Safna fyrir tækifærisbókinni: „Smiður finnur lúður“

Eitt áhuga­verð­asta, í það minnsta skop­leg­asta, verk­efnið sem nú safnar sér fjár­magni á vef­síðu Karolina Fund, má rekja til fjöl­lista­hóps­ins Per: Seg­ul­svið, sem safnar sér fyrir útgáfu bók­ar­innar: „Smiður finnur lúður.“

Fjöl­lista­hóp­ur­inn er hug­ar­fóstur Ólafs Jos­ephs­sonar tón­list­ar­manns, Árna Þórs Árna­sonar mynd­list­ar­manns, og Sveins Magn­ús­sonar skálds, en í dag hefur hóp­ur­inn tryggt sér 67 pró­sent fjár­mögn­un­ar­innar, en hætt verður að taka við fram­lögum eftir fimmtán daga. Samkvæmt laus­legri könnun Kjarnans hefur Per: Seg­ul­svið áður gefið út tvær hljóm­plötur; Kysstu mig þungi Spán­verji og Tónlist fyrir hana.

Þríeykið stefnir nú á útgáfu sinnar fyrstu bókar, en hún var gefin út raf­rænt á vef­síðu fjöl­lista­hóps­ins síð­sum­ars árið 2013 og hefur verið aðgengi­leg þar síðan án end­ur­gjalds. „Skortur á fjár­magni hefur hins­vegar aftrað því að bókin hafi verið gefin út í físísku formatti - líkt og hún á skilið. Nú stendur það til bóta. Per: Seg­ul­svið von­ast til þess að með þinni aðstoð kæri les­andi, verði hægt að frelsa smið­inn úr raf­rænum fjötrum sínum og senda hana í allri sinni dýrð út í kosmósið - 24 síðna bók í lit­ríku­prenti,“ segir á síðu fjöl­lista­hóps­ins á vef­síðu Karolina Fund.

[caption id="attachment_12651" align="aligncenter" width="800"] Bók Per: Seg­ul­sviðs kemur til með líta svona út, ef fjöl­lista­hóp­ur­inn nær að tryggja sér nægj­an­legt fjár­magn.[/caption]

„Ekki hengja bakara... frelsaðu smið“


Fjöl­lista­hóp­ur­inn hefur til þessa getið sér góðs orðs fyrir lit­skrúð­ugt orða­lag, og frum­lega kímni­gáfu. Bókin er sögð alhliða tæki­fær­is­bók fyrir full­orðna sem og full­orð­ins­bók fyrir börn. „Hún er trappa mál­ar­ans, sleif osta­gerð­ar­manns­ins og grifflur dans­ar­ans. Hún er í senn ætluð mið­aldra gröfu­mönnum sem rauð­hærðum sveita­drengjum með eyrn­ar­lokka.“

Eins og nafnið gefur til kynna fjallar bók Per: Seg­ul­sviðs um smið sem finnur lúður á förnum vegi. Hún er heið­ar­lega mynd­skreytt og hlaðin nokkru gamni, eins og fjöl­lista­hóp­ur­inn orðar það. „Átján húð­læknum var fórnað við gerð bók­ar­innar og vef­hönn­uður aðlaður til mót­vægis. Slíkt má ekki vanta þegar verk eins og þetta er ann­ars vegar. Almættið þarf sitt. Allt leitar jafn­vægis … eða eins og Per: Seg­ul­svið gjarnan segir, „Hausi gefur, hausi fær“. Hjálpaðu ver­öld­inni að leita jafn­vægis. Styrktu Per: Seg­ul­svið við að prenta bók um smið. Ekki hengja bak­ara … frels­aðu smið – og tryggðu þér ein­tak af bók­inni með lauf­léttri sveiflu krít­ar­korts­ins.“

Þeir sem láta fé af hendi rakna geta skráð nafn sitt á spjöld sögunnar


Þeir sem styrkja útgáfu bók­ar­innar eiga mögu­leika á að fá höf­uð­per­sónu hennar nefnda eftir sér, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu fjöl­lista­hóps­ins. „Einn lukku­legur vel­unn­ari mun í lok söfn­un­ar­innar verða dreg­inn úr hópnum, og mun aðal­sögu­hetjan, smið­ur­inn við­kunna­legi, vera skírður nafni við­kom­andi. Styrktu Per: Seg­ul­svið við að prenta bók um smið - og þú gætir bók­staf­lega skráð nafn þitt á spjöld sög­unnar.“

Myndband fjöl­lista­hóps­ins á Karolina Fund hefur vakið athygli, enda óhefð­bundið í öllum mögu­legum skiln­ingi þess orðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár