Hreyfihamlaður maður segir sér hafa verið vísað út af reiðum bílstjóra ferðaþjónustu fatlaðra

Ólafur Árnason kveðst hafa verið skil­inn eftir í rign­ingu við veg­kant í Kópavogi eftir orða­skak við bíl­stjóra ferða­þjón­ustu fatl­aðra.

Hreyfihamlaður maður segir sér hafa verið vísað út af reiðum bílstjóra ferðaþjónustu fatlaðra
Vísað út Ólafur á erfitt með gang og seg­ist hafa verið skil­inn eftir.

Öryrki með skerta hreyfi­getu hefur lagt fram form­lega kvörtun til Strætó bs. vegna atviks sem varð í Kópavogi í gær.

Ólafur Árnason er öryrki sem reiðir sig á þjón­ustu ferða­þjón­ustu fatl­aðra sem rekin er af Strætó. Að hans sögn vís­aði bíl­stjóri á vegum ferða­þjón­ustu fatl­aðra honum út úr bif­reið í Kópavogi í gær og skildi hann eftir við veg­kant í rign­ing­unni.

Jóhannes Svavar Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Strætó, segir í sam­tali við Stundina að atvikið verði skoðað inn­an­húss og það sé litið mjög alvar­legum augum. Hann seg­ist þó ekki geta tjáð sig um ein­staka verk­taka, en eins og hefur komið fram eru allir bíl­stjórar ferða­þjón­ustu fatl­aðra verk­takar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár