Segja lyfjakostnað vanáætlaðan um að minnsta kosti 700 milljónir í fjárlagafrumvarpinu

Heil­brigð­is­starfs­fólk ótt­ast að „sjúk­lingar fái ekki sam­bæri­lega lyfja­með­ferð og tíðkast í löndum sem við kjósum að bera okkur saman við,“ sam­kvæmt umsögn við fjár­laga­frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar, starf­andi fjár­mála­ráð­herra. Verulegt ósam­ræmi er milli fjár­laga og raun­veru­legrar lyfja­notk­unar í heil­brigð­is­kerf­inu.

Segja lyfjakostnað vanáætlaðan um að minnsta kosti 700 milljónir í fjárlagafrumvarpinu

Fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp van­á­ætlar útgjöld til lyfja­mála á næsta ári um að minnsta kosti 700 millj­ónir króna. Þetta er full­yrt í umsögn Félags atvinnu­rek­enda, Frumtaka og Samtökum versl­unar og þjón­ustu sem birt­ist á vef Alþingis í morgun. 

„Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands er nú gert ráð fyrir að útgjöld vegna S-merktra lyfja fari um 9% fram yfir fjár­heim­ildir árs­ins en eitt­hvað minna þegar horft er til almennra lyfja. Þessi staða er nú að koma upp enn eitt árið og ljóst, verði fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp óbreytt að lögum, að enn og aftur er veru­legt ósam­ræmi milli fjár­laga ann­ars vegar og raun­veru­legrar lyfja­notk­unar í heil­brigð­is­kerf­inu hins vegar,“ segir í umsögn­inni. 

Bent er á að með áfram­hald­andi breyt­ingum á ald­urs­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar og fjölgun sjúk­linga auk­ist þung­inn í heil­brigð­is­kerf­inu. Því sé með öllu óskilj­an­legt að lagt sé fram fjár­laga­frum­varp sem taki ekki mið af þeim raun­veru­leika sem notk­un­ar­tölur og áætl­anir Sjúkra­trygg­inga gera ráð fyrir. „Ljóst er að frum­varpið van­á­ætlar útgjöld til lyfja­mála á næsta ári í það minnsta um 700 millj­ónir króna, miðað við reynslu und­an­far­inna ára. Ekki verður annað séð en að afleið­ingar þess­arar van­á­ætl­unar verði þær sömu og und­an­farin ár; að fé til kaupa á sjúkra­hús­lyfjum verður uppurið á haust­mán­uðum. Hjá heil­brigð­is­starfs­mönnum eru skilj­an­lega áhyggjur af því að sjúk­lingar fái ekki sam­bæri­lega lyfja­með­ferð og tíðkast í löndum sem við kjósum að bera okkur saman við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár