Hinir ríku verða rík­ari Alþjóð­legu hjálp­ar­sam­tökin Oxfam hafa und­an­farin ár bent á það hvernig mis­skipt­ing er að aukast í heim­inum.

Misskiptingin eykst á feikihraða og ógnar lýðræðinu

Sex ein­stak­lingar eiga nú jafn mikið og helm­ingur mann­kyns. Auðurinn sóp­ast frá þeim sem minnst eiga og safn­ast á hendur hinna fáu sem eiga mest. Sér­fræð­ingar ótt­ast að hin sívax­andi mis­skipt­ing ýti enn frekar undir sókn hægri popúlista á Vest­ur­löndum. Mis­skipt­ingin minnst í þeim ríkjum þar sem efna­hags­legt lýð­ræði er mest.

Er hin gríð­ar­lega mikla og sívax­andi mis­skipt­ing að valda því að fólk snýr sér í síauknum mæli að popúl­ískum hægri öfga­flokkum? Þetta var á meðal þeirra spurn­inga sem stjórn­mála­menn og við­skipta­jöfrar spurðu sig á árlegum fundi World Economic Forum, WEF, í Davos í Sviss í jan­úar síð­ast­liðnum. Christine Lagarde, fyrr­ver­andi for­stjóri Alþjóða gjald­eyr­is­sjóðs­ins, benti meðal ann­ars á að hún hefði einmitt varað við þró­un­inni á sama vett­vangi árið 2013 en þá hefðu fáir hlustað. Nú, fjórum árum síðar, í kjöl­far Brexit og kjörs Donalds Trump í emb­ætti Banda­ríkja­for­seta, hefði efa­semd­ar­rödd­unum hins vegar fækkað snar­lega.

Í sér­stakri skýrslu WEF, sem 700 sér­fræð­ingar unnu að í til­efni ráð­stefn­unnar, og fjallar um helstu hættur sem steðja að mann­kyn­inu, er hin aukna mis­skipt­ing einmitt nefnd sem helsta ógnin. Er það álit sér­fræð­ing­anna að hin aukna mis­skipt­ing hafi leitt til Brexit og kjörs Donalds Trump. Þá vara þeir sér­stak­lega við gervi­greind­ar­bylt­ing­unni sem fram undan er en talið er að hún muni leiða til þess að fjöldi starfa verði óþörf á næstu ára­tugum þar sem róbótar munu hrein­lega taka þau yfir. Verði ekk­ert gert til þess að bregð­ast við þessu má búast við fjölda­at­vinnu­leysi með enn meiri mis­skipt­ingu.

Mis­skipt­ing á alþjóða­vísu eykst nú þegar hratt með hverju árinu. Snemma árs 2016 greindu alþjóð­legu hjálp­ar­sam­tökin Oxfam frá því að 62 ein­stak­lingar ættu jafn mikið og fátæk­ari helm­ingur mann­kyns. Ári síðar, þ.e. í byrjun árs 2017, greindi Oxfam svo frá því að nú ættu átta menn jafn mikið og helm­ingur mann­kyns. Sé tekið mið af þeirri aðferða­fræði sem Oxfam not­ast sjálft við má ætla að þessi tala sé nú komin niður í sex mann­eskjur. Ástæður þess­ara hröðu breyt­inga eru einkum tvær; ann­ars vegar er helm­ingur mann­kyns (og raunar fleiri) ein­fald­lega að verða fátæk­ari og hins vegar eru þeir lang­sam­lega rík­ustu sífellt að eign­ast meira. Ýmsir hafa gagn­rýnt þessa þróun harð­lega, meðal ann­ars Frans páfi sem kallar eftir algjörri end­ur­upp­stokkun á efna­hags­kerfi heims­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþjóðamál

Þunna línan á milli þjóðernisstolts og oflátungsháttar
GreiningUppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóð­ern­isstolts og oflát­ungs­háttar

InDefence-hóp­ur­inn svo­kall­aði beitti þjóð­ern­is­legri orð­ræðu í áróð­urs­stríði við Breta, að mati Markúsar Þór­halls­sonar sagn­fræð­ings. Sótt var í 20. aldar sögu­skoðun um gullöld og nið­ur­læg­ing­ar­tíma­bil Íslend­inga­sög­unnar. 83 þús­und manns skrif­uðu undir „Icelanders are not ter­r­orists“-und­ir­skrifta­list­ann og hóp­ur­inn orsak­aði fyrstu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu lýð­veld­is­tím­ans.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár