Guðlaugur Þór dreifði Brexit-áróðri og mærir nú Boris Johnson: „Mjög hæfur“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son dreifði vill­andi boð­skap frá Brexit-sinnum í aðdrag­anda atkvæða­greiðsl­unnar 2016 um að útganga myndi spara Bretum 350 millj­ónir punda sem yrði svo hægt að dæla í heil­brigð­is­kerfið. Hann segir Boris Johnson hafa „skýra sýn“.

Guðlaugur Þór dreifði Brexit-áróðri og mærir nú Boris Johnson: „Mjög hæfur“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, núver­andi utan­rík­is­ráð­herra, dreifði sömu rang­færsl­unum og Boris Johnson í aðdrag­anda Brexit-atkvæða­greiðsl­unnar árið 2016. Þann 23. maí, mán­uði áður en atkvæða­greiðslan fór fram, birti Guð­laugur áróð­urs­mynd­band á Facebook þar sem því er rang­lega haldið fram að Bretland greiði Evr­ópu­sam­band­inu 350 millj­ónir punda viku­lega og að fyrir sömu fjár­hæð mætti byggja nýjan spít­ala í hverri viku og búa hann öllum nauð­syn­legum tækjum.

Boris Johnson, sem nú er orð­inn for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, setti fram yfir­lýs­ingar sama efnis í aðdrag­anda Brexit-atkvæða­greiðsl­unnar. Þann 29. maí síð­ast­lið­inn var honum skipað að mæta fyrir dóm vegna yfir­lýs­ing­anna eftir að borg­ari höfð­aði mál á þeim grund­velli að Boris hefði villt um fyrir almenn­ingi og þannig gerst sekur um brot í opin­beru starfi sem borg­ar­stjóri. Æðra dóms­stig ógilti dóm­kvaðn­ing­una nokkrum dögum síðar og þurfti því Boris ekki að svara fyrir ummælin í rétt­ar­sal.

Töl­fræði­stofnun Bret­lands (UK Statistics Aut­hority) gaf út yfir­lýs­ingu þann 27. maí þar sem yfir­lýs­ingar um 350 millj­ón­irnar voru leið­réttar og bent á að þar væri horft fram hjá frá­drætti (e. rebate) sem samið var um í rík­is­stjórn­ar­tíð Margaret Thatcher auk greiðslna frá ESB til Breta, svo sem í formi land­bún­að­ar­styrkja. Rann­sókn­ar­stofnun rík­is­fjár­mála (Institute for Fiscal Studies) tók í sama streng og sagði mál­flutn­ing­inn „absúrd“. Klukku­stund eftir að ljóst varð að kosið hafði verið um útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu aðfara­nótt 24. júní 2016 við­ur­kenndi Nigel Farage, einn af lyk­il­mönnum útgöngu­hreyf­ing­ar­innar, að slag­orðið hefði verið mis­tök. 

Þótt ítrekað væri bent á rang­færslur lyk­il­manna útgöngu­hreyf­ing­ar­innar hélt Guð­laugur Þór áfram að deila áróð­ursefni frá þeim á Facebook. „Bretland býr ekki við við­skipta­frelsi á meðan það er í ESB. ESB er gam­al­dags tolla­banda­lag,“ skrif­aði hann og birti mynd­bönd frá Evr­ópu­þing­mann­inum Daniel Hannan og hægrisinn­uðu hug­veit­unni Adam Smith Institute. „Ef Bretland fer út mun það skapa mikla mögu­leika fyrir Ísland og önnur ríkin innan og utan álf­unnar og mun örugg­lega leiða til mik­illar gerj­unnar á sviði frí­versl­unnar. Því eitt er víst að ef fólk vill við­skipta­frelsi þá velur það ekki ESB.“

Guð­laugur Þór var til við­tals á Bylgj­unni í gær og mærði Boris Johnson. „Það fer ekk­ert á milli mála að hér er mjög hæfur stjórn­mála­maður á ferð­inni sem er með mjög skýra sýn um hvert hann vill fara, en er óhefð­bund­inn að mörgu leyti,“ sagði Guð­laugur.

„Ég sá í fjöl­miðlum í gær að margir eru að líkja honum við Trump. Þar er ólíku saman að jafna. Trump hefur til dæmis lagt áherslu á inn­flytj­enda­málin, herð­ingu á þeim. Þú finnur ekki slíkt hjá Boris Johnson og það sem menn skil­greina oft sem popúl­isma.“ 

Boris Johnson og Donald Trump eiga það sam­eig­in­legt að tjá sig með óhefl­uðum hætti, en líkt og Trump hefur Boris verið gagn­rýndur fyrir niðr­andi tal um minni­hluta­hópa. Frægt varð þegar hann líkti hjóna­böndum sam­kyn­hneigðra við að þrír menn gift­ist hundi og í skrifum sínum fyrir hægrisinnuð dag­blöð í Bret­landi hefur hann fjallað af nostal­gíu um breska heims­veldið, líkt konum sem klæð­ast búrkum við póst­kassa og banka­ræn­ingja og sprellað með að hreinsa þurfi burt alla „dauðu búk­ana“ eftir Líb­íu­stríðið. 

„Boris John­son er búinn að vera í stjórn­málum í ára­tugi og er frjáls­lyndur íhalds­mað­ur,“ segir Guð­laugur. „Hann hefur til dæmis verið borg­ar­stjóri í London þar sem hann vann London – sem á ekki að vera hægt fyrir íhalds­mann – og komst mjög vel frá því verk­efn­i.“ Guð­laugur bætti því við að sér hefði þótt gott að vinna með Boris Johnson þegar Boris var utan­rík­is­ráð­herra í stjórn Theresu May. 

Forsíða The Sun í dag

Götu­blaðið The Sun fagn­aði emb­ætt­is­töku Boris Johnson með afger­andi for­síðu í dag. Dagblöð nær miðj­unni á hinu póli­tíska lit­rófi hafa hins vegar ekki vandað Boris kveðj­urnar.

„Loddari á Downing Street,“ er yfir­skrift leið­ara viku­blaðs­ins New Statesman þar sem full­yrt er að Boris sé sið­ferði­lega óhæfur til að gegna emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra eftir að hafa ítrekað orðið upp­vís að óheið­ar­leika, bæði sem blaða­maður og stjórn­mála­maður. 

Boris Johnson var á meðal lyk­il­manna í bar­átt­unni fyrir útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu árið 2016, en kosn­inga­bar­áttan byggði að veru­legu leyti á afbökun stað­reynda. Ein skýrasta birt­ing­ar­mynd þess var Brexit-rútan með slag­orði um 350 millj­ón­irnar. Heilinn á bak við þetta, Dominic Cummings, hefur nú fengið lyk­il­hlut­verk í nýrri rík­is­stjórn Borisar Johnson.

Lyk­il­maður í Brexit-hreyf­ing­unni
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþjóðamál

Þunna línan á milli þjóðernisstolts og oflátungsháttar
GreiningUppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóð­ern­isstolts og oflát­ungs­háttar

InDefence-hóp­ur­inn svo­kall­aði beitti þjóð­ern­is­legri orð­ræðu í áróð­urs­stríði við Breta, að mati Markúsar Þór­halls­sonar sagn­fræð­ings. Sótt var í 20. aldar sögu­skoðun um gullöld og nið­ur­læg­ing­ar­tíma­bil Íslend­inga­sög­unnar. 83 þús­und manns skrif­uðu undir „Icelanders are not ter­r­orists“-und­ir­skrifta­list­ann og hóp­ur­inn orsak­aði fyrstu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu lýð­veld­is­tím­ans.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár