Svona leit mengunin út í gærmorgun hjá United Silicon

United Silicon segir ástandið í Reykja­nesbæ ekk­ert verra en að mæta á ára­móta­brennu og segir engin „sér­stak­lega hættu­leg efni“ í miklum reyk sem leggur frá verk­smiðj­unni. Rúmlega 2000 manns hafa skrifað undir áskorun til Umhverf­is­stofn­unar og Reykja­nes­bæjar þar sem kraf­ist er þess að íbúar fái að njóta vafans en ekki verk­smiðjan.

Svona leit mengunin út í gærmorgun hjá United Silicon
Gríð­ar­leg mengun For­svars­menn United Silicon hafa sagt að bæði reyk- og lykt­ar­mengun frá kís­il­ver­inu hafi minnkað tölu­vert und­an­farna daga. Það var ekki að sjá í gær.

Í gær­dag var ýmist sunnan eða suð­vestan átt í Helguvík. Það er hag­stæð vind­átt fyrir íbúa í Reykja­nesbæ sem hafa und­an­farna daga kvartað sáran undan mik­illi mengun sem berst frá kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon. Vind­áttin í gær­dag þýddi að meng­unin frá kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon stefndi á haf út, í átt að Sel­tjarn­ar­nesi. Þar höfðu að minnsta kosti tveir íbúar fundið „kamínu­lykt“ af og til í gær. Rætt var við umrædda íbúa en ekki var hægt að sann­reyna hvort meng­unin hafi borist alla leið suð­vestur á Sel­tjarn­ar­nes þar sem blaða­maður Stund­ar­innar var staddur í Reykja­nesbæ í gær til þess að skoða nánar umhverfi verk­smiðj­unnar í Helguvík.

„Engin sérstaklega hættuleg efni“

Blaða­maður Stund­ar­innar var í Helguvík í hádeg­inu í gær en með­fylgj­andi ljós­myndir voru teknar klukkan rúm­lega hálf eitt. Á þeim sést hversu mikil mengun berst frá United Silicon en mikil og stæk bruna­lykt var á öllu svæð­inu, lykt sem virð­ist fest­ast í fötum því úlpa, höf­uð­fat og buxur blaða­manns Stund­ar­innar lykt­uðu eins og brennt timbur eftir nokkrar mín­útur í umhverfi verk­smiðj­unnar.

Á föstu­dag­inn sendi United Silicon hér­aðs­blaði Suð­ur­nesja, Vík­ur­fréttum, frétta­til­kynn­ingu þar sem for­svars­menn verk­smiðj­unnar full­yrða meðal ann­ars að „...engin sér­stak­lega hættu­leg efni eru í sjá­an­legu ryki frá verk­smiðj­unni.“

Engin gögn liggja þó fyrir sem stað­festa umrædda full­yrð­ingu. Þvert á móti hefur verið bent á að vara­söm og krabba­meins­vald­andi efni hafi orðið til við bruna verk­smiðj­unnar á timbri und­an­farna daga. Um er að ræða PAH-efni og B(a)P sem mynd­ast við ófull­komin bruna á líf­rænum efnum. Á vef Umhverf­is­stofn­unar er hægt að finna upp­lýs­ingar um umrædd efni en þar segir orð­rétt: „PAH-efni mynd­ast í tengslum við ýmiss konar iðn­að­ar­ferli en ef þau ber­ast í líf­verur geta þau valdið krabba­meini og ýmsum öðrum nei­kvæðum áhrifum.“ United Silicon minnt­ist ekki á þessi krabba­meins­vald­andi efni í yfir­lýs­ing­unni en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Umhverf­is­stofnun er ekki vitað hversu mikið af þessum krabba­meins­vald­andi efnum verk­smiðjan er að losa. Vonast er til þess að þær upp­lýs­ingar liggi fyrir innan tíðar.

Íbúar segja stopp við stóriðju
Íbúar segja stopp við stór­iðju Yfir tvö þús­und manns hafa skrifað undir und­ir­skrifta­söfn­un­ina frá því hún fór af stað á laug­ar­dag­inn.

Dönsk verkfræðistofa vildi nafn sitt afmáð

Það sem vekur þó athygli í þeirri athugun er að stuðst verður við gögn sem verða til í þremur loft­gæð­is­mælum sem eru stað­settir í umhverfi verk­smiðj­unnar. Stað­setn­ing umræddra loft­gæð­is­mæla var valin út frá loft­dreifi­lík­ani United Silicon sem eng­inn vill kann­ast við að hafa búið til. Líkt og Stundin hefur greint frá var danska verk­fræði­stofan COWI skrifuð fyrir loft­dreifi­lík­an­inu sem á „manna­máli“ er kölluð meng­un­ar­spá. Þegar verk­fræði­stofan komst að því að henni hafði verið eignuð meng­un­ar­spáin höfðu for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins sam­band við Umhverf­is­stofun og kröfð­ust þess að nafn þess yrði afmáð úr mats­skýrslu United Silicon. Það var gert. Eftir stendur meng­un­ar­spá sem eng­inn vill kann­ast við að hafa búið til en bæði yfir­völd og United Silicon fara eftir í einu og öllu.

Eins og „á áramótabrennu“

Í yfir­lýs­ingu sinni í fyrra­dag gerði United Silicon lítið úr þeirri mengun sem íbúar hafa upp­lifað síð­ustu daga og sögðu þetta ekk­ert ólíkt því að vera á ára­móta­brennu og því væri reyk­ur­inn ekk­ert hættu­legur „...enda förum við flest hik­laust með börn okkar á ára­móta­brennu.“ Reyk­ur­inn á ára­móta­brennum er þó hættu­legur en burt séð frá því þá hugn­ast það ekki íbúum að vera á ára­móta­brennu alla daga, slíkt væri einu sinni á ári í rúma tvo klukku­tíma.

Íbúar eru ósáttir og hafa fjöl­margir þeirra lýst yfir óánægju sinni á sam­fé­lags- og frétta­miðlun en í gær fór af stað und­ir­skrifta­söfnun þar sem er meðal ann­ars skorað á bæj­ar­yf­ir­völd í Reykja­nesbæ að rifta samn­ingum við Thorsil vegna fyr­ir­hug­aðrar bygg­ingar kís­il­málm­verk­smiðju í Helguvík: „For­sendur til þess eru fyrir hendi þar sem Thorsil hefur ekki staðið skil á þeim gjöldum sem fyr­ir­tækið átti að greiða fyrir tveimur árum.“

„Þá er þess jafn­framt kraf­ist að farið verði ræki­lega í saumana á þeim for­sendum sem lágu til grund­vallar útgáfu starfs­leyfis til United Silicon“

Þá segir einnig að bæj­ar­búar hafi upp­lifað það á eigin skinni und­an­farið hvernig það er að búa í nálægð við stór­iðju, eftir að kís­il­málm­verk­smiðja United Silicon tók til starfa. Margir íbúar Reykja­nes­bæjar eru ekki sáttir við það hlut­skipti og kvíða fram­hald­inu vegna áforma um fjölgun brennslu­ofna og meiri stór­iðju í Helguvík. Heilsa og vel­ferð bæj­ar­búa verði að vera í fyr­ir­rúmi.

„Í ljósi þess sem bæj­ar­búar upp­lifa núna vegna meng­unar frá United Silicon, skorum við jafn­framt á Umhverf­is­stofnun að gefa ekki út nýtt starfs­leyfi fyrir kís­il­málm­verk­miðju Thorsil að svo komnu máli. Þá er þess jafn­framt kraf­ist að farið verði ræki­lega í saumana á þeim for­sendum sem lágu til grund­vallar útgáfu starfs­leyfis til United Silicon í ljósi þeirra upp­lýs­inga sem komið hafa fram um loft­dreifi­líkan þess og danska verk­fræði­stofan COWI vill ekki kann­ast við. Svipta skal verk­smiðj­una starfs­leyfi séu þær upp­lýs­ingar réttar.“

Krefjast for­svars­menn und­ir­skrifta­söfn­un­ar­innar að bæj­ar­búar fái að njóta vafans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Áhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálfbærnistefnu sína og kísilverið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvarlega“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálf­bærni­stefnu sína og kís­il­verið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvar­lega“

Arion banki er með­vit­aður um þá ábyrgð sem hvílir á bank­anum varð­andi mögu­lega end­ur­opnun kís­il­vers­ins í Helguvík. Kís­il­ver­inu var lokað vegna meng­unar árið 2017. Stefna bank­ans í umhverf­is­málum hefur tekið breyt­ingum á liðnum árum og svarar bank­inn meðal ann­ars spurn­ingum um hvernig þessa stefna rímar við end­ur­opnun meng­andi kís­il­vers.
Guðbrandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kísilverksmiðjunni
ViðskiptiÁhrif kísilvers United Silicon

Guð­brandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kís­il­verk­smiðj­unni

Arion banki hyggst opna aftur kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík sem hefur verið lokuð í tæpt ár. Allir bæj­ar­full­trúar í Reykja­nesbæ hafa lýst sig and­víga opn­un­inni og 350 athuga­semdir bár­ust frá íbúum í bænum. Guð­brandur Ein­ars­son', bæj­ar­full­trúi og þing­maður VIð­reisnar, lýsir áhrifum verk­smiðj­unnar á heilsu­far sitt og útskýrir hvers vegna má ekki opna hana aftur.
Stjórnmálamenn töluðu upp United Silicon og fögnuðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Stjórn­mála­menn töl­uðu upp United Silicon og fögn­uðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“

„Þetta er mjög stór stund,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, þegar fyrsta skóflustungan var tekin að verk­smiðju United Silicon, sem fór í gjald­þrot í dag eftir að hafa marg­brotið starfs­leyfi og mein­tan fjár­drátt for­stjór­ans. Bæj­ar­stjór­inn í Reykja­nesbæ gagn­rýndi úrtöluraddir. „Við erum búin að bíða lengi,“ sagði iðn­að­ar­ráð­herra.
Dularfullur barón keypti í kísilveri og seldi virkjanaréttindi
Fréttir

Dul­ar­fullur barón keypti í kís­il­veri og seldi virkj­ana­rétt­indi

Ítalskur barón, Felix Von Longo-Lieb­en­stein, hefur verið virkur í jarða­kaupum á Íslandi frá síð­ustu alda­mótum en hefur náð að halda sér utan kast­ljóss fjöl­miðla. Hann var einn af hlut­höf­unum í kís­il­fyr­ir­tæk­inu United Silicon og seldi dótt­ur­fé­lagi HS Orku vatns­rétt­indi út af virkjun á Ströndum. Illa gengur að fá upp­lýs­ingar um bar­ón­inn.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár