Karolina Fund: Furðurlegur félagsskapur duldýra

Dul­dýra­safnið er lista­verka­bók um íslenskar huldu­verur með mál­verkum eftir Arngrím Sig­urðs­son. Verk­efnið náði að safna 100 pró­sent af sínu tak­marki á ein­ungis 24 klukku­stundum.

Bókin inni­heldur 34 myndir af íslenskum huldu­verum. Myndunum fylgja textar úr þjóð­sögum og forn­ritum sem lýsa útliti, hegðun og helstu ein­kennum dul­dýr­anna og því hvernig sam­skiptum þeirra er háttað við mennska nágranna sína.Mynd­irnar í bók­inni eru olíu­mál­verk og er þeim ætlað að varpa nýju ljósi á sér­stæða ver­öld íslenskra furðu­fyr­ir­bæra.

Veröld sem fáir hafa litið


Í Dul­dýra­safn­inu skyggn­umst við inn í ver­öld sem fæstir hafa augum litið.Þar tekur á móti okkur furðu­legur félags­skapur dul­dýr­anna. Finn­gálknið, blend­ingur manns og dýrs, öllum vargi skað­legri. Krákinn; hinn risa­vaxni kol­krabbi sem nær­ist á frysti­tog­urum og flutn­inga­skipum. Lyng­bak­ur­inn; ódauð­legt klækja­hveli sem flotið hefur um heims­ins höf í gervi eylands frá upp­hafi tím­ans. Trygg­lynd dag­tröll og mann­skæð nátt­tröll sem þvæl­ast um fáfarna vegi og fjar­læga fjalla­sali. Dverg­arnir og álfarnir sem búa í holtum og hæðum. Tilberar, galdra­send­ingar, mórar og huldu­landið Tröll­botna­land.Öll þessi furðu­fyr­ir­bæri og fleiri til, efn­is­ger­ast á síðum Dul­dýra­safn­ins.

Með hverri mynd fylgir texti sem er tekin beint úr sögnum og sjón­lýs­ingum og gefa þau inn­sýn inn í óra­víddir ímynd­un­araflsins á liðnum öldum. Lýs­ing­arnar bregða upp mynd af menn­ing­unni og mann­líf­inu sem fram­kall­aði ver­urnar, fóstr­aði þær og hélt í þeim líf­inu fram á okkar daga.

[caption id="attachment_12544" align="alignnone" width="800"] Það tókst að safna fyrir útgáfu Dul­dýra­safns­ins á 24 klukku­stundum.[/caption]

 

Byrjaði sem litil hugdetta


Við tókum Arngrím tali og skyggnd­umst aðeins inn í hug­ar­heim lista­manns sem ákveður að gefa verkið sitt út sjálfur.

Getur þú sagt okkur frá Dul­dýra­safn­inu, hvaðan kom þessi hug­mynd og hvernig þró­að­ist hún?

„Dul­dýra­safnið byrj­aði sem lítil hug­detta sum­arið 2013.Ég var þá staddur í Vín­ar­borg, og hafði eytt frekar miklum tíma á nátt­úru­gripa­safn­inu; Naturhistorisches Museum, við að teikna upp­stoppuð dýr. Ég hafði líka verið að kynna mér hóp mynd­list­ar­manna sem kenndu sig við draumaraun­sæi; ,, Phantastischen Real­ismus" en þeir voru uppá sitt besta á 6. og 7. ára­tugnum. Þeir skil­greindu sig sem súr­r­ea­lista, en lögðu sér­staka áherslu á tækni­lega útfærslu mál­verk­anna sinna og sóttu efni­við í goð­sögu­legt mynd­mál, drauma og þjóð­sagna­verur.Hug­dettan hlóð svo utaná sig með tím­anum.

Ég grams­aði í þjóð­sagna­söfnum og sögum og eftir því sem ég las meira, því betur átt­aði ég mig á hversu flottur fantasíu­heimur þetta er sem hefur orðið til á Íslandi í gegnum ald­irnar.Ég vann svo útskrift­ar­verk­efnið mitt frá Lista­há­skól­anum í kringum furðu­ver­urnar, og kall­aði það Dul­dýra­safnið, en það var sería af 24 mál­verkum, nokkrum teikn­ingum og einu lík­ani af til­bera. Ég hafði frá byrjun hugsað mér að setja verkin í bók og eftir útskrift fór ég að pæla í því hvernig væri best að koma því í kring. Ég vissi af Karolina Fund og hafði fylgst með nokkrum verk­efnum þar, og ákvað að láta reyna á að hóp­fjar­magna útgáf­una, sem svo gekk vonum framar."

Þú náðir að fjár­magna bók­ina á ein­ungis 24 tímum á Karolina Fund og ert núna kom­inn með meira en tvö­falda þá upp­hæð sem þú stefndir að upp­haf­lega. Hvers vegna gengur þetta svona vel?

„Ég er ennþá að klóra mér í hausnum yfir því. Verk­efnið hefur fengið mjög góðar við­tökur, og ég held að það sé vegna sam­spils margra þátta. Fólk er for­vitið um áhuga­verðan heim sem hefur fallið í gleymsku og í öðru lagi tengir það við mynd­irnar og túlkun mína á efn­inu. Svo skemmir heldur ekki fyrir að bókin er á góðu verði."

Mælir þú með því að fólk sem hefur í hyggju að gefa út bók, að það geri það sjálft frekar en að leita til útgef­anda?

„Ég held að það fari mikið eftir því hvers­konar bók er verið að gefa út, hvort að það henti í sjálf­út­gáfu. Almennt held ég að það sé mjög góð leið, og ég mæli hik­laust með því. Sér­stak­lega fyrir lista­verka­bækur. Þetta hefur verið mjög skemmti­legt og lær­dóms­ríkt ferli.Mig grunar að með til­komu hóp­fjár­mögn­unar þá munu fleiri höf­undar gefa út bæk­urnar sínar sjálfir. Það er meiri vinna sem felst í þannig útgáfu, bæði þarf höf­undur að sjá um prentun, dreif­ingu, bók­hald og svo alla kynn­ing­ar­vinnu sjálfur, en ef að útgáfan gengur vel, þá fær höf­und­ur­inn meira fyrir sinn snúð."

Hér er hægt að sjá verk­efnið á Karolina Fund .

Sagt verður frá völdu verk­efni sem leitað hefur að fjár­mögnun í gegnum Karolina Fund á hverjum laug­ar­degi á Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár