Hæstiréttur Íslands telur að lögreglan á Suðurnesjum hafi gerst sek um vítaverðan drátt á rannsókn sakamáls sem snerist um fjársvik gegn þroskaskertum manni. Að mati dómsins stangast vinnubrögð lögreglustjóra á við stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu sem lögfestur hefur verið á Íslandi. Sigríður Björk Guðjónsdóttir var lögreglustjóri á Suðurnesjum þegar málið var til meðferðar hjá lögregluembættinu, en Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi innanríkisráðherra, skipaði Sigríði sem lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu án auglýsingar í kjölfar starfsloka Stefáns Eiríkssonar í fyrra.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir