Verkafólki í Norður-Kóreu gefið amfetamíni til að flýta fyrir byggingu háhýsa

Verk­stjórar í Pyongyang, höf­uð­borg Norður-Kóreu, eru undir mik­illi pressu að klára verk­efni sín og hafa tekið upp á því að gefa verka­mönnum sínum metam­fetamín til þess að fá þá til að vinna hraðar.

Verkafólki í Norður-Kóreu gefið amfetamíni til að flýta fyrir byggingu háhýsa
Amfetamín krist­allar Efnið hefur verið fram­leitt af yfir­völdum í Norður-Kóreu frá átt­unda ára­tugnum.

Norður-Kóresku verka­fólki er gefið eit­ur­lyfið metam­fetamín í von um að flýta fyrir gríð­ar­legum bygg­ing­ar­fram­kvæmdum, sam­kvæmt heim­ild­ar­manni Radio Free Asia frétta­stof­unnar. Phil Robert­son, stjórn­andi Human Rights Watch í Asíu sagði brotin á verka­fólk­inu, vegna þræla­halds og nauð­ung­ar­vinnu, minna á ástandið í síð­ari heim­styrj­öld­inni.

Verk­stjórar í höf­uð­borg­inni Pyongyang eru sagðir vera undir svo miklu álagi að klára verk sín innan ákveð­ins tímara­mma að þeir hafa tekið upp á því að bjóða verka­fólki upp á eit­ur­lyf. Lyfið gengur undir gælu­nafn­inu „ice“ [ísl. ís] og er gríð­ar­lega örvandi. Þegar það er sogið inn um nefið eða reykt gefur það not­and­anum mikla vellíð­ana­til­finn­ingu, aukna orku auk þess sem það minnkar mat­ar­lyst. Áhrifin geta varað í allt að tólf klukku­stundir.

Svara höftum með því að byggja hús

Hundruð þús­unda Norður-Kóreskra borg­ara hafa verið neyddir til að vinna að verk­efn­unum, sem sam­anstendur af 70 hæða háhýsum og meira en 60 íbúð­ar­blokkum. Verk­efnið var sett á lagg­irnar af leið­toga lands­ins, Kim Jong-Un  fyrr á þessu ári. Er það eins konar svar við höftum sem lögð voru á landið ein­angr­aða vegna til­rauna þess með kjarn­orku­vopn.

Kim Jong-Un
Kim Jong-Un Leið­tog­inn hefur víst sjálfur verið undir gríð­ar­legu álagi síð­ustu miss­eri.

„Verk­stjórar eru opni­ber­lega að bjóða verka­fólki eit­ur­lyf svo það vinni hraðar,“ sagði heim­ild­ar­maður RFA í Pyongyang. „Það er gríð­ar­leg þján­ing að eiga sér stað á þessum vinnu­stöðum.“

„Hvers­vegna ekki að borga þeim laun ef þau vilja að verka­fólkið vinni hraðar, í stað þess að taka upp á því að gefa þeim eit­ur­lyf?“

Mann­rétt­inda­sam­tök í Asíu hafa sagt aðstæður verka­fólk líkj­ast þræla­haldi og hvetja Sam­ein­uðu þjóð­irnar til frek­ari aðgerða gegn Kim Jong-Un. Phil Robert­son, stjórn­andi Human Rights Watch í Asíu sagði: „Það gæti orðið erfitt að stað­festa að þetta sé að eiga sér stað, en ef það verður stað­fest þá for­dæmum við það algjör­lega. Hið raun­veru­lega vanda­mál hérna er þræla­haldið. Hvers­vegna ekki að borga þeim laun ef þau vilja að verka­fólkið vinni hraðar, í stað þess að taka upp á því að gefa þeim eit­ur­lyf?“

Sagði hann Norður-Kóresk yfir­völd vilja klára að reisa þessar bygg­ingar til þess að sanna á ein­hvern hátt hversu þróað landið sé. „En þessi aðferð við að þvinga fólk til vinnu er algjör­lega for­dæmd af alþjóða­sam­fé­lag­inu.“ Robert­son bætti því við að ástandið væri aftu­hvarf til síð­ari heim­styrj­ald­ar­innar, þegar rík­is­stjórnir brugðu reglu­lega á það ráð að neyða þegna sína í þræla­vinnu. 

Langvarandi notkun
Langvar­andi notkun amfetamíns hefur gríð­ar­lega nei­kvæð áhrif á heilsu fólks.

Norður-Kórea hefur fram­leitt amfetamín til þess að auka gjald­eyr­is­forða lands­ins frá átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. Upp­haf­lega var það selt sem lyf en varð fljót­lega gríð­ar­lega vin­sælt eit­ur­lyf. Er það fram­leitt í rík­is­reknum verk­smiðjum af illa laun­uðum efna­fræð­ingum og selt bæði heima og erlendis.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþjóðamál

Þunna línan á milli þjóðernisstolts og oflátungsháttar
GreiningUppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóð­ern­isstolts og oflát­ungs­háttar

InDefence-hóp­ur­inn svo­kall­aði beitti þjóð­ern­is­legri orð­ræðu í áróð­urs­stríði við Breta, að mati Markúsar Þór­halls­sonar sagn­fræð­ings. Sótt var í 20. aldar sögu­skoðun um gullöld og nið­ur­læg­ing­ar­tíma­bil Íslend­inga­sög­unnar. 83 þús­und manns skrif­uðu undir „Icelanders are not ter­r­orists“-und­ir­skrifta­list­ann og hóp­ur­inn orsak­aði fyrstu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu lýð­veld­is­tím­ans.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár