Blaða­menn­irnir fjórir Rann­sök­uðu eða afhjúp­uðu spill­ingu í löndum sínum. Morð á Jamal Khas­hoggi hefur ekki fengið stað­fest, en ekk­ert hefur spyrst til hans síðan 2. októ­ber.

Myrt vegna fréttaflutnings

Víða um heim sæta blaða­menn ógn­unum og hót­unum, þeir eru lög­sóttir, færðir í gæslu­varð­hald og stungið í fang­elsi vegna skrifa sinna, pynt­aðir og drepnir. Á síð­ustu tólf mán­uðum hafa þrír blaða­menn verið myrtir á evr­ópskri grundu og nýlega hvarf blaða­maður inn í sendi­ráð Sádi-Arabíu í Tyrk­landi og kom aldrei þaðan út aftur.

Þrír blaða­menn hafa verið myrtir á evr­ópskri grundu á síð­ast­liðnum tólf mán­uðum, þau Daphne Caruana Galizia, Viktoria Marinova og Jan Kuciak, sem öll áttu það sam­eig­in­legt að hafa afhjúpað spill­ingu í heima­löndum sínum.

Það sem af er árs hafa 56 blaða­menn víðs vegar um heim­inn lát­ist vegna starfa sinna, en í byrjun þessa mán­aðar gekk Jamal Kashoggi, blaða­maður frá Sádi-Arabíu, inn í sendi­ráð sitt í Tyrk­landi og kom aldrei þaðan út aftur. Staðfest er að hann hafi lát­ist þar, en hvernig er enn óráðið.

Hverjir voru þessir blaða­menn og hvað voru þau að rann­saka þegar þau voru myrt?

Panamaskjölin og Malta

Daphne Caruana Galizia hafði stundað rann­sókn­ar­blaða­mennsku í meira en þrjá­tíu ár og rann­sak­aði spill­ingu í stjórn­kerfi Möltu. Þar á meðal fjall­aði hún um frænd­hygli í malt­neskri stjórn­sýslu, ásak­anir um pen­inga­þvætti og tengsl veð­mála­fyr­ir­tækja lands­ins við ítölsku mafí­una.

Stærsta afhjúpun hennar tengd­ist þó umfjöllun um mál er varð­aði Panama­skjölin. Snemma árs 2016 fjall­aði hún um eign­ar­hald þáver­andi orku­mála­ráð­herra Möltu á aflands­fé­lögum í Panama og Nýja-Sjálandi. Umfjöllun hennar birt­ist áður en Panama­skjöl­unum sjálfum var lekið í apríl 2016, en lek­inn stað­festi frétta­flutn­ing hennar. Ráð­herr­ann var settur af en sat enn á þingi. Ári síðar gaf hún í skyn að eig­in­kona Joseph Muscat, for­sæt­is­ráð­herra Möltu, ætti aflands­fé­lög sem varð til þess að halda þurfti kosn­ingar aftur. Muscat vann og fyrr­ver­andi orku­mála­ráð­herr­ann var settur sem ferða­mála­ráð­herra.

Árum saman var hún áreitt vegna starfa sinna og sætti marg­vís­legum hót­unum. Nánast dag­lega bár­ust henni líf­láts­hót­anir, slíkar hót­anir voru hengdar á úti­dyra­hurð­ina, hún fékk sím­töl og bréf­send­ingar, sms og tölvu­pósta, auk þess sem skilin voru eftir komment á vef­miðli hennar, Running Commentary, sem hún stofn­aði þegar hún varð þreytt á tak­mörk­unum ráð­settra fjöl­miðla og varð fljótt einn vin­sæl­asti vef­mið­ill Möltu. Kveikt var í hús­inu hennar, hundi fjöl­skyld­unnar var slátrað og banka­reikn­ingar frystir. Í ofaná­lag þurfti hún að þola lög­sóknir vegna skrifa sinna. Þegar hún lést var hún við­riðin mál­sóknir tólf aðila í 42 málum, meðal ann­ars valda­mik­illa stjórn­mála­manna. Var henni lýst sem „einnar konu WikiLeaks, í kross­ferð gegn leynd­ar­hyggju og spill­ingu á Möltu, eyríki sem frægt er fyrir hvort tveggja“.

Tveimur vikum áður en hún var ráðin af dögum hafði hún til­kynnt lög­reglu að hún sætti hót­unum. Síðustu blogg­færslu sinni lauk hún með þeim orðum að ástandið væri óbæri­legt. Það var svo þann 16. októ­ber 2017 sem bíll hennar var sprengdur upp þar sem hún var á leið heim til sín. Sonur hennar kom að vett­vangi og lýsti því í Facebook-færslu hvernig lík­ams­partar móður hans hefðu legið allt í kringum hann. „Svona lítur stríð út,“ sagði hann. Malta væri í stríði við rík­is­valdið og skipu­lagða glæp­a­starf­semi, „sem er ekki lengur hægt að aðgreina“.

Var þetta í sjötta sinn sem bíll var sprengdur upp í Möltu frá árinu 2016, en sá fyrsti þar sem fórn­ar­lambið var ekki glæpa­maður. Í kjöl­farið lýsti for­sæt­is­ráð­herra Möltu því yfir að hann myndi ekki una sér hvíldar fyrr en rétt­læti hefði verið náð og hét einni milljón evra í verð­laun fyrir upp­lýs­ingar um morð­ingj­ana. Fjöl­skylda hennar lagð­ist hins vegar gegn því að stjórn­mála­menn nýttu sér arf­leifð hennar til þess að afla sér vin­sælda og krafð­ist afsagnar for­sæt­is­ráð­herr­ans. Þá lýsti fjöl­skyldan van­trausti á yfir­mann rann­sókn­ar­innar á morð­inu vegna þess að hann hafði sjálfur staðið í mála­ferlum gegn Daphne. Þrír hafa verið ákærðir fyrir morðið, en ekk­ert hefur verið gert til að finna þann sem fyr­ir­skip­aði sprengj­una.

Búlgaría og fjármagn Evrópusambandsins

Viktoria Marinova var dag­skrár­gerð­ar­kona fyrir sjón­varps­stöð í heimabæ sínum Ruse í Búlgaríu. Fyrsti þátt­ur­inn af nýjum frétta­skýr­inga­þáttum í hennar umsjón var sýndur 30. sept­em­ber.  Í þætt­inum var við­tal við tvo rann­sókn­ar­blaða­menn sem höfðu rann­sakað hvernig fjár­magn frá Evr­ópu­sam­band­inu virt­ist hafa horfið í vasa kaup­sýslu­manna.

Um var að ræða mikið hita­mál, en blaða­menn­irnir tveir sem Marinova ræddi við voru hand­teknir við rann­sókn máls­ins. Næstu þættir áttu að fjalla frekar um fyr­ir­tæki sem fengu fjár­magn frá Evr­ópu­sam­band­inu.

Ráðist var á Marinova sex dögum síðar, henni nauðgað og hún myrt. Hún var nýorðin þrí­tug. Rann­sókn­ar­að­ilar hafa haldið því fram að morðið hafi ekki tengst vinnu hennar á sjón­varps­stöð­inni, heldur hafi um hvat­vís­lega árás verið að ræða. Maður var hand­tek­inn í Berlín vegna máls­ins.

Samtökin Reporters Without Borders setja Búlgaríu í 111. sæti af 180 mögu­legum er varðar fjöl­miðla­frelsi, í lægsta sæti af öllum Evr­ópu­sam­band þjóðum.

Ítalska mafían í Slóvakíu

Greinin sem Jan Kuciak var að vinna að þegar hann var myrtur gaf til kynna tengsl á milli ítölsku mafí­unnar og aðilum tengdum for­sæt­is­ráð­herra Slóvakíu. Hann fjall­aði þar áður um virð­is­auka­skattsvindl sem við­skipta­jöf­ur­inn Marian Kočner stund­aði. Kočner hafði átt í hót­unum við Kuciak haustið 2017. Kuciak reyndi að kæra Kočner en lög­reglu­yf­ir­völd svör­uðu beiðnum hans ekki í rúman

mánuð.

Nú í febr­úar voru Kuciak og unnusta hans skotin til bana á heim­ili sínu. Engu var stolið og engin ummerki um átök voru til staðar. Blaðið sem Kuciak skrif­aði fyrir birti ókláraða grein hans um mafí­una eftir dauð­dag­ann og var hún einnig þýdd á ensku.

For­sæt­is­ráð­herra Slóvakíu, Robert Fico, hélt fjöl­miðla­fund þar sem hann lof­aði einni milljón evra til hvers sem gæti veitt upp­lýs­ingar um morðin. Evrurnar voru settar fram á borðið við hlið púlts Fico, bundnar í mörg stór búnt. Á fund­inum var­aði hann blaða­menn við að bendla „sak­laust fólk við tvö­falt morð“.

Gagnrýninn á Sádi-Arabíu

Sádi-arab­íski blaða­mað­ur­inn Jamal Khas­hoggi hafði stundað blaða­mennsku bæði í heima­landi sínu og víðar í meira en þrjá­tíu ár. Hann var mjög gagn­rýn­inn á stjórn heima­lands síns og þá sér­stak­lega gegn krón­prins­inum Mohammad bin Salman.

Khas­hoggi átti far­sælan feril bæði sem blaða­maður og rit­stjóri í Sádi-Arabíu. Hann vann einnig sem fjöl­miðla­ráð­gjafi fyrir hina og þessa emb­ætt­is­menn. Rit­stjóra­fer­ill hans var umdeildur, til að mynda var hann ráð­inn til blaðs­ins Al Watan árið 2003, en rek­inn tveim mán­uðum síðar fyrir að leyfa blaða­manni að gagn­rýna virtan íslamskan klerk.

Khas­hoggi hafði búið í Banda­ríkj­unum í eitt ár þegar hann hvarf vegna ótta hans við að vera hand­tek­inn í heima­land­inu. Hann skrif­aði meðal ann­ars fyrir Washington Post. Hann hafði hins vegar farið til Tyrk­lands til að sækja skjöl sem hann þurfti að leggja fram þegar hann kvænt­ist unn­ustu sinni. Mynd­bands­upp­tökur sýna að hann fór inn í bygg­ing­una en kom ekki aftur þaðan út. Starfs­fólki sendi­ráðs­ins var gefið frí þennan dag og örygg­is­mynda­vélar í hús­inu virk­uðu ekki.

Þennan sama dag komu fimmtán sádi-arab­ískir rík­is­borg­arar til lands­ins, ýmist með einka­flugi eða far­þega­flugi, þeirra á meðal var rétt­ar­meina­fræð­ingur tengdur rík­is­stjórn Sáda, sem hafði í far­angrinum beina­sög. Hópurinn fór úr landi aftur sama dag.

Sádar afneit­uðu til að byrja með öllum ásök­unum um að Khas­hoggi hefði dáið í sendi­ráð­inu, en um þremur vikum síðar breytt­ist sagan. Þeir við­ur­kenna nú að Khas­hoggi hafi dáið innan veggja sendi­ráðs­ins, en halda því fram að slags­mál hafi brot­ist út á milli Khas­hoggi og nokk­urra Sáda sem lauk með dauð­daga hans. Þeir segj­ast ekki vita hvar líkið er og utan­rík­is­ráð­herra Sádi-Arabíu lof­aði því að þeir sem bæru ábyrgð á dauða hans yrði refsað. Þeir hafi farið langt út fyrir vald­svið sitt með morð­inu.

Einn af mönn­unum fimmtán var mynd­aður í fötum Khas­hoggi stuttu síðar á gangi um fjöl­menna túrista­staði í borg­inni. 

Viðbrögðin gefa í skyn misbresti

Í ofan­greindum málum gefa kring­um­stæður morð­anna ástæðu til að ætla að störf þeirra á vett­vangi blaða­mennsku hafi að lokum dregið þau til dauða.

Á Möltu hafa bíl­sprengjur verið not­aðar í upp­gjörum und­ir­heima og skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi, en Galizia var fyrsta mann­eskjan í mörg ár sem lést í slíkri árás sem ekki var tengd skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Morðinu á Kuciak hefur verið líkt við aftöku og við­brögð stjórn­valda, að bjóða fram verð­laun í formi reiðu­fjár, hafa verið gagn­rýnd. Þeir sem fóru fyrir rann­sókn­inni á morð­inu á Marinova þvertóku strax fyrir það að morðið gæti tengst vinnu hennar fyrir þátt­inn Detector, en það sætti furðu hversu hratt þeir komust að þeirri nið­ur­stöðu.

Washington Post hefur greint frá því að áður en Khas­hoggi fór til Tyrk­lands hafi banda­ríska leyni­þjón­ustan hlerað sam­tal sádi-arab­ískra emb­ætt­is­manna sem ræddu um að kló­festa hann. Samkvæmt heim­ildum blaðs­ins þeirra hafi hann verið yfir­heyrður, pynt­aður og drep­inn. Eftir hvarf Khas­hoggi ákvað við­skipta­jöf­ur­inn Richard Branson að hætta við sam­starf við Sádi-Araba í ferða­þjón­ustu og stöðva við­ræður um fjár­fest­ingar Sádi-Araba í Virgin-flug­fé­lag­inu. 

Ann­að­hvort voru þessir blaða­menn á barmi enn stærri upp­götv­ana eða að þeir aðilar sem voru afhjúpaðir vegna þeirra hafi séð ástæðu til þess að senda skila­boð til ann­arra blaða­manna; ekki koma nær okkur.

Blaðamenn í  hættu á heimsvísu?

Samtökin Reporters Without Borders taka saman tölur yfir þá blaða­menn sem lát­ast vegna starfa sinna, hvort heldur sem það er með glæp­sam­legum hætti eða af slys­förum, og sömu­leiðis þá sem eru fang­els­aðir vegna frétta­flutn­ings. Inn í þær tölur rata aðeins til­vik þar sem stað­fest er að afdrif blaða­mann­anna megi rekja til starfs­ins. Þannig var mál Viktoriu Marinova ekki til­tekið á lista þeirra. 

Fram til þessa hefur 71 blaða­maður víðs vegar um heim­inn lát­ist, en í 52 til­vikum var stað­fest að dauð­dag­inn tengd­ist starf­inu. Ári áður lét­ust 55 blaða­menn víðs vegar um heim­inn.  Verst er ástandið í Afganistan þar sem 11 blaða­menn hafa lát­ist, sjö í Sýrlandi, fimm í Jemen og sömu­leiðis í Mexíkó. Þar sem ástandið er verst hafa margir blaða­menn ekki átt ann­arra kosta völ en að flýja land. Reporters Without Borders hafa veitt blaða­mönnum í lífs­hættu styrki til þess að flytj­ast búferlum á örugg­ara svæði. 

Að auki hafa 157 blaða­menn verið fang­els­aðir um allan heim, flestir í Tyrk­landi og Egypta­landi, en hvort í sínu land­inu hefur 27 blaða­mönnum verið stungið í stein­inn. 

Í löndum þar sem ítrekað er brotið á fjöl­miðla­frelsi er algengt að blaða­menn séu hand­teknir til að trufla störf þeirra, og sæta jafn­vel margra mán­aða gæslu­varð­haldi án þess að ástæða sé til. Í löndum þar sem hóf­stillt­ari aðferðum er beitt til þess að vega að fjöl­miðla­frelsi fel­ast árásir á blaða­menn frekar í lög­sóknum. 

Fjölmiðlafrelsi á Íslandi

„Þrátt fyrir að frelsi fjöl­miðla sé í hávegum haft í flestum lýð­ræð­is­ríkjum og dóm­stólar hafi margoft fjallað um mik­il­vægi frjálsra fjöl­miðla fyrir lýð­ræð­is­lega umræðu líður varla sá dagur að ekki heyr­ist fréttir af því að brotið hafi verið á tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla og blaða­manna, hér­lendis sem erlendis.“ Þetta kemur fram í skrif­legu svari Heið­dísar Lilju Magn­ús­dóttur, lög­fræð­ings hjá Fjöl­miðla­nefnd, við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um fjöl­miðla­frelsi á Íslandi sam­an­borið við aðrar þjóðir.

Íslenskir blaða­menn hafa þurft að kljást við að við­fangs­efni þeirra verði til þess að fólk sæki þá til dóms. Einnig hefur blaða­mönnum verið hótað lík­ams­meið­ingum. „Þó eru ekki nema tvö ár síðan að fréttir bár­ust af því að blaða­maður Stund­ar­innar þyrfti að ganga með neyð­ar­hnapp sem var bein­tengdur við lög­reglu, út af saka­máli sem hann var þá að skrifa um. Meira segja á Íslandi hafa blaða­menn verið taldir hafa ástæðu til að ótt­ast um líf sitt og limi vegna starfa sinna.“

Dóms­leið­irnar eru aðal­lega meið­yrða­mál. „Á Íslandi fara meið­yrða­mál gegn blaða­mönnum mun oftar fyrir dóm­stóla en í nágranna­ríkjum og hefur Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu ítrekað kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hafi brotið á rétti blaða­manna til tján­ing­ar­frelsis.“

Ísland situr sem stendur í 13. sæti þjóða þegar kemur að fjöl­miðla­frelsi sam­kvæmt Reporters Without Borders og fellur um þrjú sæti frá síð­asta ári. Í úttekt Reporters Without Borders á Íslandi er skýr­ing á fall­inu sú að sam­skipti á milli stjórn­mála­manna og fjöl­miðla hafa orðið lak­ari frá árinu 2012. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþjóðamál

Þunna línan á milli þjóðernisstolts og oflátungsháttar
GreiningUppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóð­ern­isstolts og oflát­ungs­háttar

InDefence-hóp­ur­inn svo­kall­aði beitti þjóð­ern­is­legri orð­ræðu í áróð­urs­stríði við Breta, að mati Markúsar Þór­halls­sonar sagn­fræð­ings. Sótt var í 20. aldar sögu­skoðun um gullöld og nið­ur­læg­ing­ar­tíma­bil Íslend­inga­sög­unnar. 83 þús­und manns skrif­uðu undir „Icelanders are not ter­r­orists“-und­ir­skrifta­list­ann og hóp­ur­inn orsak­aði fyrstu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu lýð­veld­is­tím­ans.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár