Mótmælandinn telur sig rifbeinsbrotinn

Sigurður Har­alds­son segir í sam­tali við Stundina að læknir telji mjög lík­legt að hann sé rif­beins­brot­inn eftir að þing­vörður sneri hann niður á dög­unum.

Mótmælandinn telur sig rifbeinsbrotinn
Skjáskot af mynd­bandi Stundin birti á dög­unum mynd­band af því þegar Sigurður var tek­inn niður af þing­verði. Aðdrag­andi þess er þó óljós á mynd­band­inu.

Sigurður Har­alds­son, mót­mæl­and­inn sem snú­inn var niður af þing­verði á dög­unum, segir í sam­tali við Stundina að læknir hafi tjáð honum að allar líkur séu á því að hann sé rif­beins­brot­inn. Hann seg­ist vera í sam­bandi við lög­mann um mögu­lega kæru vegna máls­ins.

„Hún á Lækna­vakt­inni taldi mig vera brot­inn. Lýsingin á því sem ég finn, sagði hún, bendir ein­dregið til brots. Ég er svo hrylli­lega aumur, það má ekki koma við mig. Þegar ég hósta eða hlæ þá fæ ég verki þannig að það eru allar líkur á broti. Rifbrot er nú bara þannig að það er ekki hægt að með­höndla það, það er bara brotið og grær á sínum tíma,“ segir Sigurður og bætir við að hann þurfi að taka sterk­ustu verkja­töflur vegna sárs­auka.

„Þegar ég hósta eða hlæ þá fæ ég verki“

 

Þarf að koma aftur í myndgreiningu

Ef Sigurður er í raun rif­beins­brot­inn er ekki víst að það komi strax í ljós í mynd­grein­ingu. „Málið er að ef ég fer í mynd­grein­ingu á broti sem er ekki mis­gengið þá er mjög erfitt að sjá það. Þannig að ég þarf að koma helst ein­hverjum fjórum, fimm vikum seinna til að sjá sam­grón­ing­inn,“ útskýrir Sigurður. „Þetta var ekki sjá­an­legt, en það þýðir hvorki af eða á. Lækn­ir­inn á Lækna­vakt­inn sagði að það væri ekk­ert víst að þeir myndu sjá neitt brot í mynd,“ segir Sigurður.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár