Karolina Fund: Geimfari sem týnist í fallegri náttúru á hálendi Íslands

Þeir Gísli Dúa Hjör­leifs­son og Mikkel R. Vossen Rasmus­sen eru að safna á Karolina Fund fyrir útgáfu bókar um týndan geim­fara á hálendi Íslands. Þetta er ljós­mynda­bók með gríð­ar­lega fal­legum ljós­myndum eftir Gísla þar sem sjá má geim­fara í nátt­úru Íslands.

Hug­myndin kvikn­aði þegar Mikkel fór í geimæv­in­týri upp að mörkum geims­ins og kom til baka sem geim­fari. Nokkrum árum síðar fóru þeir Gísli og Mikkel til Íslands til að mynda súr­r­eal­ískar myndir í nátt­úru Íslands. Í þessum ferðum kynnt­ist Mikkel, sem kemur frá Danmörku, íslensku fólki, menn­ingu, þjóð­trú og hjá­trú. Hann byrj­aði á að skrifa dag­bók um allt það sem hann upp­lifði og hug­leið­ingar sínar um landið, um nátt­úr­una, um hjá­trúna og fólkið sem bjó á þess­ari eyju. Eftir að hafa ferð­ast um Ísland í nokkur ár þá þró­að­ist hug­myndin smátt og smátt yfir í stærra verk­efni.

Byrjaði að mynda vin sinn sem hálfnaktan engil


Getur þú sagt okkur frá týnda geim­far­anum á hálendi Íslands. Hvaðan kom þessi hug­mynd og hvernig þró­að­ist hún?

„Í raun byrj­aði ég að mynda vin minn Mikkel sem hálf­naktan engil, ég á stundum mínar stundir þar sem ég þarf að koma út mínu hug­mynda­afli og geri það mynd­rænt á milli þess að vinna sem ljós­mynd­ari í aug­lýs­inga og heim­il­da­gerð.

Hug­myndin byrj­aði þegar Mikkel fór í ferða­lag upp að mörkum geims­ins. Hann var búinn að safna fyrir þess­ari ferð frá því að hann var smá­strákur. Og tók þetta ferða­lag um þrjá mán­uði með þjálfun og öllu til­heyr­andi.

Í þess­ari ferð þá versl­aði hann und­ir­föt rússnenskra geim­fara og kom með heim til Dan­merkur. Óvart þá sýndi hann mér þennan bún­ing og hug­ur­inn fór að snú­ast um að gera eitt­hvað meira með hann. Ég fór í hjálma­leit á net­inu og fann ein­stakan hjálm sem ein­ungis 1000 stykki voru til af á þeim tíma. Og við byrj­uðum að prufu­mynda geim­far­ann hér í Danmörk."

Það verður að segj­ast að þessar myndir eru ein­stak­lega góðar og skemmti­legar. Spilar nátt­úra lands­ins inn í hug­mynd­ina eða vill bara svo til að geim­far­inn lenti hér?

„Takk fyrir það! Jú ég er með smá hobby starf á haustin fyrir austan og hef stundum verið þar síða­sliðin ár. Mikkel fékk að fljóta með mér frá 2010 þar sem við tókum bún­ing­inn með en grunn­hug­myndin var að mynda týndan Geimfara á hálendi Íslands á milli þess er ég vann. Oft á milli stunda þá fór hug­ur­inn að spinn­ast og Mikkel byrj­aði að skrifa dag­bók í þessum ferðum. Eðlilega fyrir honum voru þessar ferðir stór­merki­legar enda sváfum við bara úti og hann upp­lifði ýmis­legt furðu­legt og heyrði okkar dramat­ísku þjóð­sögur.

Ef svo má segja þá upp­lifði hann sig sem ein­fara og gat alveg sett sig í spor geim­fara sem kom fyrst í heim­inn á mið­há­lendi Íslands. Og vís­inda­skáldsagan hófst. Við hittum marga ein­stak­linga sem allir höfðu eitt­hvað að segja en mest spenn­andi upp­götvun okkar er sönnun um til­vist huldu­fólks á Íslandi. En hana verður ein­ungis hægt að lesa um í bók­inni."

Geimfarinn á sér framhald


Hvert fer svo geim­far­inn næst? Mun verk­efnið eiga sér fram­halds­líf?

„Geim­far­inn á sér fram­hald, ekki spurn­ing. Við erum nú þegar búnir að leggja inn drög að fram­hald­inu, en nú erum við að leggja okkur alla fram við að klára bók­ina og ná okkar mark­miðum sem fyrst á karolina­fund. Þetta er mjög skemmti­legt verk­efni og búið að vera lengi í bígerð. Ég vil meina að góðir hlutir ger­ast hægt.

Við erum þessa stund­ina að setja upp vef­síðu þar sem fólk getur lesið meira um ferð­irnar og upp­lýs­ingar um bókin á. www.findingthelostastronat.com En sú vinna verður búin í des­em­ber."

Verk­efnið er hægt að skoða og styrkja hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár