App til að berjast gegn ófrjósemi

Í næstu viku, nánar til­tekið þann 8. ágúst, er ­síð­asti dag­ur­inn sem hægt er að heita á verk­efnið The ­Infertility App á Karolina Fund. Á bak við IVF Coaching-verk­efnið standa Gyða Eyj­ólfs­dóttir ­sál­fræð­ingur og Berglind Ósk Birg­is­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur en þær hafa spáð í ófrjó­semi í mörg ár. Berglind hefur per­sónu­lega reynslu af ófrjó­semi, glasameð­ferðum og rann­sóknum í nokkrum löndum, auk þess sem hún er í stjórn Tilveru - sam­taka um ófrjó­semi og hefur stutt við konur í glasameð­ferðum með ýmiss konar upp­lýs­inga­ráð­gjöf í nokkur ár. Hægt er að lesa allt um söfnun verk­efn­is­ins á vef Karolina Fund hér.

Gyða hefur starfað með Tilveru und­an­farin níu ár. Hún heldur fyrir­lestra fyrir félagið um ýmis­legt tengt ófrjó­semi en auk þess hittir hún um 20% af þeim konum og pörum sem fara í glasameð­ferðir á hverju ári hjá Art Medica, sem er eina glasameð­ferð­ar­stöð Íslands.

Gyða hefur tekið eftir því að konur sem þjást af ófrjó­semi þarfn­ast oft frek­ari upp­lýs­inga um áhrif ófrjó­semi á líðan, sam­skipti og sam­band við maka, auk fræðslu um með­ferðir og önnur úrræði sem skipta máli varð­andi ófrjó­semi. Hún ein­setti sér í dokt­ors­námi sínu að mæta þess­ari þörf en komst fljótt að því að konur og pör þora oft ekki að mæta á fyr­ir­lestrana þar sem ófrjó­semin er mikið feimn­is­mál. Þessi hópur fólks vill oft ekki að aðrir viti af ófrjó­sem­inni og þjá­ist því í ein­rúmi.

Leiðbeiningar og tillögur


Fyrir um þremur árum fékk Gyða þá hug­mynd að útbúa app með fræðslu um ófrjó­semi og upp­lýs­ingum um það hvernig auka megi líkur á þungun. Appið er auk þess ein­hvers konar leið­bein­ing í gegnum glasa­ferlið þar sem not­and­inn getur fengið nýjar upp­lýs­ingar dag­lega um hvað hann getur gert til að bæta líðan sína í glasameð­ferð­inni og aukið líkur á þungun. Gyða fann að sig vant­aði sam­starfs­að­ila sem hefði betri þekk­ingu á líf­fræði­lega hluta með­ferð­anna og þekkti betur inn á mis­mun­andi teg­undir með­ferða og rann­sókna sem eru í boði. Hún fékk því Berg­lindi í lið með sér og saman mynda þær teymið á bak­við IVF Coaching-appið.

Smá­forritið er hannað fyrir ensku­mæl­andi markað. Þær stöllur hafa reiknað út að árlega séu um 2.000.000 glasameð­ferðir fram­kvæmdar á konum eða pörum sem tala ensku. Á Íslandi eru fram­kvæmdar um 600 með­ferðir á ári og gætu flestar af þeim konum/pörum nýtt sér appið, sér til stuðn­ings í með­ferð­inni. Talið er að eitt af hverjum sex pörum eigi í erf­ið­leikum með að eign­ast barn, ekki bara á Íslandi heldur í öllum heim­inum. Því er ljóst að stór hópur fólks glímir við ófrjó­semi og upp­lýs­inga­þörfin er mikil. Það sést einnig af því að orðin infertility og IVF (glasameð­ferð) eru gúggluð um 2.500-2.800 sinnum á sól­ar­hring á Google-leit­ar­vél­inni. Þá eru aðrar leit­ar­vélar ekki inni í þessum tölum.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_07_31/54[/embed]


Nytsamlegar upplýsingar


Í IVF Coaching-app­inu hefur konan, eða parið, aðgang að vís­inda­lega studdum upp­lýs­ingum um hvernig hægt er að und­ir­búa sig sem allra best undir glasameð­ferð­ina. Þannig fær not­and­inn upp­lýs­ingar um ýmiss konar spurn­ingar sem not­and­anum er ráð­lagt að spyrja lækn­inn sinn að, upp­lýs­ingar um hvað sé gott að hafa í huga þegar glasameð­ferð­ar­stöð er valin, hvaða próf er hægt að fara í og hvaða vítamín hafa sýnt bestu þung­un­ar­tíðn­ina. Þá eru slök­un­ar­upp­tökur í app­inu en þær konur sem stunda djúp­slökun eru lík­legri til að verða barns­haf­andi en þær sem ekki stunda slök­un­ina. Þá hefur djúp­slökun góð áhrif á sæð­is­frumur og í óform­legri athugun Gyðu á þung­un­ar­tíðni hjá sínum skjól­stæð­ingum kom fram að hún var um 52%, í sam­an­burði við 30-35% aug­lýstan árangur hjá Art Medica. Ýmislegt fleira má finna í smá­forrit­inu. Meðal ann­ars má nefna að not­and­inn fær „upp­lýs­ingamola“ í sím­ann sinn á hverjum degi meðan á með­ferð­ar­ferl­inu stendur, en það getur tekið allt að sex vikur.

Upplifa meiri vellíðan


Fræðsla eins og appið veitir hefur sýnt að kon­urnar og pörin upp­lifa meiri stjórn, vellíðan og slökun og lík­urnar á að verða barns­haf­andi eftir glasameð­ferð aukast. Þar sem hver með­ferð getur kostað allt frá nokkur ­hund­ruð þús­und krónum og upp í millj­ónir (fer eftir löndum) skiptir miklu máli að und­ir­búa sig vel og hámarka líkur á þungun í hvert sinn. Með­ferð­irnar taka mjög svo á til­finn­inga­lega og eftir um tvö ár af árang­urs­lausum barn­eign­ar­til­raunum þjá­ist ríf­lega helm­ingur kvenna af klínísku þung­lyndi og kvíða, og um þriðj­ungur karl­manna. Upp­lýs­ing­arnar sem koma fram í app­inu hafa hins vegar aldrei áður verið teknar saman og gerðar aðgengi­legar þeim sem á þurfa að halda. Appið er því nýtt á sínu sviði og hefur hlotið styrk frá Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands - Átaki til atvinnu­sköp­unar.

Eins og kom fram í upp­hafi grein­ar­innar er síð­asti dagur til að styrkja verk­efnið 8. ágúst. Þeim sem vilja kynna sér verk­efnið nánar er bent á síðu verk­efn­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár