Vildu merkja alla HIV-smitaða Íslendinga

Alið var á ofsa­hræðslu. Óttuðust að stór hluti ungs fólk smyndi smit­ast. Reyndin er sú að 40 hafa dáið á 20 árum. Smitaðir lifa eði­legu lífi.

Vildu merkja alla  HIV-smitaða Íslendinga
Freddie Mercury Söngvari Queen smit­að­ist af HIV-veirunni. Hann lést áður en lyf, sem halda sjúk­dómnum niðri, komu til sög­unnar.

Í júní árið 1985 var ríkj­andi ótti um að stærstur hluti Íslend­inga gæti smit­ast af eyðni. DV fjall­aði um málið og ræddi við yfir­lækni á Land­spít­al­anum sem taldi mikla ógn steðja að. 

„Mér þykir í sann­leika sagt of lítið gert úr þeirri hættu er stafað gæti af alnæmi hér á landi. Menn verða að gera sér grein fyrir að mann­kynið og þar með islenska þjóðin getur staðið frammi fyrir áður óþekktu ógnar­á­standi, hörm­ungum sem ekki verður séð fyrir end­ann á," sagði Þórður Harð­ar­son, pró­fessor og yfir­læknir, við DV. 

Hann taldi fræði­legan mögu­leika vera á því að stór hluti ungs fólks smit­að­ist. „Fræði­lega gætum við staðið frammi fyrir því að stór hluti ungs fólks væri smit­aður af alnæmi eftir örfáa ára­tugi," sagði Þórður á þeim tíma.

Þegar þessi ótti var uppi hafði AIDS ekki verið greint í Íslend­ingi þótt mótefni hefði fund­ist í fjórum ein­stak­lingum. Í frétt Eiríks Jóns­sonar blaða­manns í DV er sagt að það væri ein­ungis spurn­ing um tíma hvenær sjúk­dóm­ur­inn bær­ist til Íslands með þessum skelfi­legu afleið­ingum. „Ég held að stúlkur sam hafa sam­farir við útlend­inga geri sér í 95 % til­fella ekki grein fyrir í hvaða hættu þær eru að stefna sjálfum sér,“  sagði Þórður. 

„Ég held að stúlkur sam hafa sam­farir við útlend­inga geri sér í 95 % til­fella ekki grein fyrir í hvaða hættu þær eru að stefna sjálfum sér.“

Varaði við sýktum vændiskonum 

Fram kom í grein­inni að ástandið væri einna verst í Danmörku. „Ekki kann ég neina skýr­ingu á því hvers vegna Danir hafa farið svona illa út úr þessu en vera má að frjáls­lyndi þeirra í ásta­málum á und­an­förnum ára­tugum valdi þar ein­hverju,“ sagði Þórður yfir­læknir. Hann var­aði sér­stak­lega við sýktum vænd­is­konum sem gætu valdið ægi­legu tjóni „séu þær iðnar við störf sín“.

Því er lýst í grein­inni að uppi hafi verið raddir um að setja smit­aða ein­stak­linga í ein­angrun strax og grein­ing liggur fyrir. Þá er því velt upp hvort mögu­legt sé að lög­binda notkun á smokkum til að hefta útbreiðslu veirunnar. 

„Og hugs­an­lega ætti fólk alls ekki að hafa sam­farir við aðila sem ekki hefur farið í blóðprufu,“ sagði Þórður. 

„Hugs­an­lega ætti fólk alls ekki að hafa sam­farir við aðila sem ekki hefur farið í blóðprufu.“

Merki í nafnskírteini

Hann var spurður um það hvort ekki væri ráð­legt að taka blóðprufu af allri þjóð­inni og taka upp ein­hvers konar skrán­ingu. Og þá hvort ekki ætti að setja merki í nafn­skír­teini manna. 

„Það getur komið að því að ein­hvers konar skrán­ing verði nauð­syn­leg. Þetta 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár