni leið. Þegar maður fest­ist er sjón­deild­ar­hring­ur­inn of tak­mark­aður, það tekur frá manni svo stóran hluta af því sem lífið hefur upp á að bjóða. Fyrir mér er sköp­un­ar­þörfin ein­hver algjör grunn­þörf og ef ég næri hana ekki þá finn ég fyrir því. Tón­listin, eða hvaða lista­form sem er, er leið til þess að opna. Til að opna augu og huga og hjörtu fólks. Líka til að minna á hvað við erum tengd.

Þar af leið­andi er listin líka óum­ræð­an­lega mann­bæt­andi. Kannski finnst þér ég ekki alveg vera að svara spurn­ing­unni......en samt er þetta svarið; það er þessi þörf sem drífur mig áfram, og þessi sama þörf hefur líka leitt til þess að tón­list­ar­sköp­unin þró­ast. Því ef maður er alltaf að setja sig í stell­ingar til að spyrja og sjá hlut­ina í nýju ljósi, þá er maður líka alltaf að ýta sjálfum sér út í óviss­una og leita á ný mið. Þannig vex maður, með því að prófa sig áfram og gera til­raunir og skora sjálfan sig á hólm. Það krefst þess að taka áhættur, en maður kemst líka ekk­ert áfram nema að taka áhættur. Ég var mús­íkalskt barn, en mér fannst líka gaman að teikna og skrifa ljóð. Kannski var það ein­hvers­konar til­viljun að ég lagði tón­list­ina fyrir mér en ekki eitt­hvað annað. En tón­listin hefur verið minn besti vinur og styrkur. Það getur vel verið að sköp­un­ar­þörfin leiði mig eitt­hvað annað ein­hvern­tíma, þá er líka bara að vera opin fyrir því."

Fantasíurnar eiga sérstakan stað


Hvað er á döf­inni næst hjá þér? Mun verk­efnið lifa áfram eða tekur næsta við?

„Disk­ur­inn sem ég er að gefa út núna er frekar mik­il­vægur og stórt skref fyrir mig. Ég er svaka­lega feimin í svona hlutum, að koma mér á fram­færi, meira en þú gætir ímyndað þér. Ég lærði hjá kenn­ara í París sem var algjör gúru fyrir mér, við fórum í gegnum allar Telemann Fantasí­urnar saman. Fantasí­urnar eiga alveg sér­stakan stað hjá mér og ég veit eig­in­lega ekki um betri tón­list fyrir flautu.

[quote font="0" align="right"]Ég tók frekar stóra ákvörðun á síð­asta ári, að flytja heim til Íslands þrátt fyrir að vita að hér myndi verða erfitt fyrir mig að lifa á því að spila tón­list. [/quote]

Ég tók frekar stóra ákvörðun á síð­asta ári, að flytja heim til Íslands þrátt fyrir að vita að hér myndi verða erfitt fyrir mig að lifa á því að spila tón­list. Ísland er mjög lítið land, en ég var komin á stað þar sem mig lang­aði hvergi ann­ars staðar að vera. Svo ég ákvað að taka að mér ann­ars konar vinnu, verk­efna­stjórn í Hörpu. Starfið er mjög tengt mínu sér­sviði en þó ólíkt. Þess vegna fannst mér að ég yrði að skilja eitt­hvað eftir mig, eftir þessi rúmu 20 ár sem ég hef varið í sér­hæf­ing­una. Svo að vissu leiti er Telemann disk­ur­inn kveðju­söngur fyrir ákveðið tíma­bil, án þess þó að það þurfi að vera of dramat­ískt. Ég held áfram að spila, eða a.m.k. að skapa, þörfin stjórnar mér en ég ekki henni. Ég er alveg búin að átta mig á því að ég ræð minnstu um þetta sjálf. Því ber að fagna, þannig vil ég lifa líf­inu."

Útgáfu­hóf plöt­unnar verður haldið í Mengi 16. des­em­ber kl 17:00

Hér er hægt að skoða verk­efnið og styðja Melkorku í hennar veg­ferð.


Sagt verður frá völdu verk­efni sem leitað hefur að fjár­mögnun í gegnum Karolina Fund á hverjum laug­ar­degi á Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár