Unglingurinn óttaðist að lenda í fangelsi vegna falsaðra skilríkja

Ali og Majed ferð­uð­ust á yfir­fullum bátum yfir Mið­jarð­ar­hafið. Stríðs­á­stand og engin fram­tíð í Írak, segja hæl­is­leit­end­urnir sem dregnir voru út úr Laug­ar­nes­kirkju með valdi síð­ustu nótt.

Unglingurinn óttaðist að lenda í fangelsi vegna falsaðra skilríkja

Útlend­inga­stofnun stað­hæfir að hvor­ugur hæl­is­leit­end­anna sem dreg­inn var út úr Laug­ar­nes­kirkju með valdi síð­ustu nótt sé undir lög­aldri. Ali Nasir og Majed, hæl­is­leit­endur frá Írak sem dvalið hafa á Íslandi í um sjö mán­uði, greindu Stund­inni frá því að þeir væru 16 ára og 30 ára gamlir. 

Ali og túlk­ur­inn hans sögðu jafn­framt að þegar Ali flúði frá Írak hefði hann orðið sér úti um falsað vega­bréf og sam­kvæmt því væri hann 19 ára gam­all. Á leið­inni til Íslands hefði hann heyrt að Íslend­ingar hefðu um ára­bil dæmt flótta­fólk í fang­elsi fyrir að fram­vísa fölsuðum skil­ríkjum. Auk þess væri hér­lendis oft­ast dregið í efa að hæl­is­leit­endur væru undir lög­aldri. 

Þegar Ali kom til Íslands og sótti um hæli fram­vís­aði hann því fals­aða vega­bréf­inu en þorði ekki að segja íslenskum yfir­völdum að papp­ír­arnir væru fals­aðir. Fyrir vikið not­færði Ali sér ekki ungan aldur þegar yfir­völd tóku mál hans til skoð­unar, en slíkt hefði getað orðið máli hans til fram­dráttar.

Útlendingastofnun rýfur trúnað

Morg­un­blaðið sló því upp í net­frétt um tvöleytið í dag að Ali Nasir væri „ekki sex­tán ára, líkt og haldið hef­ur verið fram í frétt­um Stund­ar­inn­ar og Rík­is­út­varps­ins í dag, held­ur yfir lög­aldri“. Þetta stað­festi starfs­maður Útlend­inga­stofn­unar í sam­tali við Mbl.

Í frétt­inni er jafn­framt vísað í máls­gögn Alis. „Í gögn­um máls­ins er af­rit af vega­bréfi sem stað­fest­ir að hann er yfir lög­aldri. Stað­festi hann sjálf­ur fæð­ing­ar­dag­inn sem gef­inn er upp í vega­bréf­inu í við­tali hjá Útlend­inga­stofn­un. Stofn­un­in stað­fest­ir einnig þess­ar upp­lýs­ing­ar,“ segir orð­rétt í frétt Mbl.is. 

Klukkan 15:20 sendi loks Útlend­inga­stofnun út frétta­til­kynn­ingu þar sem segir orð­rétt: „Í fjöl­miðlum hefur því verið haldið fram að annar umsækj­end­anna sé 16 ára gam­all og því barn að aldri. Þetta er ekki rétt. Menn­irnir eru báðir eldri en átján ára. Þetta sýna fyr­ir­liggj­andi gögn í mál­inu auk fram­burðar mann­anna fyrir stjórn­völdum þar sem þeir stað­festu aldur sinn.“

Lög­fræð­ingar sem Stundin hefur rætt við furða sig á að Útlend­inga­stofnun gefi fjöl­miðlum upp upp­lýs­ingar um vega­bréf hæl­is­leit­enda, það hvað komið hefur fram í við­tölum við þá og máls­gögn úr hæl­is­málum. 

Löng ferð að baki

Ali og Majed voru dregnir með valdi út úr Laug­ar­nes­kirkju síð­ustu nótt. Við kirkju­tröpp­urnar tóku tveir lög­reglu­mann­anna sér stöðu og hand­járn­uðu Ali. Þegar vinur hans beygði sig yfir hann og benti lög­reglu­mönn­unum á að Ali væri aðeins sextán ára gam­all sló annar lög­reglu­mann­anna hann í and­litið. Síðan ýttu lög­reglu­menn­irnir Ali niður kirkju­tröpp­urnar í hand­járnum og þrýstu honum inn í lög­reglu­bíl þar sem hann brast í grát. 

Fram kom í sam­tali Stund­ar­innar við Ali að hann hefði alist upp í Bagdad en yfir­gefið Írak og haldið til Evrópu í leit að betri fram­tíð. Þeir eiga það sam­eig­in­legt að hafa farið á yfir­setnum bátum yfir Mið­jarð­ar­hafið frá Tyrk­landi til Grikk­lands og gengið svo þvert yfir meg­in­land Evrópu.

Horfðu á leikinn áður en þeir bjuggu sig til brottfarar

Ali og Majed lýstu því ófremd­ar­á­standi sem ríkir í Írak. Ali nefndi sem dæmi að fyrir nokkrum árum hefði honum verið rænt af vopn­uðum mönnum, keyrt með hann út úr borg­inni og for­eldrar hans krafðir um lausn­ar­gjald. Faðir hans hefði selt helstu eignir fjöl­skyld­unnar til að geta greitt það. Majed seg­ist hafa starfað sem lög­reglu­maður í Írak og meðal ann­ars flúið vegna ítrek­aðra hót­ana sem hann varð fyrir.

Ali og Majed ótt­ast að norsk stjórn­völd sendi þá aftur heim til Írak. Þeim líður vel á Íslandi og segja að hér sé fólk vin­gjarn­legt og minna um ras­isma en víða ann­ars staðar í Evrópu. Þeir vörðu síðusta kvöld­inu sínu á Íslandi í að horfa á fót­bolta­leik­inn milli Íslands og Englands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár