„Útgerðarmenn geta ekki haldið þjóðinni í gíslingu“

Jón Steins­son hag­fræð­ingur telur ekki að hátt kaup­verð á afnota­rétti afla­heim­ilda komi í veg fyrir að rík­is­valdið taki kvót­ann af útgerð­unum og bjóði hann upp. Tvær til þess að gera stórar útgerðir eru nú við það að verða seldar á nokkra millj­arða enda verð afla­heim­ilda hátt.

Engin rök
Engin rök Jón Steins­son telur að sú stað­reynd að útgerðir, eins og Skinney-Þinganes, hafi greitt hátt verð fyrir afla­heim­ildir komi ekki í veg fyrir að rík­is­valdið hætti að úthluta þeim þessum afla­heim­ildum og bjóði þær upp á mark­aði. Hér sjást nokkrir af helstu stjórn­endum Skinn­eyjar-Þinga­ness en útgerðin er að ganga frá kaupum á Auð­björgu í Þor­láks­höfn fyrir verð sem gæti numið um fimm millj­örðum.

„Það sjón­ar­mið að stór hluti kvót­ans hafi skipt um hendur og að þeir sem hafa keypt hafi greitt háar fjár­hæðir fyrir kvót­ann hefur alla tíð verið ein af þeim rök­semdum sem and­stæð­ingar breyt­inga hafa haldið á lofti. Ég hef ekki mikla samúð með þessum rökum,“ segir hag­fræð­ing­ur­inn Jón Steins­son aðspurður í svari til Stund­ar­innar um það hvort hann telji raun­veru­lega mögu­legt að breyta kvóta­kerf­inu með þeim hætti að afla­heim­ildir verði fram­vegis boðnar upp og afnota­réttur þeirra leigður hæs­bjóð­anda. 

Jón skrif­aði grein um um kvóta­kerfið í Frétta­blaðið fyrir skömmu sem vakti mikla athygli en þar rakti hann þau vanda­mál sem fylgja kvóta­kerf­inu og lýsti þeirri skoðun sinni að þjóðin fengi ekki nægi­legan arð af fisk­veiði­auð­lind­inni. Nið­ur­staða Jóns í grein­inni var skýr: Breyta þarf kvóta­kerf­inu þannig að afla­heim­ildir verði boðnar upp. „Það er ein­falt að ráða bót á þessu. Til þess þarf ein­ungis að bjóða upp veiði­heim­ildir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár