Tveggja ára barni var rænt: „Þetta var ógæfumaður“

Bif­reiðin sem lýst var eftir áðan er fundin og barnið komið í leit­irnar. For­eldrum er stór­kost­lega létt en ræn­ing­inn mun hafa séð að sér þegar þann rann upp fyrir honum að hann hafði numið barn á brott.

Tveggja ára barni var rænt: „Þetta var ógæfumaður“

Rétt í þessu, kl.15:18, var bif­reið­inni KY-990 stolið frá Rjúpna­sölum 3. Tveggja ára gam­alt barn er í bif­reið­inni og því mik­il­vægt að bif­reiðin finn­ist eins hratt og mögu­legt er. 

KY-990 er 2005 árgerð af Toyota Previa, gul að lit. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem hvetur hvern þann sem verður bif­reið­ar­innar var að hringja strax í 112.

 

Uppfært kl. 15:48
Samkvæmt Facebook-síðu lög­reglu er bif­reiðin sem lýst var eftir fundin og barnið komið í leit­irnar. 

Uppfært kl. 15:56
Föður og móður barns­ins sem rænt var í Kópavogi rétt í þessu er stór­kost­lega létt eftir að sonur þeirra kom í leit­irnar. Þau vilja ekki tjá sig sér­stak­lega um málið að svo stöddu, en segja að mað­ur­inn sem rændi bílnum hljóti að hafa séð af sér þegar það rann upp fyrir honum að það var barn í bílnum. „Þetta var ein­hver ógæfu­maður,“ segir fað­ir­inn í sam­tali við Stundina. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var mað­ur­inn ölv­aður. 

Rjúpnasalir 3
Rjúpna­salir 3 Hér var barn­inu og bif­reið­inni rænt

Uppfært kl. 16:29
Lögregla hefur sent frá sér eft­ir­far­andi til­kynn­ingu: „Karl á þrí­tugs­aldri hefur verið hand­tek­inn eftir að bíl var stolið við leik­skóla í Sala­hverf­inu í Kópavogi á fjórða tím­anum í dag. Tveggja ára barn var í bílnum þegar honum var stolið, en bíll­inn fannst um 25 mín­útum síðar í Kór­a­hverf­inu. Talið er að barnið hafi verið sof­andi meðan á þessu stóð. Lög­reglan hóf víð­tæk leit að bílnum um leið og til­kynn­ingin barst, en þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar var einnig kölluð til aðstoðar. Bíllinn hafði verið skil­inn eftir í gangi þegar honum var stolið. Maðurinn sem nú er í haldi vegna máls­ins hefur áður komið við sögu hjá lög­reglu, m.a. vegna nytja­stuldar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár